blaðið - 15.03.2006, Síða 38
38IFÓLK
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006 blaðið
SMÁ
borgarinn
GUÐ, GEFÐU
OKKUR FJÓRÐA
SÆTIÐ.
Smáborgarinn fær vart úr rekkju risið um
þessarmundir.
Ástæðuna má rekja til síðastliðinnar helg-
ar. Smáborgarinn vaknaði við vekjaraklukku
árla morguns á laugardag til að undirbúa
sig fyrir viðburð vikunnar, leik Tottenham
og Chelsea. Smáborgarinn hló að þynnku,
þreytu og höfuðverk sem reyndu að hindra
hann í að fara fram úr. Staðgóður morgun-
verður, vítamín og sturta. Þaðan var haldið
beint í höfuðstöðvarnar. Staðsetningin
verður vitaskuld ekki gefin upp, enda fer þar
fram starfsemi svo vafasöm að samanborið
við hana virðast fuglaflensa, trúarstríð og
hrun á hlutabréfamarkaði í besta falli hjá-
kátleg.
Leikurinn hófst á slaginu 12:45. Eftir góða
byrjun hinna réttlátu, góðu og grandvöru
skoraði andstæðingurinn. Allt í lagi, allt í
lagi. Liðið hefur áður fengið á sig mark en
komið til baka af krafti og náð í stig. Og viti
menn, Jermaine Jenas jafnaði undir lokfyrri
hálfleiks. Þvílík voru öskrin að Smáborgar-
inn fann blóðbragð í munninum, en gleðin
var slik að það jók bara á stemninguna.
Enda voru menn í vígahug.
Liðið barðist vel í síðari hálfleik. Téður
Jenas fékk reyndar ákjósanlegt færi til að
koma Tottenham í 2-1 en varð á í messunni.
Svosemfyrirgefanlegt.Strákurinnskoraðijú
jöfnunarmarkiðgóöa skömmuáður. Chelsea
voru mun líklegri eftir það, en vörnin virtist
ætla að halda. Reiðarslagið var þó ekki langt
undan. Á 92. mfnútu skoraði William Gallas
fyrir illmennin bláklæddu. Þvílík sorg. Þvílík
eyðilegging. Raunar stórglæsilegt mark, en
það gerði aðeins illt verra. Laugardagurinn
ónýtur. Leiðin lá ekkert annað en beint upp
í rúm. Alltof kunnugleg vonbrigði. Ef leikir í
ensku úrvalsdeildinni enduðu á 88. mínútu
væri Tottenham f öðru sæti.
Sunnudagur rann í garð og ekki voru von-
brigðin minni þann daginn. Grámygla ofan
á svartnættið. Liðið sem ekki skal nefnt á
nafn, nema að kaþólskum presti viðstödd-
um, sigraði Liverpool. Vafalaust með svindli
og óþverraskap. Ekki orð um það meir. Smá-
borgarinn lagðist í bað og íhugaði að taka
ristavélina meðsér.
Hvort lið á níu leiki eftir. Tottenham er
að vi'su enn í fjórða sætinu sem gefur þátt-
tökurétt í Meistaradeildinni, en sendiboðar
kölska hafa minnkað muninn í tvö stig. Lið-
in eiga eftir að mætast í næsta mánuði og
verður þar um sannkallað uppgjör góðs og
ills að ræða. Smáborgarinn íhugar að segja
upp starfi sínu og leggjast á viðstöðulausa
bæn fram að leiknum. Ef Guð er með oss,
hver er þá á móti oss? Áfram Tottenham! (e.
ComeonyouSpurs!)
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Einar Már Sigurðarson, alþingismaður
Þarf að setja vökulög á Alþingi?
„Ég velti því fyrir mér um miðnætti í fyrrakvöld. Það þarf að tryggja að
þingmenn fái nægilega hvíld, því af reynslu undanfarna daga virðist ljóst
vera að ekki sé bætandi á afleiðingar þreytu sumra þingmanna."
Þingmenn hafa tekist hart á um breytingar á vatnalögum og hafa fundir jafnvel staðið fram á nótt. Einar Már bað þingforseta í
fyrrakvöld að siíta þingfundi svo Birkir Jón J
Charlize og Townsend
ekki hœtt saman
Stjarna kvikmyndarinnar Aeon Flux, Charlize Theron, harðneitar því að hún og kærasti
hennar, Stuart Townsend, séu hætt saman þvert á fréttir slúðurblaðanna í HoÍly wood sem
kepptust við að flytja slíkar fréttir um helgina.
Theron hefur sést án kærastans á fjölmörgum verðlaunaafhendingum í Hollywood og
víðar síðastu vikur og sérstaka athygli vakti að hann fylgdi henni ekki á Óskarsverð-
launaafhendinguna, heldur móðir hennar. Theron segir að hann hafi ekki komið
með einfaldlega vegna þess að hann hafi verið í burtu vegna vinnu sinnar.
„í næstu viku munu blöðin hringja í mig og spyrja hvort þau séu að
fara að gifta sig,“ sagði talsmaður Theron í yfirlýsingu um
málið. „Stuart og Charlize eru ekki hætt saman, þetta
er bara rugl í ykkur.“
Vinnie of góður fyrir Robbie
Kvikmynda- og knattspyrnustjarnan Vinnie Jones segist vera allt of góður í fót-
bolta til að spila með Hollywood liðinu sem söngvarinn Robbie Williams setti
nýlega saman. Jones segist þurfa að halda virkilega mikið aftur af sér og að
honum finnist það hundleiðinlegt.
„Ég spilaði meðal annars með Robbie og Steve Jones úr Sex Pistols í síð-
ustu viku,“ sagði Jones í samtali við blaðamenn í Hollywood. „Það var virki-
lega ergjandi. Ég stóð bara þarna og skoraði, enginn reyndi að tækla mig
eða neitt.“
Fótbolti án tæklinga er skiljanlega ekki skemmtilegur í augum Jones en hann
mikill harðjaxl á vellinum á sínum tíma.
Kokksi missir röddina
Isaac Hayes mun ekki lengur ljá kokkinum og kynlífsgosanum Kokksa í sjón-
varpsþáttunum South Park rödd sína. Ástæðan er trúarlegs eðlis.
Hayes hefur verið að baki hinnar djúpu og fögru raddar kokksins söngelska frá því
þættirnir fóru af stað árið 1997. Nú hefur hann beðið um að losna undan starfinu þar
sem honum finnst South Park gera litið úr trúarskoðunum fólks.
„Trúin er fólki heilög og hana á ætíð að virða og heiðra. Sem baráttumaður fyrir
mannréttindum í 40 ár get ég ekki stutt við bakið á sjónvarpsþætti sem virðir
ekki trúarskoðanir annarra,“ segir í tilkynningu frá Hayes.
þótti
Mikið fór fyrir vetraróiympíuleikunum íTórfnó þegar þeir voru haldnir fyrr í mánuðin-
um. Öilu minna hefur verið fjallað um vetrarólympiuleika fatlaðra sem fara nú fram á
sama stað.
Tölvan heimtar allsherjar viðhaldsyfirferð á sex
mánaða fresti og tveggja vikna frí í ágúst.
HEYRST HEFUR...
Hinn ný-
nefndi
Glitnir fer
vel af stað,
því fyrir
hans tilstyrk
verður hald-
ið Glitnis-
mótið í hrað-
skák í dag
og á morgun. Teflt verður í
Ráðhúsi Reykjavíkur og verða
þau Vishy Anand, heimsmeist-
ari í hraðskák, og Judit Polgar,
sterkasta skákkona heims, með-
al þátttakenda. Mótið er haldið
í minningu Haralds Blöndal
hæstaréttarlögmanns, sem
hefði orðið sextugur á þessu
ári, en hann lést eftir skamma
krabbameinslegu fyrir tæpum
tveimur árum. Einar Sveins-
son, stjórnarformaður Glitnis,
sagði um Harald frænda sinn
í þessu samhengi: „Haraldur
er öllum ógleymanlegur sem
honum kynntust, leiftrandi
greindur, skemmtilega litríkur,
vinmargur og auk þess einlæg-
ur áhugamaður um framgang
skáklistarinnar. Það er því afar
viðeigandi að tileinka Haraidi
þetta mót og í hans anda verð-
ur það einkar fjölbreytt, fjörugt
og litríkt og öllum opið. Hrað-
skák krefst snarprar hugsunar
og skjótrar ákvarðanatöku, ná-
kvæmni en um leið dirfsku og
óbilandi trausts á eigið innsæi.“
Pegar Jón
K r i s t j á n s -
son var fluttur í
félagsmálaráðu-
neytið litu marg-
iráþaðsemdval-
arheimili fyrir
ráðherrann eftir
að hafa hírst í skotgröfum heil-
brigðisráðuneytisins um fimm
ára skeið. En á heimasíðu ráðu-
neytisins má lesa um lífshlaup
ráðherrans og þá sést að auð-
vitað átti Jón fyrir að löngu
að vera kominn þangað, því
síðasta starf hans á almennum
vinnumarkaði var að vera fé-
lagsmálafulltrúihjá Kaupfélagi
Héraðsbúa 1978 til 1984...
Umsóknar-
frestur um
stöðu hæstarétt-
ardómara rann
út nýverið, en
sem kunnugt er
mun Guðrún Er-
lendsdóttir láta af embætti eft-
ir mánuð. Um embættið sóttu
Hjördís Björk Hákonardóttir,
dómstjóri við Héraðsdóm Suð-
urlands, Páll Hreinsson, prófess-
or og deildarforseti lagadeildar
Háskóla íslands, Sigríður Ing-
varsdóttir, dómari við Héraðs-
dóm Reykjavíkur, og Þorgeir
Ingi Njálsson, dómari við Hér-
aðsdóm Reykjaness. Athygli
vekur hins vegar að hvorki Ei-
ríkur Tómasson né Stefán Már
Stefánsson, sem Hæstiréttur
sóttist svo eftir um árið, sóttu
um að þessi sinni. Hins vegar
kann Birni Bjarnasyni, dóms-
málaráðherra, að vera vandi á
höndum. Vafalaust þykir hon-
um erfitt annað en að Hjördís
Hákonardóttir fái stöðuna eftir
það, sem á undan er gengið. Á
hinn bóginn verður nær von-
laust að ganga fram hjá Páli
Hreinssyni, ekki aðeins vegna
verðleika hans, heldur einnig í
ljósi þess að nokkur hefð er um
samsetningu Hæstaréttar. Guð-
rún Erlendsdóttir kom þannig í
réttinn úr háskólasamfélaginu
og við brotthvarf hennar hlýtur
lögspekingur á borð við Pál að
eiga meira en jafna möguleika
á embættinu...