blaðið - 15.03.2006, Síða 15
í gegnum tíðina hafa (slendingar
fullkomnað hátíðarmatinn með
ávöxtum frá Del Monte.
*
Veldu gœði, peldu
í)el Monte
blaóió
Ferming
Hjálmar
Jónsson
Dómkirkju-
prestur
Sætt og
stelpu-
legt hár
Bloóid/SteinarHugi
Helgi Valur segir eðlilegt að krakkar vilji vera flottir á fermingadaginn
Flott ferm-
ingarföt fyr-
ir krakka
Fermingafrœðslan mesta snilld
Trúin á Jesú tilframtíðar segir Helgi Valur Pálsson semfermist í Fríkirkju Hafnarfjarðar.
Peninga-
gjafirnar
sívinsælar
Helgi Valur Pálsson, fermist í Frí-
kirkju Hafnarfjarðar þann 9.apríl
næstkomandi og hann segist afar
spenntur. Hann segir þó daginn
sjálfan ekki höfuðatriði heldur
það að viðurkenna trú sína til
frambúðar.
„Ég er alveg ýkt spenntur og mér
list æðislega vel á þetta eins og
flestum sem eru að fermast með
mér. Það er mikið atriði að vera
fermdur og það skiptir miklu máli
upp á framtíðina. Þetta er ekki bara
þessi dagur heldur allt lífið og það
að við viðurkennum trúna á Jesú,“
segir Helgi og bætir við að tilgangur
fermingarinnar sé mikill.
„Ég er að fermast til þess að segja
að ég trúi á Jesú og allt það góða
sem hann gerði. Ég hef lesið mikið
af sögum um kristna trú og Jesú og
horfi mikið upp til þessa alls.“
En finnst þér mikilvœgt að vera í
flottum fötum áfermingunni oghafa
mikið umstang íkringum daginn?
„Mér finnst eiginlega bara allt í
lagi að vera rosa flottur þennan
eina dag. Þetta er okkar dagur og
það er ekkert að því að við viljum
hafa okkur svolítið til. Ég er bú-
inn að kaupa mér jakkaföt og svo
ætla ég í klippingu og strípur,“
segir hann. Aðspurður segir
hann gjafirnar ekki höfuðatriði,
þó svo að sumir geri þetta bara
fyrir pakkana að hans mati.
„Ég hef heyrt um nokkra sem eru
ekkert mikið að pæla í boðskapnum
og vilja bara fá gjafir. Ég vil samt
hafa þetta öðruvísi en bara ein-
hverja veislu og pakka. Mig langar
til dæmis að gera eitthvað í minni
veislu eins og að syngja eða flytja
ljóð. Hefðin á ekki að vera þannig
að gestirnir komi bara í einhverja
veislu með pakka - það þarf að hafa
gaman af deginum þar sem ég er að
viðurkenna trú rnína."
Eins og flestir krakkar hefur
Helgi verið í fermingarfræðslu í dá-
góðan tíma, en hann segir það skipta
miklu máli auk þess sem fræðslan
sé afar skemmtileg. Þá segir hann
lærdóm um sorgina og hamingjuna
mjög athyglisverðan.
„Þessi fermingafræðsla er mesta
snilld. Þetta væri náttúrulega ekki
ferming ef maður væri ekki að fræð-
ast um Jesú og það sem hann kenndi
fólki. Við lærum um sorgina og ham-
ingjuna, en það er auðvitað mjög
gagnlegt og fróðlegt. í fræðslunni
lærir maður mikið um þetta og svo
eru messurnar á sunnudögum auð-
vitað mjög skemmtilegar líka,“ ségir
Helgi, sannfærður um að hérna hafi
hann fengið gott veganesti út í lífið.
halldora@bladid.net
c^rWUNGAR
VILBOÐ R
vebðaoub v
Laserklukka meö þráðlausurn
útihitamæli og veðurspá.
Kr. 10.900.-
www.eico.is
SKÚTUVOGI 6 - SÍMI 570
Laserklukka meö
innihitamæli
Kr. 6.900.
Laserklukka með FMútvarpi
Kr. 9.900,-
Laser klukka með
innihitamæli
Kr. 4.990