blaðið - 23.02.2006, Qupperneq 6
6 I INttLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 blaAÍA
Áfengi selst vel
Sala á áfengi jókst um 8,6% á
milli janúarmánaða 2005 og
2006 samkvæmt mælingu Rann-
sóknarseturs verslunarinnar á
dagvöruverslun í síðasta mánuði.
Mikil aukning varð ennfremur
i almennri verslun í janúar og
jókst hún um 10,1% saman-
borin við sama tímabil í fyrra.
Villandi og rangur samanburður
Úrvalsvísitalan hélt áfram að falla í gœr annan daginn í röð. Forstöðumaður Hagfrœði-
stofnunar HÍ telur markaðinn bregðast ofharkalega við mati á lánshorfum ríkissjóðs.
íslenska hagkerfið gæti átt í vændum erfiða lendingu þegar þenslutímabilinu lýkur, sam-
kvæmt matsfyrirtækinu Fitch Ratings.
Draga verður úr ríkisútgjöldum
og neyslu hins opinbera til að slá á
þenslu í þjóðfélaginu að mati Tryggva
Þórs Herbertssonar, forstöðumanns
Hagfræðistofnunar Háskóla fslands.
Hann segir gagnrýni matsfyrirtækis-
ins Fitch Ratings á íslenskt hagkerfi
í meginatriðum byggða á röngum
forsendum. Úrvalsvísitalan féll í gær
um 2% og hefur því alls fallið um
rúm 5% frá því að horfum á lánshæfi
ríkissjóðs var breytt úr stöðugu í nei-
kvætt síðastliðinn þriðjudag.
Mikil ofhitnun
Matsfyrirtækið Fitch Ratings breytti
í fyrradag horfum vegna lánshæfi
ríkissjóðs fslands úr stöðugu í nei-
kvætt. Ástæðan fyrir breyttum
horfum er hratt vaxandi skuldsetn-
ing þjóðarbúskapsins.
Þá kemur fram í greinargerð fyr-
irtækisins að íslenska hagkerfið ein-
kennist af mikilli ofhitnun sem lýsi
sér í vaxandi verðbólgu, hraðari út-
lánaukningu, hækkandi eignaverði
og verulegum viðskiptahalla.
Fyrirtækið gagnrýnir ríkisvaldið
fyrir aðgerðarleysi í efnahags-
stjórnun og segir ástandið svipa til
þess sem var til staðar í ríkjum Suð-
austur-Asíu áður en efnhagskreppan
skall þar á undir lok síðustu aldar.
Rangur samanburður
Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðu-
maður Hagfræðistofnunar Hf, segir
ekkert nýtt koma fram í gagnrýni
Fitch Ratings. Hann telur ekki hægt
að bera saman ástandið hér við það
sem gerðist í Suðaustur-Asíu. „Þetta
er villandi og rangur samanburður
og það eru engar hliðstæður þarna á
rnilli."
Tryggvi segist þó sammála því mati
Fitch Ratings að slá þurfi á þenslu í
hagkerfinu m.a. með því að draga úr
eftirspurn. „Það þarf að draga úr rík-
isútgjöldum og neyslu hins opinbera.
Þá er ég ekki bara að tala um ríkið
heldur sveitarfélögin líka.“
Þá segir Tryggvi viðbrögð markað-
arins við yfirlýsingu Fitch hafa verið
of harkaleg. Hann telur þau lýsa
viðkvæmu ástandi á fjármálamörk-
uðum. „Þessar fréttir ýttu á smærri
fjárfesta sem eru kannski viðkvæmir
fyrir slíku. Við munum sjá eitthvað
lægri hlutabréfamarkað eftir þetta
en að öllum líkindum mun gengið ná
aftur fyrri hæðum.“ Tryggvi bendir á
að muni gengið hins vegar falla frekar
geti það leitt til verðbólgu með tilheyr-
andi óvissu og aukinni greiðslubyrði
fyrir almenning. „Þetta gæti slegið
á bjartsýnisvæntingar. Fólk fer síður
í fasteignakaup sem mun draga úr
eftirspurn og fasteignaverð mun þá
lækka eða standa í stað.“
Segir tillögu um auglýs-
ingabann einkennilega
Mœltfyrirþingsályktunartillögu á Alþingi
um takmörkun auglýsinga á óhollri matvöru
Banna á auglýsingar í sjónvarpi á
matvöru sem inniheldur mikla fitu,
sykur eða salt eftir klukkan níu á
kvöldin til berjast gegn vaxandi of-
fitu. Þetta kemur fram í þingsálykt-
unartillögu Ástu R. Jóhannesdóttur,
alþingismanns, um takmörkun
auglýsinga á óhollri matvöru sem
hún mælti fyrir á Alþingi í gær.
Forstjóri Ölgerðarinnar Egill Skalla-
grímsson ehf. segir tillöguna vera
einkennilega.
Vill samstöðu með framleiðendum
í þingsályktunartillögunni kemur
fram að fela eigi heilbrigðisráðherra
að kanna grundvöll fyrir setningu
reglna um takmörkun auglýsinga
á matvöru sem inniheldur mikla
fitu, sykur eða salt. Markmiðið á að
vera að sporna gegn vaxandi offitu
meðal barna og ungmenna. í tillög-
unni kemur einnig fram að ráðherra
skuli reyna að ná samstöðu um
málið með framleiðendum, innflytj-
endum og auglýsendum.
í greinargerð með tillögunni er
vísað í rannsóknir sem benda til þess
að offita sé hratt vaxandi heilbrigðis-
vandamál á íslandi. Hún auki stór-
lega líkur á hvers konar sjúkdómum
og því sé brýnt að stjórnvöld beini
sjónum að þessu vandamáli sem
allra fyrst.
Andri Þór Guðmundsson, forstjóri
Ölgerðarinnar Egill Skallagrímsson
ehf., segir tillöguna fela í sér mikla
forsjárhyggju. „Ég hélt að sá tími
væri að baki að ríkið þyrfti að hafa
vit fyrir almenningi. Eg hefði haldið
að fólki væri treystandi til þess að
velja sjálft. Þetta er einkennileg
tillaga."
Andri segir lausnina frekar felast
í því að uppfræða almenning um
skaðsemi ofneyslu á sykri.
Þá bendir hann á að mundi svona
bann ná fram að ganga yrði nánast
ómögulegt að auglýsa flestar mjólk-
urvörur og ávaxtasafa. „Fólk verður
að gera sér grein fyrir því að það er
mikill sykur í þessu öllu saman.“
Andri segir ábyrgð framleiðenda
í þessu máli sé að þróa sykurlausa
og sykurminni drykki sem höfði
til krakka og ungmenna. „Við fram-
leiðum fullt af þannig drykkjum
t.d. Kristal plús og Pepsi Max. Al-
mennt hefur neysla á sykurlausum
drykkjum aukist gríðarlega undan-
farin ár.“
Sorg í kjölfar sjdlfsvígs
Fræðslufundur í Bústaðakirkju (kjallara)
í kvöld 23. febrúar kl. 20-22.
lyrirlesari sr. Guórún Eggertsdóttir, sjúkrahúsprestur.
Munið „Öpið hús“ 2. niars. Allir velkomnir!
áí&JL
NYDOGUN
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
Út að borða
Fátt er þjóðlegra en að bregða sér á Bæjarins bestu til að seðja sárasta hungrið. Slíkt er ennfremur með eindæmum vinsælt og það
er sama hvort úti er 20 stiga hiti eða rok og rigning - alltaf er hægt að finna biðröð fyrir framan þennan heimsfræga pylsuskúr sem
þó lætur svo ósköp lítið yfir sér. Það kom þvf lítt á óvart að hann Asgeir pylsusali hefði ekki tfma til að svo mikið sem líta í átt til Ijós-
myndara Blaðsins þegar hann kom þangað í heimsókn um miðjan dag í gær.
Stjórnarmönnum Baugs
ókunnugt um reikninga
Stjómarmenn í almenningshlutafé-
laginu Baugi báru við vitnaleiðslur
í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, að
þeim hafi ekki verið kunnugt um um-
fangsmikla viðskiptareikninga Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar, Kristínar Jó-
hannesdóttur og félaganna Gaums
og Fjárfars hjá Baugi á sínum tíma.
Aðalmeðferð Baugsmálsins hélt
áfram í gær og var Óskar Magnús-
son, fyrrum stjórnarformaður Baugs,
meðal annars kallaður til vitnis.
Hann bar að starfsreglur hefðu verið
hjá fyrirtækinu, sem leggja áttu
hömlur á viðskipti stjórnenda og
tengdra aðila við almenningshlutafé-
lagið og þurfti samkvæmt reglunum
að bera slíkt undir stjórn. Óskar og
aðrir stjórnarmenn sögðust ekki
hafa haft vitneskju um reikningana
og þeir hefðu ekki verið bornir sér-
staklega undir stjórn félagsins
eða ræddir þar fyrr en eftir
að lögð var fram harðorð
skýrsla Stefáns Hilmars-
sonar, endurskoðanda,
á stjórnarfundi þar
sem bent var á at-
riði sem betur
mættu fara.
Þá var
tekin
skýrsla af Lindu Jóhannsdóttur, þá-
verandi fjármálastjóra hjá Baugi. Áð-
spurð um hvort hún hefði innheimt
skuldir þessara aðila neitaði hún því
og kvaðst hafa fengið þau svör frá
Jóni Ásgeiri og Tryggva Jónssyni, þá-
verandi framkvæmdastjóra Baugs,
að þess væri ekki þörf.
Vitnaleiðslum í þessum
þætti Baugsmálsins lauk
í gær, en málflutn-
ingur hefst í dag,
fimmtudag.
<3» *
/w//aáf/r
Blúðið/lngó