blaðið - 15.03.2006, Qupperneq 12
12 I HEZMILI
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006 blaöiö
Rétta lýsingin gerir gœfumuninn
Rétt lýsing á heimili getur gert meira fyrir útlitið heldur en málning,
veggfóður eða glæsileg húsgögn. Með réttri birtu er hægt að stækka og
minnka herbergi, leggja áherslu á það fallega en forðast það miður fal-
lega og svo framvegis. Auk þess getur ákveðin birta ákvarðað stemning-
una sem myndast, hvort heldur sem er á hlýlegu fjölskyldukvöldi eða í
villtri veislu sem stendur fram á nótt.
99.....................
Með því að gera tilraunir
með mismunandi birtustig
getur stofan breyst frá ró-
legum og rómantískum stað
í orkufullan og fjörugan stað.
Skapaðu bjarta en hlýja birtu
með því að leggja áherslu
á sum Ijós fram yfir önnur.
Endurkastaðu birtu um herbergið
Þegar haldið er teiti, matarboð eða
jafnvel afmæli þá á birtan stóran
þátt í því að skapa stemningu. Með
því að gera
tilraunir með
mismunandi
birtustig getur
stofan breyst
frá rólegum
og róman-
tiskum stað
í orkufullan
og fjörugan
stað. Skapaðu
bjarta en hlýja
birtu með
því að leggja
áherslu á sum ....................
Ijós fram yfir
önnur. End-
urkastandi fletir, eins og spegill,
getur verið notaður til að endur-
kasta birtu um herbergið. Hægt er
að nýta kristalla, demanta, spegla-
kúlur og fleira til að gera stemning-
una enn sparilegri. Leggðu áherslu
á ákveðna hluti í stofunni, eins og
arinn eða fallegt málverk. Vefðu ljós-
aseríu um þurrkuð blóm eða jafnvel
gluggakistur.
Huggulegur garður með Ijósum
Það fer vitanlega eftir tilefninu hve
mikið af ljósum er notað og hvort
þau séu marglituð eða ekki. Ef
herbergið er stórt með háu lofti er
hægt að gera það heimilislegra með
mörgum litlum lömpum, annað
hvort í sitt hvoru lagi eða saman.
Einnig er hægt að leika sér með
skugga og mynda jafnvel mynstur á
veggjunum. I veislum er alltafhópur
fólks sem stendur úti, jafnvel þó
kalt sé. Ef þú ert með lítið pláss inni
íhugaðu þá að
leigja þér tjald,
gashitara og
annað í þeim
dúr. Gerðu
garðinnhuggu-
legri með því
að setja seríur
á gróðurinn
eða jafnvel
skreyta hann
með kertum.
Jafnvel þótt
það sé ekki
• ••........ á dagskrá að
vera úti þá
geturþaðsamt
myndað skemmtilega stemningu að
hafa vel lýstan garð.
Náttúruleg lýsing
Til að fá sem mest úr náttúrlegu lýs-
ingunni heima fyrir þarftu að vita
hvernig ber að nota hana. Hugsaðu
út í það hvað hentar hverju herbergi
best, ekki festa þig í því til hvers her-
bergið er ætlað. Hægt er að hámarka
náttúrlega birtu á marga vegu, til
dæmis er hægt að hengja spegla upp
andspænis gluggum. Þeir sem vilja
hámarka náttúrulega lýsingu ættu
líka að hafa sem minnst í gluggum
og forðast íburðamiklar gardínur.
Auk þess þarf að klippa tré og
gróður í garðinum reglulega svo
hann skyggi ekki á gluggana.
Vertu dugleg aö nýta aðra lampa sem og Ijósaseríur og kerti alla daga. Það er ekki
nauðsynlegt að nota slíkt einungis við hátíðleg tækifæri. Önnur Ijós gefa herberginu
vídd og hlýju auk þess sem hægt er að mynda skugga og leggja áherslu á uppáhaldið í
herberginu.
Ekki gleyma neinul
Oft er það þannig að það er eitt
ljós í hverju herbergi sem er notað
helst. Þetta er þá oftar en ekki loft-
ljósið. Jafnvel þó herbergið sé fullt af
kertum, lömpum og veggljósum þá
vilja þau oft gleymast. Ef einungis
er kveikt á loftljósinu er birtan í
herberginu litlaus, flöt og leiðinleg.
Nýttu aðra lampa sem og ljósaseríur
og kerti alla daga. Það er ekki nauð-
synlegt að nota slíkt einungis við há-
tíðleg tækifæri. Önnur ljós gefa her-
berginu vídd og hlýju auk þess sem
hægt er að mynda skugga og leggja
áherslu á uppáhaldið í herberginu.
Undir skápa má einnig setja ljós
enda skapar það mjög skemmtilega
birtu á svæði sem annars er dökkt
og einskis nýtt. Ofan á bókaskápa
má kaupa lítill ljós sem lýsa upp
helstu dægurefni fjölskyldunnar og
gera heimilið þar með hlýlegra.
Vandaðu valið á vinnuljósum
Þeir sem vinna heima þurfa líka
gott vinnuljós auk náttúrulegrar lýs-
ingar. Forðastu að setja skrifborðið
þitt við gluggann því þá gæti birtan
verið of mikil, í um í metra fjarlægð.
Oft eru nokkur vinnuljós á heim-
ilum enda eru þau notuð við vinnu
á tölvu, við eldamennsku, við sauma-
skap og svo mætti lengi telja. Vandið
valið á vinnuljósum því þau auð-
velda vinnuna ef vel er valið. Peran í
vinnuljós verður að vera sterkari en
aðrar perur í herberginu svo vel sé
hægt að sjá til vinnu. Komdu lamp-
anum fyrir til hliðar við þig en pass-
aðu þig á því að vinna ekki í þínum
eigin skugga. Ljósgeislinn á að falla
á vinnusvæðið þitt en ekki að endur-
speglast á tölvuskjánum.
svanhvit@bladid.net
Gardínuþrif einu sinni
Þrátt fyrir að gömiu góðu vor-
hreingerningarnar, þar sem hús-
mæður bókstaflega sótthreinsuðu
híbýli sín, séu á undanhaldi þá
eru margir sem vilja þrífa aðeins
betur í kringum sig á vorin. Flestir
einblína á gluggana og þrífa gard-
ínur og gler sérstaklega vel svo
vorsólin eigi greiðan aðgang að
heimilisfólkinu. Það er líka af sem
áður var að margir voru með efnisg-
ardínur sem var einfaldlega hent í
þvottavélina.
í dag eru til margs konar gardínur
og hverja og eina tegund þarf að þvo
á sérstakan hátt. Bjarney Magnús-
dóttir í Nýju tæknihreinsuninni á
Selfossi segist þrífa allar gerðir gard-
ína, hvort heldur sem er sólarfilmur,
strimlagardínur eða rimlagardínur.
Bjarney talar um að það sé misjafnt
hvort fólk geti þvegið gardínurnar
heima, allt fer það eftir gerð gardín-
unnar og aðstöðu heima fyrir.
„Sólarfilman er glerfilma og það
getur verið erfitt að þrífa hana. Það
þýðir lítið að þrífa hana með rúðu-
úðu eða öðru slíku efni því það skilur
alltaf eitthvað eftir sig. Við notum sér-
stakt efni á filmuna.“
Taka niður og setja upp gardínur
Bjarney segir að annað gildi með sól-
argardínurnar því það sé tiltölulega
auðvelt að þrífa þær. „Þær eru bara
þvegnar með sápuvatni og eins er auð-
velt að þrifa plíseraðar gardínur. Ef að-
staðan er góð þá eru þær þvegnar upp
úr volgu vatni.“
Bjarney talar um að það sé misjafnt
hvort viðskiptavinurinn vilji sjálfur
taka niður gardínurnar eða fá íyrir-
tæki til að gera það. „Ef fólk óskar
eftir því þá tökum við gardínur niður,
þrífum þær og hengjum þær síðan
upp aftur. Það er mjög algengt að fólk
vilji ekkert standa í þessu sjálft og fær
fólk í þetta. Mörgum finnst það vera
kostur að þurfa ekki að taka gardínur
niður og drösla þeim út í bíl, sérstak-
lega ef þetta eru stórar gardínur."
Rimlagardínur geta eyðilagt baðið
Bjarney segir það alltaf aukast að
fólk kjósi að fara með rimlagardínur
í hreinsun. „Með árunum er fólk
hætt að koma nálægt þessari hlið
þrifanna. Þó þú sért með rimlagard-
ínur þá er það ekki einfalt að henda
Glæsilegt úrval
Sisal og Kókos
gólfteppa
Heimilisgótfdúkar
Tilboðsverð
frá kr. 890 á m2
PLastparket
Eik, beiki, hlynur, kirsuber
Tilboðsverð kr. 990 á m2
Fullt verð kr. 1.190 átrt2
Stigateppi
sterk og létt í þrifum
GOLFBUNAÐUR
KJARAN EHF • SlÐUMÚL114 • 108 REYKJAVlK
SÍMI 510 5510 • kjaran.lt
OPIÐ VIRKA DAGA KL.8-18.
I
á ári
„Mörgum finnst það vera kostur að þurfa ekki að taka gardínur niður og drösla þeim út í
bíl, sérstaklega ef þetta eru stórar gardínur."
þeim í baðkarið og þrífa þær þar.
Með því geturðu bæði eyðilagt gard-
ínurnar og baðkarið. Rimlagardínur
úr áli skemma til að mynda húðina á
baðkarinu auk þess sem margir nota
sterk efni á gardínurnar og þær þola
það ekki“.
Hvað viðargardínur varðar segir
Bjarney að þær séu meðhöndlaðar á
sérstakan hátt.
„Við þvoum ekki viðinn heldur
bónum hann enda bólgnar viðurinn
upp og verður ljótur af vatninu. Við
handhreinsum viðargardínur og
bónum þær. Það hefur gefið mjög
góða raun og gardínurnar verða sér-
staklega fallegar," segir Bjarney og
bætir við að þau fái allar gerðir viðarg-
ardína, hvort sem þær séu í ódýrari
kantinum eða dýrar.
„Fólk ætti að hafa það fyrir reglu
að þrífa gardínurnar einu sinni á
ári, sama hvernig gardínur það eru.
Rimlagardínur þarf að þrífa mjög vel
einu sinni á ári en þess á milli er nægi-
legt að halda þeim við. Það sest mjög
mikið á rimlana og því þarf reglulega
að þurrka af þeim eða ryksuga.
svanhvit@bladid.net