blaðið - 01.04.2006, Blaðsíða 24

blaðið - 01.04.2006, Blaðsíða 24
24 I SAGA LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 blaðið Við emm öll í dauðafœri íslenskir fjölmiðlar hafa oft átt góða spretti þann fyrsta apríl og ófáir blótað fréttamönnum í sand og ösku eftir velheppnaðan grikk. A fréttastofu Stöðvar i var ætíð mik- ill metnaður lagður í undirbúning fyrsta aprílgabbs og segir Eggert Skúlason, fyrrverandi fréttamaður, að þar á bæ hafi stundum verið settur upp sérstakur vinnuhópur til að undirbúa daginn. „Skemmtilegasta aprílgabb sem ég hef tekið þátt í var þegar mikil um- ræða var um að olíufélagið Irving Oil frá Kanada væri að koma til fs- lands. Margir hlökkuðu til og aðrir voru hræddir. Við brugðum á leik með Esso og prentuðum stóra borða sem við settum upp á bensínsstöð- ina við Ártúnshöfða og tókum síðan myndir af því þegar verið var að draga Esso-fánana niður og draga Irving Oil-fána að húni. f fréttatím- anum var sagt frá því að þeir væru komnir og væru að opna fyrstu bensínstöðina af mörgum og verðið átti að vera 20 krónur á lítrann það kvöldið. Það kom múgur og marg- menni og að sjálfsögðu mynduðum við þáð,“ segir Eggert og bætir við að margir hafi verið fúlir. „Ég man að þegar ég kom heim þetta kvöld hafði konan mín hlaupið fyrsta apríl og það var ekki gott að borða það kvöldið," segir hann. Eggert segir það ekki koma sér á óvart hversu margir falli í gildru á þessum degi enda hafi hann sjálfur oft hlaupið fyrsta apríl. „Maður hugsar með sér að kvöldi 31. mars að maður verði að gæta sín en síðan vaknar maður bara ferskur inn í nýjan dag og það er ekki það fyrsta sem maðurhugsarað nú ætli einhver að plata mig. Við erum öll í dauða- færi þennan dag,“ segir Eggert. Sumarið er að koma! Veiðikortið 2006 Kortið gildir sem veiðileyfi í 23 veiðivötn vítt og breitt um landið. Veiöikortið er fjölskylduvænt og stuðlar að notalegri útiveru. Ný vötn eru: - Þingvallavatn fyrir landi Þjóögarðs - Ljósavatn - Hraunsfjörður Nánari upplýsingar um önnur vötn eru á vef Veiöikortisins www.veidikortid.is Sölustaöir: ESSO stöövarnar - veiöibúöir og víöar Nýr Heímur á Netinu Skoðaðu nýju vefina okkar: www.heimur.is www.icelandreview.com www.tolvuheimur.is heimur Fyrsti april, íiflið þitt! Uppruni þeirrar hefðar að láta fólk hlaupa fyrsta apríl er ekki ljós. Sumir telja að hefðin tengist árs- tíðaskiptum en aðrir telja að hún tengist breytingum á tímatali. Til forna var nýársdegi fagnað í mörgum menningarsamfélögum þann 1. apríl sem á sér stað skömmu eftir jafndægur að vetri. Víða í Evrópu var nýju ári fagnað á boðunardegi Maríu (25. mars) á mið- öldum. Það er athyglisvert að haldið hefur verið upp á daga fáránleika og glens í kringum fyrsta apríl í ólíkum menningarsamfélögum í gegnum tíðina. Rómverjar fögnuðu hátíð- inni Hilaria þann 25. mars til að fagna upprisu Attisar og hindúar og gyðingar héldu svipaðar hátíðir. Neituðu að taka upp nýtt tímatal Árið 1582 skipaði páfi Gregoríus XIII að taka skyldi upp nýtt tíma- tal (gregoríanska tíma- talið) í stað gamla júlíanska dagatalsins. Samkvæmt nýja dagatal- inu átti að fagna nýju ári þann 1. janúar. Sagan segir að margir hafi annað hvort neitað að samþykkja þessar breytingar eða ekki vitað um þær og héldu því áfram að fagna nýju ári þann 1. apríl. Aðrir sáu sér leik á borði og gerðu gys að þeim sem héldu fast í hefðina og létu þá hlaupa fyrsta apríl eða göbbuðu þá á annan hátt. Með tíð og tíma breiddist sá siður út um alla Evrópu. Margir Frakkar brugðust ókvæða við árið 1986 þegar dagblaðið Le Parisien greindi frá því að til stæði að taka Eiffel-turninn niður og reisa hann á ný í Disneylandi. Það er að minnsta kosti tvennt sem mælir gegn þessari skýringu. 1 fyrsta lagi skýrir hún ekki að fullu útbreiðslu hefðarinnar til annarra Evrópuríkja. Gregoríanska tíma- talið var til dæmis ekki tekið upp á Englandi fyrr en 1752 en þá hafði siðurinn þegar fest sig vel í sessi. I öðru lagi eru ekki til neinar sagn- fræðilegar heimildir fyrir þessari skýringu heldur er hún aðeins byggð á seinni tíma getgátum. Fíflin stjórna ríkinu Joseph Boskin, sagnfræði- prófessor við Boston háskóla, kom með aðra skýringu á uppruna hefðarinnar fyrir rúmum tuttugu árum. Bo- skin sagði að uppruna hennar mætti rekja til valdatíðar róm- verska keisarans Konstantínusar. Hópur hirðfífla og æringja sögðu keisaranum að þeir gætu stjórnað ríkinu betur en hann. Konstan- tínus lét til leiðast og leyfði einu hirðfíflinu Kugel að nafni að ráða ríkjum í einn dag. Kugel gaf út til- skipun þess efnis að fáránleikinn myndi ráða ríkjum á þessum til- tekna degi og upp frá því varð sið- urinn að árlegum viðburði. „Á vissan hátt var þetta mjög al- varlegur dagur. Á þessum tíma voru fíflin hinir raunverulegu spek- ingar. Það var í þeirra verkahring að setja hlutina í nýtt samhengi með því að beita kímnigáfu,“ sagði Boskin. Athygli almennings var vakin á þessari skýringu árið 1983 í grein frá AP-fréttastofunni sem birtist í mörgum dagblöðum. Það var aðeins einn galli á gjöf Njarðar. Boskin hafði spunnið söguna upp frá rótum. Það var ekki fyrr en tveimur vikum síðar að starfs- menn AP-fréttastofunnar áttuðu sig á því að þeir höfðu sjálfir verið plataðir upp úr skónum. HEDENSTED CA|AVAN X-pert in camping and outdoor life íTW Hedensted Caravan is one of the leading Camping stores in Jylland Denmark. And now you also have the opportunity to buy our top quality products and at the same time save a lot of money. r 1 A small selection of our 2006 Adria program Adria Classica 743UP 18.225 EUR Adria Classica 663KP 16.614 EUR Adria Classica 613PK 16.722 EUR Adria Classica 613UT 15.757 EUR Adria Adora 552PK 13.291 EUR Adria Adora 552UK 13.077 EUR Adria Adora 512UP 12.648 EUR Adria Adora 462PU 11.898 EUR Adria Altea 512UP 10.181 EUR Adria Altea 502DT 9.645 EUR Adria Altea 502DK 9.645 EUR Adria Altea 432PX 9.217 EUR All prices are exclusive vat, duty é intl freight. Subject to exchange movement and typing errois. L. Á Visit our webside WWW.HEDENSTEDCARAVAN.DK to see over 100 caravans each presented by 5 pictures and specifications. Hedensted Caravan have great experience with export to Island and we can deliver Caravans directly to Seyðisfjörður and camping equipment directly to your doorstep. TIL AÐ FÁ TILBOÐ VINSAMLEGAST HAFIÐ SAMBAND VIÐ: Mr. Niels Lund-Nielsen sími: 0045 75890677 netfáng: Niels.lund@hedenstedcaravan.dk Mánudaga til Föstudaga milli 09:00 -17:00 Laugardaga milli 10:00-16:00 Ástríkur galvaski Þorp Ástríks fundið Löng hefð er fyrir því að fjölmiðlar bregði á leik þann fyrsta apríl og spinni upp ótrúlegustu sögur og fréttir í því skyni að hafa fólk að fífli. Á þessum degi árið 1878 greindi blaðið Graphic í New York til dæmis frá því að Thomas Edi- son hefði fundið upp vél sem gæti breytt jarðvegi í kornmeti og vatni í vín og þar með væri lausn fundin á matvælaskorti í heiminum. Slíka trú höfðu menn á snilligáfu Edisons á þessum tíma að margir tóku frétt- ina trúanlega. Árið 1993 birti enska dagblaðið The Independent frétt þess efnis að fornleifafræðingar hefðu grafið upp þorp teiknimyndahetjunnar Ástríks á Bretagne-skaga í Frakk- landi. Þorpið var sagt vera í Le Yau- det nálægt Lannion á næstum sama stað og í bókum Frakkans René Coscinny. Ófáum Frökkum brá í brún fyrsta apríl 1986 þegar dagblaðið Le Pa- risien birti frétt þess efnis að kom- ist hefði verið að samkomulagi um að taka Eiffel-turninn niður. Þetta fræga tákn borgarinnar átti slðan að reisa á ný í Euro-Disney skemmti- garðinum rétt fyrir utan borgina. Ekki tóku Bretar betur frétt breska ríkisútvarpsins nokkrum árum fyrr um að til stæði að setja upp stafræna klukku í Big Ben. Fjöldi reiðra útvarpshlustenda hafði samband við útvarpið og mótmælti ráðstöfununum harðlega.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.