blaðið - 08.03.2006, Blaðsíða 1
Farðu þér hœgtí
3...þú hefur alla helgina
'dagg helgi, ótakmarkaður akstur.
Verð frá kr 4.067 dagurinn.
rbcars.is
^ Sími: 581 1186
Sérblað um
vinnuvélar fylgir
Blaðinu í dag
Frjálst,
óháð &
ókeypis!
55. tölublaö 2. árgangur
miðvikudagur
8. mars 2006
Deilt um
„charangoa
Samskipti Bólivíu og Chile,
tveggja nágrannaríkja í Róm-
önsku-Ameriku, hafa löngum
verið með stirðara móti.
Þjóðirnar deila m.a. um landa-
mæri en nú hefur nýtt ágrein-
ingsefni skotið upp kollinum.
Á dögunum hélt rokkhljóm-
sveitin U2 tónleika í Santiago,
höfuðborg Chile. Við það
tækifæri færði Ricardo Lagos,
forseti, söngvara hljómsveit-
arinnar, Bono, að gjöf forláta
gítar. Þar ræðir um svokallaðan
„charango", fimm strengja gítar,
sem alþýða manna á Andes-
svæðinu hefur löngum leikið á.
Fær Bachelet gítar?
Nú hafa ráðherrar í rikisstjórn
Bólivíu, tónlistarmenn og álits-
gjafar í fjölmiðlum mótmælt
gjöfinni harðlega með þeim
rökum að „charangoinn" sé
bólivískt hljóðfæri. „Bólivíu-
menn eiga charangoinn,“ sagði
í fýrirsögn leiðara dagblaðs-
ins La Razón („Skynsemin").
Var Evo Morales, nýkjörinn
forseti Bólivíu, hvattur til
að færa Michelle Bachelet
„charango" að gjöf á laugardag
en þá sver hún embættiseið
forseta Chile, fyrst kvenna.
Lagos, Chileforseti, hefur
varið þá ákvörðun sína að gefa
Bono hljóðfærið með vísun
til þess að íbúar á Andes-
svæðinu, sem nær inn í Chile,
hafi þróað „charangoinn".
Bólivía glataði aðgangi
að Kyrrahafinu í stríði við
nágranna sína á 19. öld. Frá því
það gerðist hefur verið heldur
fátt með nágrannaþjóðunum.
Þær hafa t.a.m. ekki átt formleg
diplómatísk samskipti í tæp
30 ár. Líkur eru þó taldar á því
að beggja vegna landamær-
anna sé nú meiri sáttahugur í
ráðamönnum en oftast áður.
Höfuðborgarsvæðið
meðallestur
67,3
53,8 46,9
«0
-2 -Q
c 3 :
•s
0
£ co
16,6
Samkv. fjölmiðlakönnun Gallup janúar 2006
.„|rjrTl
BlaðiÖ/Steinar Hugi
Borgin fær andlitslyftingu
Nú standa yfir endurbætur á einu ástsælasta húsi borgarinnar, Hótel Borg. Eins og sjá má er útsýniö ekki af lakara taginu úr tumi Borgarinnar sem Jóhannes Jósepsson lét byggja
áriö 1930.
Frumvarpið
gengur of langt
Israelar hóta veröandi
forsætisráöherra Palestínu
Varnarmálaráðherra ísraels skýrði
frá því í gær að leiðtogar Hamas-
hreyfingarinnar, þ. á. m. verðandi
forsætisráðherra Palestínumanna,
myndu teljast lögmæt skotmörk
hæfu íslamskir vígamenn á ný
árásir á ísraela.
Ráðherrann, Shaul Mofaz, lét
þessi orð falla skömmu eftir að
fréttir höfðu borist af þvf að ísraelar
hefðu drepið tvo vígamenn og þrjá
óbreytta borgara, þar af tvö börn, í
loftárás á Gaza-borg.
Hamas-hreyfingin vann stórsigur
í þingkosningum Palestínumanna
í janúarmánuði og vinnur nú að
myndun nýrrar stjórnar. Hreyf-
ingin hefur á stefnuskrá sinni að
þurrka út ríki gyðinga. Hamas sætir
nú þrýstingi á alþjóðavettvangi um
að lýsa yfir því að horfið hafi verið
frá þessari stefnu. Leiðtogar hreyf-
ingarinnar hafa ekki viljað verða
við þeirri kröfu en hafa lýst yfir því
að áfram sé í gildi yfirlýsing þess
efnis að sjálfsmorðsárásir verði
ekki gerðar næsta árið.
Mofaz sagði í viðtali við útvarp
hersins f fsrael að sú stefna stjórn-
valda að ráða af dögum þá leiðtoga
Ismail Haniyeh
hernaðararms Hamas sem taldir
eru sérstök ógn við öryggi ríkisins
hefði skilað tilætluðum árangri.
Þeirri stefnu yrði áfram fylgt.
„Enginn verður óhultur," sagði ráð-
herrann. Aðspurður hvort orð þessi
ættu einnig við um Hamas-leiðtog-
ann Ismail Haniyeh, sem tilnefndur
hefur verið forsætisráðherra Palest-
ínu, sagði Mofaz: „Ef hryðjuverka-
hreyfingin Hamas, sem vill ekki
viðurkenna þá samninga sem við
höfum gert við Palestínumenn,
reynist ófáanleg til að hafna ofbeldi
og setur okkur í þá stöðu að þurfa
að bregðast við hreyfingu hryðju-
verkamanna verður enginn óhultur.
Þetta á ekki aðeins við um Ismail
Haniyeh. Enginn verður óhultur."
Salah al-Bardawil, talsmaður
Hamas, fordæmdi þessi ummæli
ráðherrans. Sagði hann þau til
marks um „blóðugt og ómann-
eskjulegt eðli hins zíoníska óvinar".
Hann bætti við að Hamas leitaði
ekki náðar af hálfu ísraela. Hamas
og ísraelar ættu í átökum. „Þeir
sem sýna mesta festu verða þeir
sem fara með sigur af hólmi,“ sagði
al-Badawil.
Ólga fer vaxandi í Palestínu í
kjölfar sigurs Hamas í þingkosn-
ingunum. Á mánudag sviptu þing-
menn hreyfingarinnar Mahmoud
Abbas, forseta, ákveðnum völdum
sem Fatah-hreyfing hans hafði sam-
þykkt að veita honum þegar þing
Palestínumanna kom síðast saman.
Þingmenn Fatah brugðust við þessu
með því að ganga af þingfundi.
Fatah hefur gefið til kynna að full-
trúar hreyfingarinnar hyggist jafn-
vel hundsa frekara þinghald.
Mahmoud Abbas var kjörinn
forseti Palestínu í janúarmánuði í
fyrra og á þrjú ár eftir í embætti.
Framkvæmdastjóri Landssam-
bands æskulýðsfélaga segir í viðtali
við Blaðið að frumvarp til nýrra
æskulýðslaga gangi of langt þegar
kemur að því hverjum sé heimilt að
starfa með börnum og ungu fólki.
í frumvarpinu er þdijusem hlotið
hafa fíkniefnadóm gert ókleift að
taka þátt í æskulýðsstarfi. Formað-
urinn bendir á að algengt sé að
fyrrum fíklar taki þátt í forvarnar-
starfi þar sem þeir miðla af reynslu
sinni til barna og unglinga. Verði
frumvarpið samþykkt í óbreyttri
mynd verði hurðinni skellt á þetta
fólk.
Sögusagnir
Ásta Möller, þingmaður og ein
þeirra sem unnu að frumvarpinu,
segir að ákvæðið sé sett inn vegna
þess að dæmi séu um að fíkniefna-
salar sækist eftir að starfa að æsku-
lýðsmálum með það að markmiði
að komast nærri unga fólkinu. For-
maðurinn segist hafa heyrt orðróm
á þessum nótum en að hann þekki
hins vegar engin dæmi þess að þetta
hafi átt sér stað.
sjA nAnar A BLAÐSÍÐU 4