blaðið - 02.03.2006, Page 37
blaöió FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006
DAGSKRÁI 37
«
4
LEIKKONA SLÆR
í GEGN
koIbrun@bladid.net
Einstaka sinnum horfi ég á spjallþætti Jay Leno. Leno
er fremur vingjarnlegur maður og þægilegur við hina
frægu gesti sína. Hann er hins vegar ekki góður spyrill
og yfirleitt er maður litlu sem engu nær um viðkomandi
gest. Frá þessu eru þó undantekningar. Sú sem ég man
best eftir er breska leikkonan Emma Thompson. Hún
fór á kostum. Það er ekki Leno að þakka heldur henni
sjálfri.
Það var beinlínis upplífgandi að hlusta á listakonu
sem er svo algjörlega á skjön við hina dæmigerðu anor-
exísku Hollywood-leikkonu. Thompson er greinilega
fluggáfuð, vel lesin og upplýst. Hún kann að segja sögur
og hefur auk þess frábært skopskyn. Þarna sat hún og
sagði sögur og gerði um leið hæfilegt grín að sjálfri sér.
Hún var beinlínis stórkostleg. Hún sýnist vera kona sem
brillerar í öllu - meira að segja í því sem er erfiðast af
öllu, sem er það að vera til.
Örsjaldan sér maður einstaklinga sem hafa þann
dýrmæta hæfileika að geta gert grín af sjálfum sér og þá
er eins og umhverfið verði óskaplega hissa. Ég held að
fólk sem hefur húmor fyrir sjálfu sér sé um leið víðsýnt
fólk. Og það er allt of lítið til af slíkum manneskjum.
Pólitík
„Pólitíkusar eru eins um allan heim. Þeir
lofa að byggja brú, jafnvel þótt engin sé
áin.“
Nikita Khrushchev, sovéskurstjórnmálamaður(1894- 1971)
Pennan dag...
...árið 1969 fór fram fyrsta tilraunaflug á Concorde flugvél. Litið var
á Concorde sem framtíðina í farþegaflutningum þar sem vélarnar náðu
rúmlega tvöföldum hljóðhraða í 60 þúsund feta hæð. Öllum Concorde
vélum var þó lagt eftir hræðilegt slys í París þar sem það sem talið er
hafa verið verksmiðjugalli varð til þess að 109 manns létu lífið.
EITTHVAÐ FYRIR...
.eiginmenn
Sjónvarpið,22.25Aðþrengdareiginkon-
ur (28:47) (Desperate Housewives)
Bandarísk þáttaröð um nágranna-
konur í úthverfi sem eru ekki allar
þar sem þær eru séðar. Aðalhlutverk
leika Teri Hatcher, Felicity Huffman,
Marcia Cross, Eva Longoria og Nico-
lette Sheridan. Atriði í þáttunum
eru ekki við hæfi barna.
Stöð 2,21.20 Nip/Tuck (8:15)
Einhverjir svakalegustu framhalds-
þættir sem gerðir hafa verið eru
orðnir ennþá svakalegri. Eins og
þeir muna glöggt sem sáu uppgjörið
geggjaða í annarri þáttaröð þá var
hið flókna og úrky njaða líf lýtalækn-
anna Sean og Christian orðið flókn-
ara en nokkru sinni áður - og er þá
mikið sagt.
Norðrið mœtir suðri
í kvöld etja lið Menntaskólans í Reykjavík og Menntaskólans á Akureyri kappi íspurningakeppniframhaldsskólanna, Gettu
betur. Lið MA er vœntanlegt með tæplega 350 manna klapplið í sex langferðabílum að norðan síðdegis í dag. Viðfengum MR-
inga til að svara nokkrum spurningum. Keppnin ferfram í beinni útsendingu í sal Sjónvarpsins að Fiskislóð í Reykjavík.
Hverjir eru í liðinu?
Liðið skipa Hilmar Þorsteinsson,
5. bekk fornmálabrautar, Magnús
Þorlákur Lúðvíksson, 4. bekk nátt-
úrufræðibrautar og Björn Reynir
Halldórsson, 3. bekk málabrautar.
Hvaðan komiðþið?
Við komum allir þrír úr Vest-
urbænum sem hefur lengi verið
gjöfull fyrir spurningalið MR þó
þetta sé líklega í fyrsta sinn sem
allir þrír liðsmenn koma þaðan.
Hafið þið keppt áður í Gettu betur?
Hilmar var í liðinu í fyrra en
hinir tveir eru nýliðar. Þeir eru þó
sjóaðir í svona keppnum því þeir
voru saman í sigurliði Hagaskóla
í spurningakeppni grunnskólanna
árið 2003.
Er einhver taugatitringur fyrir sjón-
varpsútsendinguna?
Við hlökkum aðallega til keppn-
innar og erum bara vel stemmdir,
ekkert stress í gangi.
Hvernig metið þið möguleika ykk-
ar?
Okkur gekk vel i útvarpinu og
við höfum æft af krafti svo við telj-
um möguleika okkar góða þó MA-
ingar séu með gott lið.
Hvernig búið þið ykkur undir
keppni sem þessa?
Dagana fyrir keppni förum við
vel yfir það efni sem við höfum
verið að lesa í vetur en á keppnis-
dag tökum við því rólega með þjálf-
urunum og mætum góðir á því í
myndverið.
Er einhver einn betri en annar í
sumu (hverju)?
Jájá, auðvitað, við höfum nátt-
úrlega mismunandi áhugamál.
Magnús er t.d. séfróður um Suður-
skautslandið og Björn Reynir veit
allt um ættfræði. Sérsvið Hilmars
eru hins vegar frímerki og danskir
hönnuðir.
Eitthvað sem þið viljið koma á
framfœri?
Gleymið þessum Meistara, Gettu
betur er miklu skemmtilegra.
Gettu betur-lið MR
Gettu betur-lið MA
Frá vinstri: Tryggvi Páll Tryggvason, Magni Þór Óskarsson, Ásgeir Berg Matthíasson.
Þeir sitja við verk Steinunnar Þórarinsdóttur, Tilveru, sem stendur fyrir utan MA.