blaðið - 15.03.2006, Blaðsíða 16

blaðið - 15.03.2006, Blaðsíða 16
ókeypis til SiiMiIia heimila og fyrirtækja alla virka daga FRJÁLST ÓHAÐ blaðió= MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006 bla6iö Ahugasöm og ófeimin kynslóð Fermingarkrakkar í dag til fyrirmyndar, segir séra Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur. þetta árið og er með hreint út sagt frábæran hóp. Þau eru opin og virk í starfinu, auk þess að vera full tilhlökkunar í undirbúningnum. Mér finnst líka svo skemmtilegt að ungir krakkar í dag virðast ekki hika við að ræða málin við okkur og koma með sínar hugrenningar eða hugmyndir.“ Þú ert semsagt ekki sammála því að börn fermist eingöngu fyrir gjafirnar eða til þess eins að fylgja hópnum? Sumir vilja meina að fermingarbörn geri sér ekki fyllilega grein fyrir boð- skap fermingarinnar og fermist ein- göngu af því að allir hinir gera það eða eingöngu gjafanna vegna. Hjálmar Jónsson, dómkirkju- prestur, er þessu algerlega ósam- mála en hann segist sannfærður um áhuga fermingar barna á starfi kirkj- unnar og kristinni trú. „Þessi kynslóð er einfaldlega mjög áhugasöm og krakkarnir eru alger- lega ófeimnir við að segjast trúa og fara með bænirnar. Ég er töluvert spenntur fyrir fermingartímanum ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★ yr ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ JÓÐFÆRAVERSLUN Opiö: Mán-Fös: 10-18 • Lau: 11-16 Þjóðlagagítar Poki, Stillitæki, Gítarneglur Verð Kr. 15.900,- * ★ * ★ ★ ★ ★ •A ★ ★ Rafmagnsgítar %, 15W Magnari, Poki, Snúra, Ól, Stillitæki, Gítarneglur Verð Kr. 22.900,- Jrommusett Diskar, Stóll, Kjuðar Verð Kr. \ 45.900,- ...Gítarinn... ...Mögnuð verslun Stórhöfða 27 • Simi: 552-2125 • www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.is „Það er algjör þvættingur. Krakkar í dag hafa allt til alls, nóg er fram- boðið af gjöfum og þau þurfa enga fermingu til þess að fá i-pod eða hvað það er sem þau vilja. Er það ekki allt eins eðlilegt að gruna fullorðið fólk um að halda fimmtugs- eða sextugs- afmæli vegna gjafanna? Nú, eða hjónavígslurnar? Það er ekki sann- gjarnt gagnvart krökkunum, sem flest virðast hugsa um boðskapinn og trúna, að væna þau um einhverja gjafagræðgi. Sum þeirra hugsa auð- vitað lítið um það sem liggur að baki, en það er nú þannig að Kristur bað ekki um þekkingu heldur bara trú. Þú þarft ekki að vera með þetta allt á hreinu til þess að vera kristinnar trúar. Sá er kristinnar trúar sem telur sig vera það og það eru engar frekari málalengingar þar.“ Hárgreiðslur og naglasnyrtingar Hjálmar segir þó allt umstangið sem slíkt komið út í öfgar og að mörgum óþarfanum sé til tjaldað. Hann rekur þetta þó til hinna fullorðnu og mark- aðarins sem leggur línurnar fyrir það sem börnin vilja. „Krakkarnir eru ekki endilega að biðja um stórveislur, rándýr föt og fleira. Þau reka ekki fyrirtækin sem gera út á fermingarnar. Það er full- orðið fólk sem stýrir þessu og setur fram eitthvað mikilvægi þess að fermingarstelpur fari í gervineglur, ljós eða allt hvaðeina. Það skiptir miklu máli að láta þetta ekki trufla sig í okkar fjölbreytta og efnaða þjóð- félagi. Það sem skiptir máli er að börnin séu með trúarjátningunni að segja já við Jesú Kristi en ekki 99................... Það er ekki sanngjarnt gagnvart krökkunum, sem flest virðast hugsa um boðskapinn og trúna, að væna þau um einhverja gjafagræðgi. segja já við hárgreiðslu eða nagla- snyrtingu,“ segir Hjálmar en leggur þó áherslu á að börnin eigi að fá að njóta sin. „Auðvitað er fólk að hugsa um að leyfa þeim að njóta dagsins. Við viljum auðvitað gera þau að virkilegu númeri á þessum degi í þeirra lífi.“ Nú eru krakkarnir í fermingar- frœðslu heilan vetur til undirbún- ings fermingunni. Hefur slíkt starf sem og barnastarfið sem unnið er í kirkjum, mikið að segja varðandi hugmyndir krakkanna eða jafnvel forvarnargildi? „Já, ekki spurning - þetta skiptir gífurlegu máli. Börnin þurfa að þekkja sína kirkju, kirkjuloftið og safnaðarheimilið svo þeim finnst eins og kirkjan sé þeirra. Þau eiga jafn mikið í kirkjunni og presturinn. BlaÖið/Frikkl Hjálmar Jónsson, dómkirkjuprestur I kringum allt barna- og æskulýðs- starf kirkjunnar er ákveðið samfélag og vinátta sem börnin hafa gott af. Ég vil meina að kirkjan geti haft góð áhrif á börn og það geti haft mikið forvarnagildi fyrir þau að þekkja vel til kirkjunnar. Ég orða það stundum þannig að þau segja já við leiðsögn Jesú Krists en þau þurfa að sama skapi að segja nei við hinum ýmsu tilboðum. Það þarf að kenna þeim að flokka það sem þeim er boðið og þau þurfa að hafa sjálfstæðan ka- rakter til að velja og hafna. Annars megum við ekki gleyma þvi að mik- ill meirihluti unglinga í dag er mjög fínn og allt í lagi með þann hóp, þó svo að einhver hluti hafi leiðst út af brautinni.“ halldora@bladid.net FERMINGAR Gjafakort Erum með mikið úrval fermingargjafa. Vandaðar vörur í j hæsta gæðaflokki ; 0)ullki$lan DÓRA JÓNSDÓTTIR - GULLSMIÐUR FRAKKASTÍG 10 SÍMI 551-3160 OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 14 -18 OG LAU. 11.00-14.00 Fiarstýrðir Bensínbilar Friarstvr.ðiiyBensínlOQiRafmaqnsbilarítlmikluTurvaH ffi . .í'S 1 vdo.is VDO Verkstæðið ehf. - Borgartúnl 36 - s:588-9747 Otíþ

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.