blaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 blaöÍA
Sölutímabil til 24. febrúar.
TAKMARKAÐ
SÆTAFRAMBOÐ.
ICELANDAIR m
www.icelandair.is
NYTT - OPIN FERÐ
Nú er hægt að bóka
NETSMELL til eins
áfangastaðar og heim frá
öðrum. Þetta gildir um alla
áfangastaði lcelandair i
Evrópu og Bandaríkjunum.
Af því tilefni bjóðum við flug
til Evi-ópu á sérstöku
tilboðsverði.
FLUG 19.900 KR.
Nærri hundrað hafa
látið lífiö í varðhaldi
Nærri íoo fangar hafa látist í varð-
haldi Bandaríkjamanna í frak og
Afganistan frá því í ágúst 2002
samkvæmt nýrri skýrslu banda-
rísku mannréttindasamtakanna
Human Rights First. Grunur
leikur á að um manndráp að yfir-
lögðu ráði eða af gáleysi hafi verið
að ræða í 34 tilfellum.
Jafnframt segir í skýrslunni að
grunur leiki á að 11 fangar hafi lát-
ist með vafasömum hætti og að átta
til 12 fangar hafi verið pyntaðir til
dauða.
Þrátt fyrir það hefur sjaldan verið
ákært í málum og dómar hafa verið
vægir. Skýrslan er gefin út viku eftir
að nýjar myndir af misþyrmingum
á föngum í Abu Ghraib fangelsi í
Bagdad voru birtar.
f skýrslunni er því meðal ann-
ars haldið fram að fangi hafi verið
neyddur til að stökkva fram af brú í
fljótið Tigris í írak og að annar hafi
verið neyddur til að skríða ofan í
svefnpoka þar sem hann hafi kafnað.
Ekki eru talin með dauðsföll sem
urðu í bardögum, sprengjuárásum
eða átökum milli fanga. Dauðsföllin
tengjast með beinum hætti varðhaldi
eða yfirheyrslum Bandaríkjamanna.
Trúverðug og áreiðanleg skýrsla
Deborah Pearlstein, einn af skýrslu-
höfundum, sagðist hafa mikla trú á
Bandarískir hermenn við störf í (rak á síðasta ári. Nýleg skýrsla leiðir í Ijós að nærri 100
manns hafa látist i varðhaldi Bandaríkjamanna í (rak og Afganistan á undanförnum
tveimurárum.
áreiðanleika og trúverðugleika skýrsl-
unnar í fréttaskýringaþætti Breska
ríkisútvarpsins (BBC) á þriðjudag.
Máli sínu til stuðnings benti hún á
að skýrslan væri byggð á opinberum
gögnum, svo sem skýrslum frá
hernum sem skýrsluhöfundar kom-
ust yfir í krafti upplýsingalaga.
Talsmaður varnarmálaráðuneytis
Bandaríkjanna sagðist í sjónvarps-
þættinum ekki hafa séð skýrsluna
en að allar ásakanir um illa meðferð
væru teknar alvarlega og menn væru
sóttir til saka fyrir þær.
Zalmay Khallzad, sendiherra
Bandaríkjanna í Irak, sagði í viðtali
við BBC að fangar í haldi banda-
manna hefðu skipt þúsundum und-
anfarin tvö ár.
„Sumir hafa látist af eðlilegum
orsökum og það hafa verið lagðar
fram ákærur um misþyrmingar. Að
sjálfsögðu rannsökum við alltaf og
finnum út hvað gerðist og ákveðum
síðan viðeigandi refsingu ef upp
kemst um Ólöglegt athæfi," sagði
hann.
Borgaryfirvöld i San Francisco hyggjast reyna aö endurnýta þann úrgang sem hundar
borgarinnar skilja eftir sig.
Orka úr hundaskít
Forsvarsmenn sorphirðu San Will Brinton, umhverfisfræð-
Francisco borgar hyggjast gera
tilraunir til að vinna orku úr
hundaskít.
Talið er að um 120.000 hundar séu
í borginni og því mikill skítur sem
fellur til á ári hverju og stór hluti
hans fer með heimilissorpi í landfyll-
ingar. „Borgaryfirvöld báðu okkur
að íhuga að gera tilraunir til að
endurvinna hundaskít til að draga
úr þeim úrgangi sem fer í landfyll-
ingar,“ segir Robert Reid, talsmaður
sorphirðu San Francisco.
Hugmyndin gengur út á að vinna
á lífrænan hátt metan úr úrgang-
inum sem síðan yrði notað til raf-
magnsframleiðslu eða upphitunar.
ingur, segir að úrgangur hunda
og katta í Bandaríkjunum nemi
um 10 milljónum tonna á ári. „Þó
að okkur sé annt um gæludýrin
okkar þá skilja þau mikinn úrgang
eftir sig í görðum og á götum sem
geta valdið mengun á jarðvatni,"
segir hann og bendir jafnframt á
að í nokkrum borgum í Evrópu sé
lífrænn úrgangur notaður til fram-
leiðslu eldsneytis.
Borgaryfirvöld í San Francisco
hafa lagt mikla áherslu á umhverf-
ismál og endurvinnslu á undan-
förnum árum og er markmið þeirra
að ekkert sorp verði notað í landfyll-
ingar árið 2020.
Aristide vill
snúa heim
Jean-Bertrand Aristide, fyrr
verandi forseti Haítí, sagði
þriðjudag að hann hefði anuga
á að snúa aftur heim
hafa verið í útlegð í tvö ár.
Hann greindi frá þessu
í viðtali við sjónvarpsstöð í
Suður Afríku þar sem hann
hefur dvaíið í útlegð. Aristide
nefndi ekki hvenær hann
myndi snúa aftur en það yrði
gert í samráði við René Préval,
nýkjörinn forseta landsins, Sam-
einuðu þjóðirnar, ríkisstjórn
Suður Afríku og önnur lönd.
Þetta var fyrsta viðtalið við
Aristide frá því að forsetakosn-
ingar fóru fram á Haítí 7. febrúar.
Talsmenn Bandaríkjastjórnar
segja að endurkoma Aristides
kunni að ógna stöðugleika.
Aristide gaf í skyn í viðtalinu
að hann myndi ekki taka þátt í
stjórnmálum heldur vinna að
því að efla menntun í landinu.
Falsaðir seðlar
finnast í Varna
mbl.is | Lögreglan í Búlgaríu
gerði áhlaup á prentsmiðju í
borginni Varna í gær og lagði
hald á ríflega 400.000 falsaða
evruseðla. Ennfremur voru
nokkrir handteknir í tengslum
við málið. Peningafölsun í Búlg-
aríu er ein sú mesta í Evrópu, en
á undanfórnum tveimur árum
hefur búlgarska lögreglan lagt
hald á milljónir falsaðra dollara-
ENN MEIRS AFSLATTUR:
500,1000,2000 OG 3000 KR SLÁR.
Ótrúleg verð Komdu og nýttu þér þetta einstaka tækifæri.
# ® # # # Sissa Tískuhús Glæsibæ
Opið 10-18.00 virka daga og laugardaga 10-16.00 Sími 5625110