blaðið - 01.04.2006, Blaðsíða 4

blaðið - 01.04.2006, Blaðsíða 4
Þú færð fenningargjafirnar hjá okkur m „Kenna má jákvæða hegðun" Stuðningur við jákvœða hegðun í skóla þykir hafa skilað góðum árangri í Bandaríkjunum Guilstniðia Óla í smáralind Aukinn hagn- aður Flug- stöðvarinnar Starfsemi Flugstöðvar Leifs Eiríks- sonar hf. skilaði eins milljarðs króna rekstrarhagnaði árið 2005 samkvæmt ársuppgjöri félagsins. sem birt var í gær. Arið 2004 nam rekstrarhagnaðurinn um 900 millj- ónum og eykst hagnaður því um 100 milljónir milli ára. Samkvæmt ársuppgjörinu námu rekstrartekjur flugstöðvarinnar og dótturfélaganna tveggja, Fríhöfnin ehf. og íslenskur markaður ehf., um 6,2 milljörðum og jukust tekjurnar um 6,3% milli ára. Á sama tíma námu rekstrargjöld 4,2 milljörðum og jukust um 4,7% frá fyrra ári. I ársuppgjörinu kemur líka fram að farþegum á Keflavíkurflugvelli fjölgaði um 11% á síðasta ári sem var talsvert umfram spár. Gert er ráð fyrir því að á þessu ári fari um 2 milljónir farþega um Keflavík- urflugvöll en til samanburðar má nefna að árið 2002 voru farþegarnir um 1,2 milljónir. Þá kemur fram í uppgjörinu að fyrsti áfangi nýs brottfarasvæðis verði tekinn í notkun á vordögum og þegar yfirstandandi fram- kvæmdum lýkur snemmsumars 2007 verði brottfarasvæðið meira en www.expressferdir.is 4 I INNLENDAR FRÉTTIR LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 blaöiö Ragnar Þorsteínsson Ragnar Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Þjónustumiðstöðv- arinnar í Breiðholti, hefur 30 ára starfsreynslu úr skólakerfinu og kom nýlega af ráðstefnu í Bandaríkj- unum um stuðn- ing við jákvæða hegðun í skóla, „Positive Be- havior Support“ (PBS), sem er hegðunarmótun- arstefna sem skilað hefur góðum árangri þar í landi og reynd hefur verið í tveimur grunnskólum hérlendis. Ragnar segir að PBS, sem gengur út á stuðning við jákvæða hegðun nemenda, hafi verið reynd í Fella- skóla og Ingunnarskóla og gefist vel. „PBS gengur út á að styrkja mark- visst jákvæða hegðun en markmið stefnunnar er að auka félagsfærni og bæta hegðun nemenda. Aður en vinna hefst í PBS þarf að skilgreina í hvaða aðstæðum erfið hegðun kemur fyrir og takast á við hana áður en hún kemur fram. Þá er lögð áhersla á að kenna rétta hegðun áður en röng hegðun á sér stað. PBS hefur verið notað í Bandaríkj- unum í áratugi og þeir nemendur sem stefnan hefur verið prófuð á koma betur út varðandi hegðun og námsárangur. Rannsóknir á PBS í Bandaríkjunum hafa einnig sýnt RADIOHEAD í KAUPMANNAHÖFN 6.-8. MAI Það verður heldur betur tónlistarveisla I Kaupmannahöfn þegar Radiohead mætir á svæðið 6. mal næstkomandi. Skelltu þór í lúxusferð á tónleika Radioheadl Gist verður á hinu glæsilega hóteli, Skt. Petri. TÓNLEIKAR I KAUPMANNAHÖFN 49.900 kr. INNIFAUÐ: Flug og flugvallaskattar, 2 nætur á hóteli með morgunverði og miði á tónleika Radiohead. Miðað er við að tveir séu saman f herbergi. » Nánar á www.expressferdir.is Express Ferðir, Grfmsbæ, Efstalandi 26, slmi 5 900 100 Express Ferðir Forðasknfstofa í eigu fceiand Express að greiningum hefur fækkað um 30-50% í þeim skólum sem hún er notuð.“ Ragnar segir að PBS þurfi tíma til að sanna sig hérlendis en segir ekkert því til fyrirstöðu að árangurinn verði jafn góður hér og erlendis. „Þessi stefna sannar að það er hægt að kenna jákvæða hegun." 220 tilvísanir á tíu mánuðum Ragnar segir að þegar grunnskólarnir voru fluttir til sveitarfé laganna árið 1996 hafi verið tekið upp markviss vinna í hegðun- arvandamálum grunnskólanem- enda. Nú hafa heyrst raddir um að aga- vandamál í skólum séu orðin meira áber- andi en áður. Hver er þín skoðun á því? „Ég er ekki þeirrar trúar að heimurinn fari versnandi en það er hins vegar staðreynd að hegðun nemenda endurspeglar það þjóðfé- lagslag sem við búum í - en það hefur breyst gríðarlega á undanförnum ára- tugum. Foreldrar hafa minni tima fyrir börnin sín en áður og mun fleiri börn búa aðeins hjá öðru foreldrinu. Þá eru eiturlyf og aðrar freistingar •til staðar sem ekki voru fyrir hendi í jafn_ miklum mæli áður. Ragnar segir að á síðustu tíu mán- uðum hafi 220 tilvísanir borist til Þjónustumiðstöðvarinnar í Breið- holtinu og að 50% þeirra tilvísana hafi komið vegna hegðunarröskunar eða gruns um athyglisbrest og of- virkni. „PBS hefur einmitt reynst ár- angursrík á nemendur með hegðun- arröskun og þessi stefna ætti því að passa vel inn i íslenska skólakerfið.“ Þegar Ragnar er spurður um þann fjölda aðstoðarbeiðna sem borist hafa Þjónustumið- stöðinni í Breiðholti segir hann fjöldann samsvara því að 3-5% barna þurfi á aðstoð að halda. Fársjúkir nemendur í skólakerfinu bíða þjónustu Ragnarsegiraðþó margt sé vel gert í skólakerfinu séu þar einnig fársjúkir nemendur sem fái ekki þá þjónustu sem þeir þurfa. „Þessir nemendur ættu að vera á ábyrgð heilbrigðiskerfisins en á barna- og unglingageð- deild eru langir biðlistar. Aukþess sem þessir nemendur fá ekki úrræði við hæfi geta þeir einnig skemmt fyrir öðrum nemendum með trufl- andi hegðun sinni.“ — Nýtt tilvísunarkerfi Hjartasjúklingar þurfa framvegis að fá sérstaka tilvísun frá heilsu- gæslu- eða heimilislækni til að fá endurgreiddan sjúkrakostnað vegna þjónustu hjartasérfræð- ings samkvæmt nýrri reglugerð frá heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneyt- inu sem tekur gildi í dag. Reglugerðin kemur í kjöl- far uppsagnar hjartasérfræðinga á samningi sínum við Læknafélag Reykjavíkur og samninganefnd heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra. Bregðast við aðstæðum Samkvæmt nýrri reglugerð heil- brigðis- og tryggingamálaráðu- neytis þurfa hjartasjúklingar framvegis sérstaka tilvísun frá heilsugæslu- eðaheimilislæknum til Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- ogtrygg- ingamálaráðherra. að fá endurgreiddan sjúkrakostnað vegna þjónustu hjartasérfræðings. Fólk sem kýs að leita beint til sérfræðinga án þess að fara fyrst til heilsugæslu- eða heimilislæknis mun þurfa að greiða sjálft fyrir þjónustu hjartalæknis og á ekki end- urgreiðslurétt gagnvart Trygginga- stofnun ríkisins(TR). Hjartalæknar ákváðu að segja upp samningi sínum við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið um síðustu áramót eftir að þeim þótti ljóst að þeir gætu ekki annað eftir- spurn miðað við gildandi samninga án þess að taka að sér stærsta hluta kostnaðarins. Ekki náðist að komast að nýju samkomulagi og tekur því upp- sögnin gildi frá og með deginum í dag. Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, segir hina nýju reglugerð tryggja endur- greiðslurétt þeirra einstaklinga sem þurfi á þjónustu hjartasérfræðinga að halda. „Við erum að bregðast við þessari stöðu gagnvart þessum hópi. Það sem breytist núna er að til þess að fá endurgreiðslu þurfa menn fyrst að leita til heilsugæslu- eða heimilislæknis. Hluti fólks mun væntanlega fá úrlausn á því stigi og þarf því ekki að leita til sérfræðinga.“, Siv segir hið nýja kerfi ekki þýða það að efnameiri einstaklingar eigi greiðari aðgang að hjartasér- fræðingum. Hún segir markmiðið vera að reyna að bjóða fólki upp á úrlausn áður en það þurfi að leita til sérfræðinga. „Hagsmunir allra er að tryggja þjónustu og eðlilegar endurgreiðslur til þeirra sem eiga rétt á þeim.“ Reglugerðin tekur gildi frá og með deginum í dag. Þeir sem fá þjónustu hjá sérfræðingum í eina viku frá gildistöku þurfa þó ekki sér- staka tilvísun frá heilsugæslu- eða hemilislækni til að eiga rétt á endur- greiðslu kostnaðar frá TR. Sími: 575 0200 - Melabraut 19 - Hafnarfirði - www.danco.is Er ferming, afmæli, brúðka eða veisla framundan... Mikið úrval af ómótstæðilegum eftirréttum. Kíktu á okkur á sýningunni MATUR 2006 f Fífunni, Kópavogi um helgina, 1. og 2. apríl. DANCO HEILDVERSLUN Opið Hús í dag frá kl: 16 -18 Einnig á Mánudag. 3/4 og Þriðjudag. 4/4 frá kl: 18 - 19 Lautasmári 26. fbúð 0202 Sérlega björt,snyrtileg og vel umgengin 3ja herbergja 96,5 fm (búð á annari hæð (þriggja hæða og sex ibúða fjölbýlishúsi þar sem eru tvær (búðir á hverri hæð á frábærum stað ( Smáranum þar sem stutt er i alla verslun og þjónustu ásamt skólum, leikskóla og (þróttaraðstöðu. Suður svalir. Þvotthús innan fbúðar. Fallegt 45 gráðu lagt eikarparket. Verð 22.8 m. Eigendur íbúðarinnar, þau Stefán og Sigfrfður hafa opið hús og bjóða ykkur velkomin að skoða fbúðina Salómon Jónsson - lögg.fast.sali Suðurlandsbraut 50 S:513 4300, Smáralind S:564 6655 hrihiiHfar utm funn /wjf Vextir íbúða- lánasjóðs hækka mbl.is | í kjölfar útboðs á íbúða- bréfum hefur fbúðalánasjóður ákveðið að útlánsvextir íbúða- lána sjóðsins verði hækkaðir úr 4,65% í 4,85% og tekur hækk- unin gildi í dag, 1 apríl. Með reglugerð er íbúðalána- sjóði heimilt að bjóða viðskipta- vinum sínum að taka íbúðalán með því að greiða sérstakt upp- greiðsluálag. Stjórn íbúðalána- sjóðs hefur því ákveðið að bjóða viðskiptavinum sjóðsins einnig að taka ibúðalán með sérstöku uppgreiðsluálagi en vext ir slíkra lána verða 0,25% lægri en vextir hefðbundinna húsnæðislána.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.