blaðið - 17.03.2006, Síða 18

blaðið - 17.03.2006, Síða 18
18 i HEILSA FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 bla6Í6 Bylting í tannfyllingum Hvítar fyllingar verða sífellt vinsœlli en gömlu silfurfyllingarnar Elín Sigurgeirsdóttir, sérfræðingur í tann- og munngervalækningum, hefur nýlega hafið tannviðgerðir með byltingakenndum tölvubún- aði sem gerir nákvæmar postulíns- fyllingar mögulegar á betra verði en áður hefur þekkst og í stærri fleti einsogí jaxla. Fyrsta tækið á íslandi Ný tækni sem byggir á þrívíddar- myndatöku gerir tannlæknum nú kleift að smíða fyllingar í tennur með nákvæmri eftirmynd af holunni sem fylla á í. Tækið, sem ber nefnið Cerec, var hannað á níunda áratugnum af Svisslendingunum Mörmann og Hœttum aö reykja í samfélagi á vefnum þar sem allir fá styrk hver frá öörum og enginn þarf aö standa einn í baráttunni. Meö sameiginlegu átaki drepum viö í fyrir fullt og allt SkráÖu þig í átakiö á vidþuin.is Þar er auk þess hœgt aö allar upplýsingar um máliö. Cerec tækiö sem gerir mótun postulínsfyll- inga auðveldari og ódýrari. Brandestini við Zurich háskóla. Elín fylgdist með þróun Cerec tækninnar þegar hún var við nám í munn- og tanngervalækningum við Tann- læknaháskólann í Norður Karólínu á árunum 1995-1998. Frá þeim tíma segir Elín að Cerec tæknin hafi tekið stakkaskiptum. „Þá vantaði upp á að lokað væri á milli brúna tannar og fyll- ingar en tilkoma þrívíddartækninnar Gamla silfurfyllingin er boruð út, tönnin skönnuð inn og fylling útbúin. Hér er nýja postulínsfyllingin komin í og ekki að sjá að tönnin hafi verið skemmd. breytti öllu.“ Tæknin virkar þannig að borað er út fyrir fyllingunni og farið er inn i munninn með litla myndavél og tönnin er skönnuð frá öllum hliðum. Gert er rafrænt líkan af fyllingu, byggt á upplýsingum þrí- víddarmyndarinnar sem síðan er sent rafrænt yfir í fræsara sem sker út úr postulíni fyllingu sem passar í holuna. „Það er alger bylting að geta verið með tönnina íyrir framan sig á tölvuskjánum og velt henni á alla kanta,“ segir Elín. „Þessi tækni hefur verið í þróun í tuttugu ár og þetta tæki er eitt sinnar tegundar hér á landi.“ Hvítt í staðinn fyrir silfur „Það verður ekki framhjá því horft að neytandinn í dag vill fá hvítar fyll- ingar. Plastfyllingar eru tæplega nógu góðar í stórar uppbyggingar eins og í jaxla en við tannlæknar látum samt stundum undan þrýstingi og setjum þær í þar sem aðrar hvítar tannfyll- ingar hafa ekki verið í boði.“ Elín segir að plastið dragist of mikið saman við hörðnun sem gæti myndað glufur á milli fyllingar og tannar og það auki á hættu á endurteknum skemmdum meðfram brúnunum. „Með þessari aðferð lokast holan alveg og postu- línið er ekki svo hart að það slíti þeim tönnum sem liggja á móti eins og hættan er á með hefðbundnar postu- línskrónur. Gömlum fyllingum má skipta út fyrir postulinsfyllingar sem þessar og þó þær séu dýrari en einföld plastfylling eru þær ódýrari en hand- smíðaðar postulínsfyllingar, gerðar af tannsmiði. Möguleikarnir með þessu tæki eru miklir og hægt að nota það til allra fyllinga. Mannshöndin verður þó líklegast alltaf flinkari við gerð framtannakróna,“ segir Elín. ernak@bladid.net Er hárið farið að jpÉM) og þynnast? Þá er Grecian 2000 hárfroðan lausnin! Þú þværð hárið, þurrkar, berð froðuna í greiðir og hárið nær sínum eðlilega lit á ný, þykknar og fær frískari blæ. Grecian 2000 hárfroöan fœst ; í apótekum, á hársnyrtistofum og í Hagkaupsverslunum. NicotinelT Englakr$ppar Heilsustudio VIÐ HJÁLPUM ÞÉR AÐ LÍTA BETUR ÚT EN NOKKRU SINNI FYRR. FJÖGURRA, SEX OG ÁTTA VIKNA ÁTAK ER í BOÐI. Grennum, stinnum og styrkjum. LOSUM ÞIG VIÐ APPELSÍNUHÚÐ OG AFEITRUM LÍKAMANN. AlRBRUSH BRÚNKUMEÐFERÐ Tilvalið FYRIR FERMINGUNA OG ÁRSHÁTÍÐINA JÓRUNN FRÍMANNSC 9TTIR Máttur vanans Hverju viltu breyta? Leiðin að grennri líkama og heil- brigðara lífi felur í sér að þú verður að hyggja að matarvenjum þínum, draga úr neyslu hitaeininga og hreyfa þig meira. Þetta eru tæplega ný tíðindi fyrir þig ef þú ert of þung/ ur. Lífið er fullt af gildrum og ef þú ætlar að ná markmiði þinu verð- urðu að breyta daglegum venjum. Til þess að breyta þarftu að vita hverju þú vilt breyta. Þú þarft að gera þér grein fyrir því hvernig þitt munstur er. Hvar getur þú breytt? Hverju er auðveldast að breyta? Settu þér raunhæf markmið því það er ekki vænlegt til árangurs að kú- venda öllu. Góðir hlutir gerast hægt Hreyfing er eitt af því allra mikil- vægasta sem við gerum á hverjum einasta degi. Það er nauðsynlegt fyrir alla að hreyfa sig. Á hverjum degi fáum við fullt af tækifærum til að hreyfa okkur. Hreyfing þarf ekki alltaf að vera skipulögð eða í einhverju sér- stöku samhengi eða við sérstakar aðstæður. Það er mikið talað um að fara í átak í þessu eða hinu. Námskeið í lík- amsrækt getur auðvitað verið mjög gott, en það sem þarf til lengri tíma er hugarfarsbreyting. Við fáum ótal tækifæri til að hreyfa okkur án þess að utan um það þurfi að vera ein- hverjar sérstakar umbúðir. Nýtum þau tækifæri sem gefast: • Þegar við leggjum bílnum okkar fyrir utan vinnuna eða verslun er svo lítið mál að leggja aðeins lengra frá og fá smá göngutúr í leiðinni. • Við getum valið að ganga eða hjólaí vinnuna áhverjum degi eða bara á góðviðrisdögum. • Ef við þurfum að fara upp nokkrar hæðir, getum við valið að ganga stigana í stað þess að taka lyftuna. Við getum meira að segja byrjað á því að ganga alltaf bara eina eða tvær hæðir og taka svo lyftuna. • Við getum farið sér ferð út með ruslið. Ekki bíða eftir því að einhver annar eigi leið framhjá. • Göngum út í búð ef okkur vantar eitthvað smáræði, ekki keyra. • Svo má alltaf fá sér hund. Hundur þarf göngutúr á hverjum degi, ekki síður en við sjálf. En þó þú eigir ekki hund þá er samt sem áður gott að fara í lengri og styttri göngutúra. • Ef þú ert í kyrrsetustarfi er gott að standa upp á hverjum klukkutíma og ná í 'A glas af vatni eða fara á klósettið, hreyfa sig aðeins. • í hádeginu er svo um að gera að fara í göngutúr og fá sér að snæða í leiðinni. Ef þú tekur með þér nesti, þá gætir þú samt fengið þér göngutúr og keypt t.d. einn banana, vatn eða eitthvað annað lítið með. Fá smá hreyfingu, ekki velja auðveldustu leiðina. Settu þér ákveðið markmið sem mögulegt er fyrir þig að ná. Hreyf- ing getur verið fólgin í heimilis- störfum, garðvinnu, hjólreiðum, sundi, leikfimi, þrekþjálfun, golfi eða hópíþróttum. Mannslíkamanum má líkja við vél. Það er nauðsynlegt að smyrja hana og hreyfa hana, annars ryðgar hún og stirðnar. Nú fer vorið að koma, í dag er allavega vor í lofti og tíminn framundan góður til útiveru og göngutúra. Hreyfum okkur því á

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.