blaðið

Ulloq

blaðið - 23.02.2006, Qupperneq 8

blaðið - 23.02.2006, Qupperneq 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 blaAi6 Samið við Mladic? Háttsettur embættismaður innan serbneska stjórnkerfisins ítrekaði í gær að komist hefði upp um dvalarstað eftirlýsta stríðsglæpa- mannsins Ratko Mladic og að yfirvöld ynnu að því að fá hann til að gefa sig fram. Carla Del Ponte, yfirsaksóknari við Stríðsglæpadóm- stól Sameinuðu þjóðanna í Haag sagði að þó að Mladic væri innan seilingar serbneskra yfirvalda gengi hann enn laus. Degi áður hafði Del Ponte hafnað því að eitthvað væri hæft í fréttum af handtöku Mladic. í gær sagði hún aftur á móti að serbneskir embættismenn hefðu sagt sér að engar viðræður stæðu yfir um uppgjöf hans. Mladic sem var hershöfðingi í her Bosníu Serba hefur verið ákærður fyrir þjóðarmorð vegna þáttar hans í stríðinu í Bosníu 1992 til 1995. Embættismaðurinn sem ekki vildi láta nafns síns getið sagði aftur á móti að það væri eðlilegt að yfirvöld gerðu ekki opinbert að viðræður um upp- gjöf kynnu að standa yfir. „Ef hann gefst ekki upp munum við gera allt sem mögulegt er til að koma honum í hendur Stríðsglæpadómstóls Sameinuðu þjóðanna,“ sagði embættismaður- inn í viðtali við AP-fréttastofuna. Arás á helgidóm víða mótmælt Enn vex spenna í samskiptum trúarhópa í írak eftir árás á eina helstu mosku sjíta í landinu Mótmæli brutust út og ráðist var á moskur súnnímúslíma í gær eftir að sprenging olli miklum skemmdum á Askariya-mos- kunni í Samarra í írak, einum helsta helgidómi sjítamúslíma. Þetta var þriðja árásin gegn sjítum í landinu í þessari viku og margir óttast að hún muni auka enn frekar á spennu milli ólíkra trúhópa. Þrátt fyrir að leiðtogar sjíta hefðu hvatt fólk til að halda ró sinni var ráðist á að minnsta kosti 29 moskur súnnímúslíma víða um land. Þá voru um 500 íraskir hermenn sendir í hverfi súnnímúslíma í Bagdad til að koma í veg fyrir að átök brytust út milli sjíta og súnníta. Enginn hafði lýst yfir ábyrgð á sprengingunni í gær en hópar rót- tækra súnnímúslíma liggja undir grun, þar á meðal armur Á1 Qaeda í írak undir stjórn Abu Musab al-Zarqawi. Talsmaður innanríkisráðuneyt- isins sagði að fjórir menn hefðu komið í moskuna árla morguns og sprengt tvær sprengjur. Hvolfþak moskunnar hrundi við sprenging- una og hluti veggsins eyðilagðist. Sjítamúslfmar mótmæla árás á Askariya-moskuna, einn helsta helgidóm þeirra f (rak, á götum Bagdad í gær. Reuters Reynt að koma af stað borgarastríði Mouwafak al-Rubaie, þjóðarör- yggisráðgjafi fraks, kenndi trúar- ofstækismönnum um árásina í viðtali við sjónvarpsstöðina Al-Ara- biya og sagði að hún væri tilraun til að koma af stað borgarastríði í landinu. Ayatollah Ali al-Sistani, virtasti klerkur sjítamúslíma, hvatti fylgj- endur sína til að gera ekki árásir á moskur súnnímúslíma og fyrir- skipaði sjö daga þjóðarsorg vegna atburðarins. Jalal Talabani, forseti íraks, for- dæmdi árásirnar og hvatti til þess að fólk sýndi stillingu. Hann sagði jafnframt að árásinni væri ætlað að eyðileggja viðræður um myndun ríkisstjórnar sem endurspeglaði einingu þjóðarinnar. Talsmaður ríkisstofnunar sem hefur umsjón með moskum og öðrum helgidómum súnnímúslíma fordæmdi einnig sprenginguna og sagðist ætla að senda hóp manna til Samarra til að rannsaka það sem þar hefði gerst. Helgidómurinn í Askariya dregur til sín sjítapílagríma hvað- anæva úr heiminum. Þar eru grafir ímansins Ali al-Hadi sem lést árið 868 og sonar hans Hassan al-Askari sem lést sex árum síðar. Þeir voru næstsíðastir í röð 12 helgra ímana sjítamúslíma en 12. ímaninn, Mo- hammed al-Mahdri sem var sonur Askaris, er talinn hafi falið sig í kjallara helgidómsins og muni birt- ast þar á dómsdegi. Falinn ijársjóður! Þjóðminjasain fslands á Sainanótt Föstuðaðlnn 24. lehróar tl. 19 - 24 Kl. 20.00 og 22.30 Leikrænn upplestur. Rúna K. Tetzschner sérfræðingur les upp úr skemmtilegum og sérstæðum svörum úr þjóðháttasafni. Opnunartími: Alla daga nema mánudagakl. 11-17 www.thjodminjasafn.is Suöurgötu 41 þiöðminiasafn Isiands 101 Reykjavík NationalMuseumoflceland Sími: 530 2200 Rettað yfir meintum liðsmönnum A1 Qaeda Réttarhöld hófust í gær yfir 17 mönnum í Jemen sem ákærðir eru fyrir að hafa skipulagt árásir gegn bandarískum skotmörkum í landinu samkvæmt skipunum frá Abu Musab al-Zarqawi, leið- toga A1 Qaeda samtakanna í írak. Saksóknari sagði að sakborning- arnir hefðu haft í hyggju að gera árásirnar til að hefna fyrir morð bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) á háttsettum liðsmanni A1 Qaeda árið 2002. Saksóknarinn sagði jafnframt að mennirnir hefðu farið til íraks og komið aftur til Jemen árið 2004 til að hrinda áætlunum sínum í framkvæmd að skipan Zarqawis. Sakborningar viðurkenndu að hafa Þrír sakborningar af 17 sem ákæröir eru fyrir aö hafa skipulagt hryðjuverkaárásir í Jemen við réttarhöld sem hófust yfir þeim í Sanaa í gær. farið til Iraks en neituðu því að þeir hefðu haft í hyggju árásir í Jemen. „Við eigum í vandræðum með Bandaríkin í írak en ekki í Jemen,“ sagði Ali al-Sayyad al-Harithi, leið- togi hópsins. Hann sagðist hafa fengið þjálfun í gerð sprengjuefnis í írak en hefði yfirgefið landið eftir að John Kerry, frambjóðandi demó- krata í forsetakosningum í Banda- ríkjunum árið 2004, hefði haft í hótunum við Jemen. „Ég vildi verja föðurland mitt,“ sagði hann. Réttarhöldum var frestað til mið- vikudags í næstu viku. Sakborningarnir voru í hópi 19 manns sem handteknir voru af jem- enskum öryggissveitum í síðasta mánuði vegna gruns um að þeir hefðu skipulagt hryðjuverkaárásir. Tveir þeirra voru látnir lausir vegna skorts á sönnunargögnum. GARÐHEIMAR heimur heillandi u hluta og hugmynda Stekkjarbakka 6 - Sími 540 3300 www.gardheimar.is - gardheimar@gardheimar.is

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.