blaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 26

blaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 26
26 IHÖNNUN FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 blaðiö Falleg föt þurfa ekki að vera óþœgileg Verslunin Pjúra hefur skipt um nafn. Nú kallast hún KVK og erflutt í betra húsnœði að Laugavegi 27. íris Eggertsdóttir og Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir hafa frá því í júní 2003 framleitt og selt fatnað undir merkjunum Krúsilíus og Kow og selt í öðrum verslunum en sinni eigin. I apríl 2005 varð breyting þar á þegar þær opnuðu eigin verslun undir nafninu Pjúra- íslensk hönnun. I ársbyrjun urðu tímamót í versl- uninni þegar tveir af fyrri hönn- uðum Pjúra drógu sig úr samstarf- inu og héldu á vit annarra ævintýra en íris og Kolbrún héldu rekstrinum áfram. Þegar þeim bauðst húsnæði við Laugaveg 27 ákváðu þær að taka því og byrja kaupmennskuna af fullri alvöru, eins og Kolbrún orðar það. Þær fluttu af Ingólfstræti 8 og komu sér fyrir á Laugavegi. Hönnunarsérfræðingur Blaðsins sló á þráðinn til Kolbrúnar, spurði hana út í velgengnina og nýju búð- ina við Laugaveg. Hverjuþakkarðu velgengnina? „Ætli við eigum hana ekki því helst að þakka að við erum í ódýrari kantinum miðað við aðra íslenska hönnun. Svo erum við líka að gera fatnað sem hentar konum á öllum aldri en erum ekki bara með einn afmarkaðan markhóp. Fyrir utan þetta þá erum við ótrúlega duglegar og það er því að þakka líka. Duglegar og hæfileikaríkar ungar stúlkur,“ bætir Kolbrún við og skellir upp úr. Hvaðan koma hugmyndirnar? „Ég get nú bara talað út frá sjálfri mér, en í mínu tilfelli fæ ég aðallega hugmyndir ef ég sé falleg efni. Þá veit ég hvað mig langar til að gera úr þeim. Svo hefur maður alltaf augun opin fyrir því sem er að gerast í tísku- heiminum. íris er hins vegar mynd- listarkona og vinnur svolítið út frá því.“ Er eitthvað séríslenskt sem hefurhaft áhrifá sköpun ykkar? „Nei, égmyndi ekki segjaþað. Lopa- peysur og kraftgallar hafa ekki haft mikil áhrif á okkur fram til þessa. Eða... það eru reyndar flíspeysur núna í stað gömlu lopapeysunnar. Þær eru líka komnar í staðinn fyrir gamla krumpugallann þó að lopa- peysur séu svolítið í tísku þessa dagana. Við köllum þetta íslenska hönnun bara af því að við erum sjálfar fæddar á íslandi." Nú hafa íslendingar oft verið svolítið fastir í jarðlitunum. Eru fötin ykkar á litinn eins og Miðnesheiði? „Við höfum alveg rekið okkur á að Islendingar vilja helst forðast alla liti aðra en jarðliti, en við ætlum samt ekkert að gefast upp með það. Ætlunin er að framleiða áfram föt í l'allegum litum og það á sérstaklega vel við núna í sumar. Það er viðeig- andi á sumrin. En við en þjónum markaðnum samt alltaf áfram með okkar svarta dóti. Það er alltaf lang- vinsælast. Litagleði okkar þessa dag- ana einkennist helst af gylltu, vín- rauðu og túrkís.“ Eru þið að framleiða eitthvað af yfirhöfnum? „Nei, en þær eru á leiðinni. Við erum að framleiða undir merkinu KVK og hluti af línunni eru end- urhannaðar yfirhafnir, kápur og jakkar og fleira fínt.“ Áttu eitt tískumottó handa mér að lokum? „Maður þarf ekki að vera í óþægi- legum fötum til að vera fallegur: „Beauty is not pain“.“ margret@bladid. net Smelltu á músina og skelltu þér i tískuföt Á vefsíðunni www.netaporter.com er hcegt að kaupa alltþað nýjasta sem stóru hönnuðirnir og tískuhúsin hafa upp á að bjóða. Hver kannast ekki við að sitja á kaffihúsi, fletta tískublaði og sjá allt í einu flík sem „þú bara VERÐUR að eignast“. Svo kaup- irðu blaðið og skundar í Kringl- una en verður ekki fyrir neinu öðru en vonbrigðum af því að það eina sem þú finnur er léleg eftir- líking sem krumpast um axlirnar eða er ekki til í þinni stærð. Það er til lausn við þessu lúxus- vandamáli (sem er þó alveg jafn mikið vandamál þrátt fyrir það). Á Netinu er að finna stórgóða síðu sem heitir Net-a-Porter og þar er einfaldlega hægt að versla eftir hönnuðum. Hvort sem þú heldur upp á Alexander McQueen, Azzaro, Veru Wang, Jimmi Choo, Calvin Klein, Christian Laqroix eða hvern annan sem er - þá getur þú örugglega fundið eitthvað fallegt sem hæfir þínum „smag og behag“. Vefsíðan www.netaporter.com er á allan hátt þægileg í skoðun, en þú getur bæði verslað eftir hönnuðum, flett henni sem tíma- riti, skoðað skó og fylgihluti eða kannað hvað er í boði á útsölunni. Útsölurnar á síðunni eru oftar en ekki skynsamlegur valkostur þar sem sumar vörurnar geta verið í dýrari kantinum. Það eru þó ekki allir hönnuðirnir jafn dýrir því þarna má Iíka finna flottar flíkur sem fást ekki á íslandi en eru í viðráðanlegri verðflokkum. Að sama skapi getur þú verið viss um að þú sért að kaupa gæðavöru sem önnur hver kona er ekki að spóka sig í á sama tíma, en það vill stundum verða tilfellið í okkar litla samfélagi. margret@bladid. net ...og svo sveiflast taskan. Þessi íðilfagra leðurtaska frá Mulberry kostar sléttar 56.469 krónur á www.neta- porter.com Frú gullfiðrildi. Unaðs- legar bomsurfrá Anna Sui á litlar 53.656 krón- ur. Ef vinkonurnar eiga ekki eftir að stynja yfir þessum þá gera þær þaðaldrei. Allt er gott sem vel er gyllt. Þetta ótrúlega huggulega Ipod hulstur kostar 3.248 á Net-a- Porter. Falleg í bleiku. Hvaða dömu langar ekki til að mæta á fund, kaffihús eða í skólann með svona kjöltutölvutösku? Kostar aðeins 6.820 íslenskar krónur á www.netaporter. com

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.