blaðið - 17.03.2006, Qupperneq 8
8 I ERLEWDHR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 bla6iö
St. Patricks matseðill
Fórrittur
ikiingalifrar-terrine incó stökkn beikoni
pcru-compot ogstcíktu brio'chc.
Milliréttur
Grillaður lmmar með Kilkennyiroöu.
Aðalréttur
Grilluö natttalunci mcö beikonkartöflum og piparsósu
Eftirréttur
irsk viskí-súkkulaðimús mcð ástríðualdinkrapi.
Aöcins 5.400 kr
Tcl: 511-5090 • Veltusund 1 101 Reykjavík
cinarben@einarben.is • wvvtv.einaibeti.is
Ólga meðal frumbyggja Ekvador
Mótmœli vegna frtverslunarsamnings við Bandaríkin breiðast út um landið.
Spenna fer vaxandi í Ekvador í
kjölfar mótmæla og óeirða. Þús-
undir smábænda hafa mótmælt
áformum stjórnvalda um gerð
fríverslunarsamnings við Banda-
ríkin. Mótmælin hafa staðið yfir
síðan á mánudag og bændurnir,
sem tilheyra Samtökum frum-
byggja landsins, hafa komið upp
vegatálmum víðs vegar um landið
til þess að lama hagkerfið. Tals-
menn samtakanna segja samning-
inn aðeins koma hinum ríku til
góða og krefjast þess að hann verði
tekinn til þjóðaratkvæðagreiðslu.
Mótmæli frumbyggja hófust í kjöl-
far þess að starfsmenn við olíuiðnað
landsins fóru í verkfall í síðustu viku
og yfirvöld stöðvuðu óeirðir við olíu-
lindir í Napo-héraði, en þar kröfðust
mótmælendur að meira fé yrði veitt
til velferðarmála í landinu. Þessi at-
burðarás varð til þess að innanríkis-
ráðherra landsins, Alfredo Castillo,
sagði af sér í gær. Hann gagnrýndi
stjórnvöld og sagði þau ekki horfast
í augu við hættuna á yfirvofandi
valdaráni
Óeirðalögregla handtekurtvo unga ‘r’
menn eftir mótmæli gegn fríverslunar-
samningi við Bandaríkin í Quito f Ekvador
í gær.
Óttast að samkeppni grafi
undan menningu
Samtökin hafa hótað því að þau muni
steypa forseta landsins, Alfredo Pal-
acio, af stóli staðfesti hann fríverslun-
arsamninginn. Stjórnvöld hafa brugð-
ist við af hörku og í gær réðst lögregla
á mótmælendur og skaut að þeim
ir
rs
d Einari Ben 16.-20. mars
/ tilefni afcU-ff betlap Patreks bann 17. nurs
bjóthan víó uj>p <í matseðfl nieú írsktan dbrifum.
táragasi. I sjónvarpsávarpi í gær lýsti
forsetinn því yfir að ekki væri hægt
að koma til móts við kröfur mótmæl-
enda og að hann myndi ekki segja af
sér embætti. Ennfremur staðfesti for-
setinn að viðræðum við Bandaríkin
um fríverslunarsamninginn yrði
haldið áfram í Washington í næstu
viku. Samtök frumbyggja landsins
óttast að fríverslunarsamningurinn
muni grafa undan lífsbjörg þeirra
og menningararfleifð. Fríverslun við
Bandaríkin myndi þýða að þeir gætu
ekki keppt við verð á innfluttum
bandarískum landbúnaðarafurðum
og myndu því þurfa að yfirgefa þorp
sín í hlíðum Andes-fjalla og leita ann-
arra leiða til að draga björg í bú.
Áhrifamiklir frumbyggjar
Einn þriðji íbúa Ekvador telst til
frumbyggja, í landinu búa 13 millj-
ónir. Samtökþeirra eru áhrifamikil í
stjórnmálum landsins en þau berjast
meðal annars gegn alþjóðavæðingu,
áhrifum Bandaríkjanna og eru al-
farið á móti beitingu markaðslausna
við hagstjórn landsins. Árið 2000
stóðu þau fyrir uppreisn sem varð
til þess að þáverandi forseti landsins,
Jamil Mahuad, sagði af sér. Samtökin
fengu ráðherrastöður í ríkisstjórn
landsins að launum fyrir stuðning
Lucio Guitierrez, fyrrum herforingja,
í kosningum tveimur árum síðar.
Samstaða frumbyggjanna brast
þegar Guitierrez hóf að beita sér fyrir
innleiðingu markaðslausna í landinu.
Þær aðgerðir ollu mikilli ólgu og urðu
til þess að þingið neyddi forsetann til
þess að segja af sér og Palacio tók við
af honum. Boðað hefur verið til nýrra
kosninga í október á þessu ári.
Iteuters
Ali Larijani, aöalsamningamaður frana, á fundi meö blaðamönnum í Teheran í gær.
íranir og Bandaríkja-
menn fallast á viðræður
Viðrœðurnar snúa eingöngu að ástandinu í írak
Talsmenn klerkastjórnarinnar í
íran og stjórnvalda í Bandaríkj-
unum lýstu því yfir í gær að ríkin
myndu hefja opinberar viðræður
um ástandið í Irak. Verður þetta
í fyrsta skipti sem embættismenn
ríkjanna eiga i formlegum við-
ræðum síðan að þau slitu stjórn-
málasambandi í kjölfar gíslatök-
unnar í Teheran 1979.
Ali Larijani, aðalsamningamaður
Irans í deilunni um kjarnorkuáætlun
landsins, lýsti því yfir í gær að stjórn-
völd í Teheran væru reiðubúin til við-
ræðna við Bandaríkin um hvernig
megi lægja öldurnar í Irak og skapa
grundvöll fyrir sjálfstæðri ríkisstjórn
landsins. Fyrri yfirlýsingar Irans-
stjórnar hafa verið á þá leið að enginn
grundvöllur væri fyrir viðræðum fyrr
en að Bandaríkjamenn hefðu dregið
herlið sitt frá Irak.
Þröngt umboð
Scott McClellan, blaðafulltrúi Hvíta
hússins, staðfesti í gær að stjórnvöld í
Washington hefðu veitt Zalmay Khal-
Fermingar
tertur
Eggert Jönsson
bakara- og conditormeistarí
Opiö vírka daga 10.00-19.00
fimmtudaga 10.00-21.00
laugardaga 10.00-18 00
sunnudaga 11.30-18.00
simi 544 2332
www.adesso.is
ADESSO
2. hæð i Smáralind vAfetrargarðinn
ilzad, sendiherra Bandaríkjanna í
írak, umboð til viðræðna við Irani.
Blaðafulltrúinn tók hins vegar fram
að umboðið næði eingöngu til mál-
efna Iraks og Bandaríkjamenn hefðu
ekki breytt um stefnu gagnvart kjarn-
orkuáætlun Irana. Hún yrði tekin til
umfjöllunar í öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna á morgun. Ráðið hefur völd
til þess að setja viðskiptabann á írani
gangist þeir ekki við kröfum þess.
Ummæli Larijani komu í kjölfar
yfirlýsingar Abd al-Aziz Hakim, leið-
toga æðstaráðs íslamskar byltingar í
írak, á miðvikudag. Al-Aziz Hakim,
sem hefur náin tengsl við stjórnvöld
í Teheran en hann barðist gegn stjórn
Saddams Hussein á sínum tíma,
óskaði þá eftir að Iranir og Banda-
ríkjamenn tækju upp viðræður um
ástandið í Irak og ynnu að því að
skapa stöðugleika í landinu.
Viðræður en ekki stefnubreyting
Ákvörðunin um viðræður er tekin
degi áður en öryggisráð Sameinuðu
þjóðannatekurfyrirkjarnorkuáætlun
Irana. Vilji Irana til viðræðanna er tal-
inn til marks um að stjórnvöld séu
tilbúin til þess að koma til móts við
alþjóðasamfélagið og leysa deilurnar
um kjarnorkuáætlun þeirra við samn-
ingaborðið. Ekkert gefur hins vegar
til kynna að Bandaríkin séu að breyta
um stefnu gagnvart klerkastjórninni.
I nýrri hernaðaráætlun Bandaríkja-
stjórnar, sem var gerð opinber í gær,
kemur fram sú skoðun að ekkert land
sé meiri ógn við öryggi Bandaríkj-
anna en íran. Á dögunum líkti Cond-
oleezza Rice, utanríkisráðherra, Iran
við alþjóðlegan seðlabanka hryðju-
verkamanna. Bandaríkjamenn hafa
sakað írani um að styðja við bakið á
uppreisnarmönnum í írak og segjast
hafa sannanir fyrir því að hryðju-
verkamenn í landinu fái sprengjuefni
frá stjórnvöldum í Teheran.
Zalmay Khalilzad sagði í samtali
við fréttastofu breska ríkisútvarpsins
í gær að þrátt fyrir að Iranir segjast
styðja uppbyggingu í írak reki þeir í
raun mjög flókna stefnu gegn landinu.
Þeir styðja ákveðna hópa uppreisnar-
manna en vinni á móti öðrum.
Efnalaugin Björg
Gæðahreinsun
Þekking
Reynsla
Þjónusta
Opiö: mán-finn 8:00 -18:00 föst 8:00 -19:00 laugardaga 10:00 -13:00 Háaleitisbraut 58-60 • Símí 553 1380