blaðið - 23.02.2006, Side 34
34 I KVIKMYNDIR
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 blaAÍA
smtinn^Bló
UNDERWORLD
kl. 5.45,8 og 10.20 B.1.16 Ara
ZATHURA m/Mensku tall
kl. 3.40 og 5.50 B.1.10 Ara
ZATHURA m/ensku taH
kl.5.45og8 bj.ioára
WALKTHE UNE
k).5,8og10.45 bj. 12Ara
WALK THE UNEILÚXUS
kl. 5,8 og 10.45 BJ.12ARA
RJN WITH DICK AND JANE
kl. 3.40,8 og 10.10
BROKEBACK MOUNTAIN
kl. 10.15 bi 12 Ara
CHEAPER BYTEDOZEN2
kl. 3.45
REGnBOGinn
TRANSAMERICA
kl. 5.45,8 og 10.15 B.1.16ARA
MRS. HENDERSON
kl. 5.45,8 og 10.15
WALKTHE UNE
kl. 6 og 9 B.1.12ARA
BR0KEBACK M0UNTAIN
kl. 6og9 b.l 12ARA
RNAL DESTINATION 3
KI.6,8og 10.20 B.i.16Ara
GOOD NIGHT, AND GOOD LUCK
kl. 6,8og 10
ZATHURA m/tslenaku tati
kl. 6 B.I. ioAra
MEMOIRS OF GEISHA
kJ. 10
íitWSSSSl
UNDERWORLD
kl. 8 og 10 B.l. 16ARA
ZATHURA
kl. 6 B.1.10ARA
FINAL DESTINATION
W.8og10B.U6ARA
WALKTHEUNE
kl. 5.40BI. 12ABA SfÐASTA SÝMNG
TtHMKE
Uppselt á 18
mínútum
í gær hófst miðasala á nokkra
af þeim 15 tónleikum sem Pink
Floydarinn Roger Waters mun
halda í sumar. Ljóst er að áhug-
inn er mikill og seldist t.a.m.
upp á tónleika hans í Noregi á
einungis 18 mínútum. í Berlín
var nánast uppselt klukkustund
eítir að miðasala opnaði. Eins
og flestir vita verða einir af
þessum 15 tónleikum i Egils-
höll. Ekki er ákveðið hvenær
miðasala hefst hér á íslandi en
það verður tilkynnt fljótlega.
Benni á
Grand Rokki
Benni Hemm Hemm heldur
tónleika á Grand rokki í kvöld
og eru það fyrstu tónleikar sveit-
arinnar eftir tveggja mánaða
hlé. Frá því sveitin lék síðast á
tónleikum hefur hún verið valin
Bjartasta vonin á íslensku tónlist-
arverðlaununum auk þess sem
breiðskífa sveitarinnar var valin
Hljómplata ársins í flokknum
Ýmis tónlist. Sveitinni til halds
og trausts verður húsvíski trúba-
dorinn Þórir. Lofað er óvæntum
gestum og nýjum lögum. Húsið
opnar kliddcan 22 og verður
miðaverð 1.000 krónur en
innifalið í miðaverði er „einn
svellkaldur hressingardrykkur".
Mðasala á
rokktöfra
Miðasala á sýninguna Curtis
Adams - Töfrar sem rokka hefst
stundvíslega kl. 10.00 í dag á
vefsíðunni www.midi.is og versl-
unum Skífúnnar í Reykjavík, BT
á Akureyri og Selfossi og á www.
event.is. Salnum verður skipt í
tvö svæði. Verð á A svæði er 3.900
krónur en 2.900 krónur kostar á
B svæðið. Fyrir 16 ára og yngri er
verðið þó ekki nema 1.900 krónur.
Sæti eru númeruð og ofan á öll
verð leggst 220 króna miðagjald.
Sigur Rós á
Hróaskeldu
Hljómsveitin Sigur Rós bættist í
gær á ört vaxandi lista Hróa-
skeldu hátíðarinnar í sumar.
Hljómsveitirnar The Streets,
KILLL, Lady Sovereign og
WhoMadeWho bættust
einnig við listann í gær.
Hvað er að gerast?
Blaðið vill endllega fjalla um atburði
líðandi stundar. Sendu okkur línu á
gerast@bladid.net
Sýnt á NASA við Austurvöll
Föstudagur 24. febrúar - Örfá sæti laus
Laugardagur 25. febrúar - t )r fá sæti laus
Föstudagur 3. mars - Úrfá sæti laus
Föstudagur 10. mars - Laus sæti
Föstudagur 17. mars - Laus sætn
Miðasala í síma 575 1550,
verslunum Skífunnar og www.midi.is
atli@bladid.net
Dr. Spock, Jakobínarína og
Trabant sigurstranglegar
Tónlistarverðlaun XFM verða í
afhent í kvöld við hátíðlega athöfn
í Austurbæ. íslensk rokktónlist
verður að sjálfsögðu í aðalhlut-
verki og munu hljómsveitirnar
Trabant, Dr. Spock, Jakobínarína,
Brain Police og Jeff Who? troða
upp á milli afhendinga verðlauna.
Blaðið fékk tónlistarspekingana
Hákon Hrafn Sigurðsson, sem á
vefsíðuna Rokk.is, Frey Bjarnason,
blaðamann á Fréttablaðinu og Sig-
valda Jónsson, eða Valla, eiganda vef-
síðunnar Dordingull.com til að spá í
spilin ásamt Agnari Burgess, blaða-
manni Blaðsins.
Plata ársins
Skiptar skoðanir voru um val á plötu
ársins en vefstjórarnir tveir, Hákon
og Valli sammála um að Dr. Phil
með Dr. Spock bæri af þeim sem
tilnefndar voru; „Mikill kraftur og
hressleiki einkennir plötuna, söng-
dúett með Ótarri virðist alltaf virka,“
sagði Hákon um plötuna en honum
fannst vanta tilnefningar í flokkinn.
Valla fannst Dr. Phil bæði fjölbreytt
og skemmtileg.
Freyr var hins vegar á þeirri
skoðun að Emotional með Trabant
væri plata ársins. „Skemmtileg plata
þar sem spilagleðin er í fyrirrúmi,"
sagði Freyr en Agnar taldi baráttuna
standa á milli tveggja ofangreindra
platna og Death Before Disco með
JeffWho?
Nýliðar ársins
Það var nánast einróma spá að ung-
lingarnir í hljómsveitinni Jakobín-
arína verði valdir nýliðar ársins.
„Þeir eru bráðskemmtilegir á sviði
og kunna að semja grípandi lög.“
sagði Freyr og Hákon var sammála:
„Jakobínarína er besta bandið sem
kom fram á árinu og hafa sýnt snilld-
arlegar framfarir en Benny Crespos
Gang hefðu getað fengið titilinn
Það er ekki að ástæðu lausu að Dr. Spock séu tilnefndir sem besta tónleikabandið.
2004 fyrir frábært demo það árið,“
sagði Hákon. Agnar var einnig á því
að enginn gæti keppt við peyjana.
Valli nefndi að eðlilegt væri ef The
Viking Giant Show myndi taka þetta
vegna mikillar spilunar á XFM á síð-
asta ári en telur þó að Jakobínarína
verði fyrir valinu.
Tónleikaband ársins
Menn voru ekki jafn sammála um
þennan flokk og um þann sem á
undan kom. Freyr sagði Trabant tón-
leikaband ársins: „Þeir leggja álíka
mikið upp úr sviðsframkomunni og
tónlistinni."
Hákon var á því að Jakobínarína
ætti titilinn skilinn en Valli var á
öðru máli: „Það er án efa skemmti-
legast að sjá Dr. Spock á sviði en
tónleikaband ársins er að mínu mati
Kimono, enda hljómsveitin einstök
að öllu leyti.“
Agnar sagði Dr. Spock vera minnst
aðlaðandi tónleikaband landsins en
jafnframt ein sú skemmtilegasta.
„Hins vegar þekkja allir sem mætt
hafa á Trabant tónleika valdið sem
hljómsveitin hefur yfir áhorfendum.“
Bjartasta vonin
I þessum flokki kemur keppnin til
með að vera einna hörðust að mati
Agnars, enda er þessi flokkur nokk-
urs konar val á hljómsveit ársins.
Rassi Prump og félagar íTrabant hélt nokkra frábæra tónleika á Nasa á síðasta ári.
Gítarleikari Jakobínurínu stillir sér ef til
vill upp á þennan hátt í kvöld.
„Fjórar af fimm tilnefndum sveitum
koma sterklega til greina en ég á erf-
itt með að gera upp á milli þeirra,“
sagði Agnar en Freyr var viss í sinni
sök og spáði Ampop sigri; „Þeir gætu
gert góða hluti haldi þeir áfram á
sömu braut.“
Valli taldi Dr. Spock sigurstrang-
legasta en Hákon taldi hæpið að velja
björtustu vonina af þessum böndum
þar sem þau væru flest búin að starfa
nokkuð lengi en náði þó að gera upp
hug sinn; „Mitt val er Dikta þar sem
ég tel að þeir eigi mest inni.“
Verðlaun fyrir lag ársins, heima-
síðu ársins og myndband ársins
verða einnig afhent í kvöld. Hlust-
endur XFM hafa verið duglegir við
að kjósa á xfm.is og er Matti, dag-
skrárstjóri XFM gríðarlega ánægður
með viðtökurnar.
Miðar verða gefnir á hátíðina fram
eftir degi í dag og munu þáttastjórn-
endur láta vita hvenær hægt verður
að hringja inn og næla sér í eins og
eitt stykki.
Falinn Ijársjóður!
Þjóðminjasafn fslands á Safnanótt
Fðstudaginn 24. febrúar kl. 19 - 24
Kl. 20.30 og 22.00
Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavöröur leiðir gesti um
sali Þjóðminjasatnsins.
Opnunartími:
Alla daga nema
mánudaga kl. 11-17
www.thjodminjasafn.is
Suðurgötu 41
101 Reykjavík
Sími: 530 2200
IS
ÞJOÐMINJASAFN ÍSIANDS
National Museum of lceland