blaðið - 17.03.2006, Síða 26
26 I HELGIN
FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 blaftiö
Drifskaít í höfuðborginni
Þeir sem fóru á Þjóðhátíð í Eyjum á
síðasta ári muna vafalaust eftir hljóm-
sveitinni Drifskaft en hún sló ræki-
lega í gegn hjá þjóðhátíðargestum. Að-
dáendur Drifskafts eiga von á góðu
því þeir halda tónleika á Nasa annað
kvöld. Er þetta í fyrsta sinn sem þeir
félagarnir spila í höfuðborginni og
má því búast við fjölmenni. Hljóm-
sveitin í svörtum fötum hitar upp
fyrir Drifskaft en þeir eru einmitt
taldir líkjast meðlimum hljómsveitar-
innar. Söngvari Drifskafts erþekktur
fyrir hamagang og læti og því verður
án efa stuð á Nasa annað kvöld.
Dásamleg helgarferð til Parísar
„Það er nú spennandi að heyra hvað
ég er að gera um helgina," segir
Edda Björgvinsdóttir, leikkona, og
hlær. „Eg er einmitt að fara í undir-
búningsferð til Parísar til að finna
alla flottustu staðina fyrir kvenna-
ferð sem verður farin 10.-14. apríl.
Ég eyði helginni því í að finna allt
það skemmtilegasta í París, veitinga-
staði, tangóbari, kaffileikhús og allt
sem konurnar gætu haft gaman af.
Þá verður allt tilbúið fyrir 10. apríl
og við höfum samið við veitingastað-
ina og svo framvegis. Að venju fara
Helga Braga og Eva Dögg Sigurgeirs-
dóttir með mér í kvennaferðina en
Helga kemst því miður ekki í undir-
búningsferðina. Eva mun kíkja að-
eins á tískuna í París enda verða kon-
urnar að skoða flottustu hönnun
í heimi í kvennaferðinni. París er
svo mögnuð að því leyti til að það
þarf ekki að versla heldur er nóg að
skoða tískuna. En svona verður dá-
samlega helgarferðin min.“
svanhvit@bladid.net
Edda Björgvinsdóttir ætlar að skella sér til Parísar um helgina til að undirbúa sig fyrir
kvennaferðsem verðurfarin 10.-14.aprílá vegum lcelandair.
Skemmtilegt kvöld með Guðrúnu og Friðriki Omari
Guðrún Gunnarsdóttir og Friðrik
Ómar munu skemmta sér og öðrum
á stórtónleikum í Salnum í Kópa-
KYNNINGARVERÐ
www.goddi.is
aöuorum
vogi í kvöld. Guðrún og Friðrik A
munu flytja lög af einni sölu-
hæstu plötu síðasta árs, „Ég
skemmti mér“ í útsetningum
Ólafs Gauks ásamt níu
manna stórhljómsveit
undir stjórn Ólafs Gauks.
Auk þess flytja þau perlur
Ellýjar Vilhjálms og Vil-
hjálms Vilhjálmssonar. Fram-
undan er því án efa skemmti-
legT kvöld eins og þeir sem hafa
hlustað á þennan fjör-
lega disk ættu að vita.
Ahugasamir ættu að
hafa hraðar hendur þar
sem einungis örfá sæti
eru laus. Tónleikarnir
hefjast kl. 20.00 og miða-
verð er 2.500 krónur.
Guðrún Gunnarsdóttir og
Friðrik Ómar munu skemmta
sér og öðrum á stórtónleikum
i Salnum í Kópavogi í kvöld.
Nemendur keramikkjörsviðsins munu sýna lágmyndir úr jarðleir sem túlka áhrifamikla
Listasýning nemenda
Myndlistarskólans
Á morgun máfinna keramik, Ijósmyndir ogrokkandi mynd-
list í Gallerí Tukt, sýningarsal Hins hússins.
Sturtuklefi Sturtukloti Gufuklofi m/ofni Gufuklefi m/óllu
90x90an Kr. 30.700.- 90x90cm Kr. 28.900.- 160x105x190 cm 180x100x220 cm
100x100 Kr. 32.600.- 100x100 Kr. 31.600.- *<r. 214.000.- Kr. 251.000.-
Auöbrekka19 • 200 Kópavogur • Sími 544 5550 • www.goddi.is
Á morgun verður opnuð sérstaklega
áhugaverð listasýning í Gallerí Tukt,
sýningarsal Hins hússins en þar
munu nemendur keramikkjörsviðs
Myndlistarskólans í Reykjavík sýna
verk sín. Keramikkjörsviðið er starf-
rækt í samvinnu við Iðnskólann í
Reykjavík og nemendur af Myndlista-
og hönnunarsviði.
Á sýningunni verða sýndar lág-
myndir úr jarðleir þar sem nem-
endur túlka áhrifamikla náttúru
Reykjaness. Þar gætir áhrifa hrauns-
ins, hvera og af brimi hafsins. Einnig
verða á stöplum nýrenndir samsettir
leirskúlptúrar sem renndir voru á
svokölluðum „flipp“ degi en þar var
augnablikið og tilviljunin ráðandi í
formi skúlptúrsins.
Mörk myndlistar og tónlistar
Auk keramiksýningarinnar munu
nemendurafMyndlista- oghönnunar-
sviði sýna lokaverkefni úr ljósmynda-
áfanga þar sem leiðbeinandi var Erla
Stefánsdóttir. í lokaverkefninu gátu
nemendur valið á milli svart/hvítrar
ljósmyndunar, stafrænnar ljósmynd-
unar eða gerð stuttmyndar. Lögð var
áhersla á notkun myndrammans,
samband augnabliksins og myndupp-
byggingar auk heildartjáningar.
En þetta er ekki allt því einnig mun
myndlistin rokka í kjallara Hins húss-
ins milli kl. 16.00 og 18.00. Þar munu
þátttakendur í námskeiði fyrir ungt
fólk, sem Ásdís Sif Gunnarsdóttir og
Ragnar Kjartansson hafa leitt, gera
ýmsar tilraunir á mörkum mynd-
listar og tónlistar á staðnum. Mark-
mið námskeiðsins er að opna augu
þátttakenda og almennings fyrir fjöl-
breyttum möguleikum myndlistar
sem eru svo miklu fjölbreyttari en
hefðbundin málverk og skúlptúrar.