blaðið - 23.02.2006, Síða 17
blaöið FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006
FERÐALÖG I 17
Hvemig
er best að
velja sólar-
Iandaferð?
Nú ersá tími ársins þegar bœklingarfráferð-
askifstofum streyma inn um lúgurnar ogfólk
lœtur sig dreyma um sandala og „quick-tan“
brúsa meðan veturinn baular enn á íslandi.
Fyrir þau sem stefna á sólar-
strendur eða til framandi landa
er margt sem þarf að hafa í
huga og ýmislegt sem gott er að
vita áður en miðinn er keyptur.
Blaðið hafði samband við Helga
Eysteinsson, sölu og markaðs-
stjóra hjá Úrval Útsýn og bað
hann um góðar ráðleggingar
fyrir fólk sem situr og flettir
bæklingum við eldhúsborðið.
„Best er að kynna sér framboð
ferðaskrifstofanna með því að
skoða vefsíður þeirra mjög vel og
vita um leið hverju maður er að
leita að,“ segir Helgi og tekur um
leið vel í ráðgjafahlutverkið.
„Fólk má nefnilega ekki einblína
bara á verðið, heldur þarf það líka
að vita hvernig frí það langar til
að fara í og hvaða þörfum það
vill láta mæta. Fólk hefur ólíkan
smekk og ólíkar þarfir þannig
að ef þetta er vel skilgreint þá má
gera ráð fyrir því að fríið verði
gott. Ég held að margir brenni sig
á því að hugsa fyrst og fremst um
ódýrustu leiðina.
Þá kaupir fólk sér stundum ferð
og gerir sjálfkrafa væntingar um
að viss atriði verði til staðar án
þess að nein loforð hafi verið gefin
um slíkt. Svo verður það fyrir von-
brigðum þegar út er komið.“
Finnurðu fyrir því að íslenskar
ferðaskrifstofur séu komnar í
samkeppni við erlendar ferða-
skrifstofur á Netinu. Svona i
kjölfar þess að nú er flogið til
London og Kaupmannahafnar
oft á dag?
„Nei, satt best að segja ekki.
Ástæðan fyrir því er eflaust sú
að þetta beina leiguflug héðan
skiptir fólk máli. Svo er verðið
líka orðið svo hagstætt. Það er
mikil samkeppni á markaðnum
og þess vegna lækkar þetta eftir
því. Það er kannski helst að fólk
fái ódýrari ferðir ef það bókar
með örstuttum fyrirvara, en um
leið gleymist það að kannski eru
líka ódýr tilboð hérna heima ef fyr-
irvarinn er stuttur. Maður hefur
meira fundið fyrir þessu í orði en
á borði,“ segir Helgi.
Fólk skipuleggur eigin ferðir
Eru einhverjar aðrar breytingar
ígangi?
„Já, við höfum orðið vör við að
fólk er farið að skipuleggja fríin
sín sjálft og alveg á eigin vegum
og notar þá Netið til þess. Þannig
bóka sumir flug út, ibúð, hús eða
hótel, bílaleigubíla og svo fram-
vegis, án þess að hafa nokkurn
tíma milligöngu eða samskipti
við söluaðila eða ferðaskrifstofur.
Þetta er vitað mál hjá öllum sem
eru með svona skipulagðar ferðir
og við erum eftir fremsta megni
að reyna að bregðast við með
aukinni þjónustu," segir Helgi að
lokum.
margret@bladid.net