blaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 35
blaðið FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006
KVIKM7NDIR I 35
Hin fullkomna saga
Um helgina eru stórmyndirfrumsýndar á hvíta tjaldinu í kvikmyndahúsum landsins. Tvœr eru tilnefndar til Ósk-
arsverðlauna ogsú þriðja er tilvalin fyrir börnin. Þetta eru Capote, The Constant Gardener ogNanny McPhee.
Það virðist enginn í vafa um að
Philip Seymour Hoffman á eftir að
hirða Óskarinn fyrir besta leik í að-
alhlutverki á Óskarsverðlaunahátíð-
inni í byrjun næsta mánaðar. Túlkun
hans á Truman Capote, höfundi bók-
arinnar Breakfast at Tiffany’s, sem
fljótt varð þekkt andlit í þotuliði
New York borgar. Á morgun gefst Is-
lendingum tækifæri til að taka eigin
ákvörðun um tilkall Hoffmans til
Óskarsverðlaunanna.
Kvikmyndin Capote fjallar um
rithöfundinn sem hefur þá kenn-
ingu að almennar fréttir getir verið
rétt eins áhugavert lesefni og skáld-
skapur svo lengi sem réttur maður
haldi á pennanum. Því fer hann úr
stórborginni til smábæjar í Kansas
þar sem fjögurra manna fjölskylda
hefur verið myrt. Smám saman
breytist það sem átti að vera grein í
tímariti í heila bók, bók sem vel gæti
orðið eitt besta nútímaverk sem sést
hefur. „Þegar ég hugsa hversu góð
hún gæti orðið, get ég ekki andað,“
skrifaði Capote vini sínum.
Ástarsaga í Afríku
The Constant Gardener hefur ekki
síður verið í umræðunni undanfarið
og er m.a. tilnefnd til Óskarsverð-
launanna sem besta kvikmyndin.
Myndinni er leikstýrt af Óskarsverð-
launahafanum Fernando Meirelles
sem hlaut verðlaunin fyrir hina stór-
kostlegu Borg guðs. Honum til halds
og trausts eru verðlaunaleikararnir
Ralph Fiennes og Rachel Weisz en
einnig koma fjölmargir listamenn
að henni sem stóðu að myndum á
borð við Secrets & Lies, Borg guðs,
Platoon og Dirty Pretty Things.
í norður Kenía finnst mesta bar-
áttukona landsins fyrir auknum
mannréttindum myrt á hrottalegan
hátt. Ferðafélagi hennar hefur flúið
af vettvangi og benda sönnunargögn
á að glæpurinn hafi verið framinn
af ástríðu. Eiginmaður konunnar
neitar að taka útskýringum stjórn-
valda trúanlega og veldur miklu
fjaðrafoki. Jafnaðargeð hans hverfur
eins og dögg fyrir sólu þar sem hann
neitar að trúa að kona hans hafi
SÆKTU LAGIÐ!
Germfree Adolescents með X-Ray Spex
Smá af gamla skólanum þennan fimmtudaginn.Tilvalið að rifja upp hvernig á að þrífa sig
almennilega á tímum sem fuglaflensa hótar lifi manna um alla jörð, miðað við fréttatíma.
Bladið treystir þvíað lesendur sínir kunni skil á tögum um höfundarrétt.
Rokk og ról forleikur
Hljómsveitirnar Envy of Nona,
Wolfgang og Sap spila á fimmtu-
dagsforleik Hins Hússins í kvöld.
„Þetta verður rokk keyrsla," segir
Helgi Axel, gítarleikari Envy of
Nona en þeir spila gruggskotið rokk
og flytja efni af væntanlegri breið-
skífu í kvöld. „Við erum að leggja
lokahönd á okkar fyrstu plötu en á
henni verða 16 lög.“
Helgi segir ekki á hreinu hvenær
platan kemur út en það sé líklega
innan þriggja vikna. „Það er bara
umslagið sem er að tefja okkur, upp-
tökum er lokið.“
Hljómsveitirnar Wolfgang og Sap
hafa ekki mikið látið fyrir sér fara
en undirritaður hefur alltaf verið á
þeirri skoðun að gaman sé að heyra
í nýjum og ferskum hljómsveitum
svo að kvöldið í kvöld er vissulega
forvitnilegt.
16 ára aldurstakmark er á tónleik-
ana sem hefjast klukkan 20 og er
frítt inn.
Arcade Fire aftur á toppinn
Stolt Kanada, Arcade Fire, endur-
heimti fyrsta sæti XFM Dominos
listans í vikunni sem leið með lagið
Rebellion á meðan Hróaskeldufar-
arnir í Placebo sitja sem fastast í
öðru sæti eins og vikuna á undan og
eru ekkert á leiðinni að kveðja.
Islensku sveitunum á listanum
gengur mis vel. Á meðan Jeff Who?
falla úr fyrsta sæti niður í það þriðja
með lagið Barfly eru Ijúflingarnir
í Ampop búnir að stökkva hæst
allra, úr 25. sæti upp í það 6. með
hið frábæra lag Clown. Sveitirnar
Fræ og Reykjavík! stökkva einnigþó-
nokkuð upp og er ekkert nema gott
um það að segja. Áfram Island!
XFM-Dominoslistinn 15.-22.feb
I Nú Var Hljómsveit Lag
1. 4. Arcade Flre Rebellion
2. 2. Placebo A Song To Say Goodbye
3. 1. JeffWho? Barfly
4. 20. Artlc Monkeys WhenThe Sun Goes Down
5. 13. U2 Original Of The Species
6. 25. Ampop Clown
7. 17. Yeal1 Yeah Yeah 's Gold Lion
8. 6. Death Cab For Cutle Crooked Teeth
9. 16. Fræ Freðinn Fáviti
10. 5. Starsallor ThisTime
11. 15. Maxlmo Park IWantYouToStay
12. 8. System OfA Down Lonley Day
13. 14. Dead 60 's Ghostfaced Killer
14. 21. Reykjavikl 7913
15. 12. BlocParty Helicopter
16. 18. Jakobínarina 1 've Got A Date With My Television
17. 3. Editors Munich
18. 10. The Futureheads Area
19. 33. Deus 7 Days 7 Weeks
20. 22. Mew Special
Nanny McPhee er allt annað en eðlileg kona.
verið honum ótrú. I leit að sannleik-
anum kemst hann að því að hún var
við að fletta ofan af samsæri lyfjafyr-
irtækja. Hann tekur málið upp og
hyggst hreinsa nafn konu sinnar af
öílu illu.
„Möguleikinn að ráðast á lyfja-
iðnaðinn var ein aðalástæðan fyrir
því að ég tók þetta verkefni að mér,“
segir leikstjórinn Meirelles. „Að fá
að ferðast til Kenía og taka myndina
þar var önnur. Svo er þetta einstak-
lega frumleg ástarsaga, maður gift-
ist konu sér yngri en það er ekki fyrr
en hún fellur frá að hann fellur fyrir
henni.“
Fyrir börnin
Börn Brown hjónanna eru líkast
til óþekkustu börn í heimi. Herra
Brown, faðir þeirra, hefur nóg að
gera í vinnu sinni á útfararstofu
bæjarins svo hann á erfitt með að
hemja grislingana sem eru sjö tals-
ins. Móðir barnanna lést fyrir ári
síðan en efnuð frænka þeirra krefst
þess engu síður að hr. Brown finni
sér aðra konu á innan við mánuði
ellegar verði hann arflaus. Þetta
yrði hans banabiti þar sem frænkan
heldur fjölskyldunni einnig uppi að
miklu leyti og getur hann ekki einu
sinni hugsað sér hvað kæmi fyrir
börnin ef svo færi. Brown ákveður
að halda þessu leyndu fyrir börnum
sínum en þau komast að því að
þau eigi von á stjúpmóður. Eins og
sönnum óþekktarormum einum er
lagið einsetja þau sér að koma í veg
fyrir ráðahaginn.
Það er þá sem barnfóstran Nanny
McPhee kemur til leiks og fjallar
kvikmyndin um kostulegar uppá-
komur þegar hún tekst á við börnin.
TOPPUR 1990
BUXUR 2990,
JAKKI 7990.-
PEYSA 3990.
BUXUR 3990
FRABÆRT URVAL
AF FALLEGUM
FERMINGARFATNAÐI
KRINGLUNNI - SMARALIND