blaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 16
16 I FERÐALÖG
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 blaðið
Fimm stjörnu tjaldstœði í Fossatúni
Flestar dekurrófur geta ekkifyrir sitt litla lífhugsað sér að sofa í tjaldi. En hvað eftjaldstœðið hefur forskeytið -lúxus?
í um klukkutíma aksturfjarlægð
frá miðborg Reykjavíkur er slfkt
tjaldstæði að finna en því var
hleypt af stokkunum í júní í fyrra.
Staðurinn nefnist Fossatún en
eigendur þess eru Steinar Berg
f sleifsson og kona hans Ingibjörg
Pálsdóttir.
Margir kunna að spyrja sig
hvernig tjaldstæði geti fengið fimm
stjörnur. Eiga tjaldútilegur ekki bara
að ganga út á að reka hæla í mold og
komast í tengsl við náttúruna? Ekk-
ert endilega. Til dæmis er alltaf gott
að borða góðan mat, liggja í heitum
potti og horfa upp i stjörnubjartan
himinn, skella sér í góða sturtu og
ganga í hreinum fötum. Vissulega er
líka upplagt að hafa tækifæri til að
kíkja á Netið og kanna ferðaveðrið
ef því er að skipta.
Ferðamálaráð hefur gefið út við-
mið stjörnugjafar íslenskra tjald-
svæða. Neðangreint viðmið var
gefið út á árinu 2004 og hefur síðan
tekið breytingum. Staðahöldurum
er í sjálfsvald sett hvað þeir hengja
margar stjörnur á tjaldsvæði sitt en
skilgreiningin á vafalaust eftir að
þróast eitthvað frekar, ekki sist eftir
að reynsla kemst á rekstur lúxus-
tjaldsvæða eins og tjaldstæðisins
Fossatúni.
margret@bladid.net
Fossatún
Til að uppfylla skilyrði um fimm stjörnu tjaldstæði
þurfa eftirfarandi atriði að vera fyrir hendi:
1. 24 tíma eftirlit alla daga.
2. Veitingasalaástaðnum.
3. Tengingar við sjónvarpsstöðvar.
4. Heitirpottarástaðnum.
5. Starfsfólk hafi fasta viðveru á
svæðinu frá kl. 07:00-23:00 alla
daga.
6. Aðstaða til tölvutengingar.
7. Sérstök stæði fyrir húsbíla og
tjaldvagna.
8. Starfsfólk hafi fasta viðveru á
álagstímum, viðverutími auglýstur
og næturvakt sé um helgar.
9. Gestamóttaka skal vera aðgengi-
leg með svæðisupplýsingum.
10. Borðogstólarundirþaki.
11. Veglýsing að svæðinu.
12. Tekið skal á móti pósti á svæðinu.
13. Tengingar séu fyrir rafmagn i hús-
bila og fellihýsi.
14. Aðgangur að þvottavél og þurrk-
aðstöðu.
15. Aðstaða til sorpflokkunar (a.m.k.
samkvæmt lágmarkskröfum um
förgun spilliefna).
16. Heittogkaltvatnásvæðinu.
17. Hægtséaðfáallarupplýsingar
um svæðið og leggja inn gistipant-
anir utan annatíma.
18. Aðgengi fyrir fatlaða.
19. Starfsfólk hafi lágmarksviðveru
yfirdaginn.
20. Upplýsingatafla með vaktatöflu
starfsfólks skal hanga uppi.
21. Þjónustusvæði sé upplýst.
22. Aðgangurséaðsímaallansólar-
hringinn í næsta nágrenni.
23. Á svæðinu sé aðstaða til losunar
affallsvatns af húsbílum.
24. Tekiðséviðgreiðslukortum.
25. Leikaðstaðaséfyrirbörn.
26. Tjaldstæði skal vera slétt og vel
hirt.
27. Upplýsingar um neyðarnúmer skal
vera a.m.k. á íslensku og ensku.
28. Borð og bekkir séu á svæðinu.
29. Öll aðstaða á svæðinu sé greini-
lega merkt.
30. Öllummannvirkjumásvæðinusé
vel við haldið.
31. Sorp sé hreinsað reglulega.
32. Fjöldi af salernum og vöskum skal
að öllu jöfnu vera eftirfarandi:
Fyrir 200 gesti 2 salerni (þar af eitt
ætlað fötluðum), 201 -300 gestir
3 salerni, 401 -600 gestir 4 salerni,
o.s.frv. (sjá viðmið hoilustuvernd-
ar).
33. Rennandi kaltvatn.
34. Á svæðinu skal vera daglegt
eftirlit.
35. Upplýsingatafla skal vera til staðar
með umgengnisreglum og síma
hjá umsjónaraðila.
36. Búnaðurtil"Fyrstu hjálpar" hjá
umsjónaraðila.
37. Innkeyrsla skal vera greinilega
merkt með nafni svæðisins og
stjörnuflokki.
38. Aðkeyrsla að svæðinu sé greiðfær
og örugg.
39. Tjaldsvæðið sé greinilega afmark-
að og fjárhelt.
Langar þig f stærri mynd?
Þú kaupir ramma* hjá okkur og við stækkum myndina
þína frítt! Giidir frá 23. febrúar til 2. mars
Frí stækkun
* Tilboðið gildir fyrir merktar rammategundir.
FUJIFILM
Ljósmyndavörur Skipholti 31, Reykjavík, s: 568 0450 www.ljosmyndavorur.is
Hcmdverlcfaeri
JCBD-CD12
Rafhlöðuborvél 12 volt
16 stillingar
Stiglaus hraði
Hraðhleðsla (1 klst.)
JCBD-CD14
Rafhlöðuborvél 14,4 volt
16 stillingar
Rafmagnsbremsa
Stiglaus hraði
Hraðhleðsla (1 klst.)
Tvær rafhlöður
11.995
JCBD-CD1821
Rafhlöðuborvél 18 volt
20 stillingar
Rafmagnsbremsa
Stiglaus hraði
Hraðhleðsla (1 klst.) «■ /■
Tvær rafhlöður
JCBD-CSK4880
Skrúfvél með Ætk —
80 fylgihlutum 3F 9
www.radio.is
RADlOBÆR
ÁRMÚLA 38 • SIMI 553 1133