blaðið

Ulloq

blaðið - 15.03.2006, Qupperneq 28

blaðið - 15.03.2006, Qupperneq 28
28 I MATUR MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006 blaöiö Verður Chai jafn vinsœlt og kaffi latte? Chai er orð úr hindi og þýðir einfald- lega te en þegar beðið er um Chai á indverskum veitingahúsum í Evrópu er vanalega átt við Masala Chai sem er einstaklega ljúffengt, kryddað og mjólkurmikið unaðste. Það er ekki vitað hver tók fyrst upp á því að hella upp á bolla af Chai masala og fyrsta uppskriftin liggur hvergi í glerkassa á safni, enda er engin eiginleg uppskrift að Chai masala. En þó er reiknað með því að þessi siður hafi byrjað einhvern tíma eftir að Bretar hófu að fram- leiða te á indverskum nýlendum á nítjándu öld. Hið indverska Chai er vanalega gert úr; • Sterku, svörtu tei • Mjólk • Blöndu af ákveðnum kryddum • Sætuefni Kryddin sem eru notuð í Chai geta verið misjöfn og það á sérstaklega við á Indlandi, en þar eru oftast mis- jafnar kryddblöndur notaðar eftir héruðum. Algengustu kryddin eru þó; kardimommur, kanel, engifer, negull og pipar. Áhrifin af góðum Chai bolla eru hlý og róandi, notaleg og kósí, en Chai hefur líka náttúru- lega örvandi áhrif á meltinguna. Stöðugt vinsælla Undanfarin þrjú ár hafa vinsældir þessa drykks aukist verulega á Vest- urlöndum. Fleiri og fleiri framleið- endur bjóða upp á Chai í notenda- vænum pakkningum og æ fleiri kaffihús bjóða upp á Chai -t.a.m Starbucks keðjan í Bandaríkjunum. Markaðssérfræðingar hafa spáð því að innan fárra ára eigi Chai eftir að öðlast vinsældir á borð við kaffi latte og cappuchino og verða jafn að- gengilegt og þessir drykkir. Ef þig langar að smakka á Chai þá ættu flestar heilsuvöruverslanir að hafa einhverja pakka af Chai í te hill- unum hjá sér, en heimalagað Chai er samt alltaf best, fyrir utan það að íbúðin fyllist af yndislegri angan þegar það sýður á teinu í pottinum. Einföld Chai uppskrift Setjið í sjóðandi vatn, lækkið suð- una eftir 5 mínútur og látið malla í 10 mínútur: Matskeið af fennel eða anisfræjum kardimommufræ 12 negulnagla 1 kanilstöng V* engifer rót, smátt skorin 1/4 teskeið svört piparkorn 2 lárviðarlauf 7 bolla af vatni Bætið við þetta tveimur matskeiðum af Darjeeling te og látið suðuna koma upp aftur. Sjóðið í fimm mín- útur. Að lokum er sex matskeiðum af hunangi eða brúnum sykri hrært saman við og bolla af ófituskertri mjólk hellt út í. Nammi namm... Fyrsta fíokks íslenskur harðfískur GULLFISKUR H O L L U S TA í HVBRJUM BITA y Uppskriftir úr þættinum í gær Gufusoðinn steinbítur með pestó og Crema di Balsamico Gufusoðinn fiskur er algert sæl- gæti, svo fremi sem hann er nýr og hæfilega soðinn. Galdurinn er að gufusjóða fiskinn ekki svo lengi, að hann fari að “leka”, það er að segja að safinn sjáist leka úr fisknum. Þá hefur hann soðið of lengi. í þessari uppskrift er notaður steinbítur en nota má hvaða fisk sem er, eins og t.d. lax, lúðu eða þorsk. Borðið fiskinn með grænmeti og góðum kolvetnum eins og t.d. ekta heilkornabrauði. Hægt er að nota wok með gufurist eða stóran pott með gufurist til að matreiða fiskinn á þennan hátt. Fyrir 4 • 400 gr nýtt steinbítsflak (lax, lúða, þorskur, ýsa, rauðspretta o.sv.frv.), skorinn í stór stykki • Vatn • Pesto, t.d. frá LaSelva • Crema di Balsamico, t.d. frá LaSelva • Sjávarsalt, t.d. Maldon • Nýmalaður svartur pipar, t.d. Maldon Látið suðuna koma upp í wokpotti eða potti, setjið fiskstykkin á ristina og gufusjóðið í nákvæmlega 8 mínútur með lokinu á. Skiptið fiskinum á 4 diska, þekið með pestó og Crema di Bal- samico og bragðbætið með salti og pipar. Maríneruð lúða Það er alls engin ástæða til að ótt- ast fiskmatreiðslu. Þótt margir telji erfitt að meðhöndla og tilreiða fisk, er raunin allt önnur. Það er einfalt. Galdurinn liggur í hitastiginu sem má ekki vera of hátt, og undirbún- ingnum sem má heldur ekki taka of langan tíma. Þá verður fiskurinn þurr, bragðlaus og leiðinlegur. Ef maður velur að auki að krydd- leggja fiskinn í sítrónusafa og kryddi verður útkoman hreinlega himnesk. Fiskurinn nánast bráðnar á tungunni. Njótið hans með góðu salati eða gufusoðnu grænmeti og e.t.v. bankabyggi. I þessarri uppskrift er notuð lúða en hægt er að nota hvaða fisk sem er svo fremi sem hann er nýr (lax, lúða, þorskur, ýsa, rauðspretta o.sv.frv.). Fyrir 4 • 400 gr nýtt lúðuflak, roðflett • Fínt rifinn börkur ásamt safa úr 1 lífrænt ræktaðri sítrónu • 1 hvítlauksrif, gróft saxað 5 gr fersk engiferrót, skorin í þunnar sneiðar 1 tsk túrmerik Pínulítið af kanildufti, t.d Sonnentor Pínulítið af vanilludufti, t.d. frá Himneskri hollustu Sjávarsalt, t.d. Maldon Nýmalaður svartur pipar, t.d. Maldon Lúðan er maríneruð í sítrónusafa og berki ásamt öllum kryddunum í minnst 3 klst. en helst i sólarhring eða tvo. Setjið fiskinn ásamt kryddleg- inum í eldfast fat og bakið fiskinn i 8-9 mín í i70°C heitum ofni. Powerhristingur 10 grunnreglur™ Morgunmaturinn er mikilvægasta máltið dagsins. Það gerist ekki miklu betra en þessi uppskrift. Bragð og gerð er eins og mjólkur- hristingur eða mjúkur ís, en inni- hald næringarefna allt önnur saga. Þessi hristingur mun án efa gera þig sadda(n), og skýra(n) í kollinum. Engin hætta er á að blóðsykur falli (sem eykur þörf fyrir sykur, kökur, súkkulaði, gos og annað á bannlist- anum) fram að hádegi. Ef þér finnst hristingurinn of kaldur má þeyta hann aðeins lengur þannig að ísnálarnar bráðni og/ eða drekka glas af grænu tei (t.d. PharmaGreen Original Green Tea Powder) með morgundrykknum. • 1 mæliskeið mysuprótínduft frá Himneskri hollustu • 100-300 gr. frosin ber frá Himneskri hollustu (hindber, bláber eða berjablanda) • 2-3 msk. extrajómfrúar- hörfræjaolía frá Himneskri hollustu • agnarögn af vanilludufti frá Himneskri hollustu • e.t.v. 1/2-1 banani • e.t.v. duftið úr 2-6 hylkjum af SlimStyles PGX" eða aðrar trefjar • e.t.v. 1-3 tsk. xylitol til að sæta með • 2-4 dl sojamjólk, hrísmjólk eða vatn Setjið allt nema soja-, hrísmjólk eða vatn í blandarann. Hellið nú vökv- anum í þannig að það fljóti yfir og kveikið á blandaranum. Látið hann vinna um stund. Ef hann vill ekki hræra þessu öllu saman þá slökkvið á blandaranum og hrærið upp í blöndunni og kveikið aftur. Bætið e.t.v. vökva í og látið blandarann vinna þar til kominn er mjúkur flau- elsís eða bætið örlitlu vatni í og þá er kominn mjólkurhristingur”.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.