blaðið - 01.04.2006, Qupperneq 10
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 blaöiö
10 I ERLEWDAR FRÉTTIR
Kcads bv
~ F3 I M I
VJ/ ? I R E l'-J 2 E
www.zoppini.com
Meba - Kringlunni
Rhodium - Kringlunni
Meba Rhodium - Smáralind
Úr & Gull - Firði Hafnarfirði
Georg V. Hannah - Keflavík
Guðmundur B. Hannah - Akranesi
Karl R. Guðmundsson - Selfossi
Klassík - Egilsstöðum
Sólríkt hundalíf
Stærsta gæludýrasýning Japans hófst íTokýó í gær. Búist er við að um tuttugu þúsund
gestir komi og virði fyrir sér helstu nauðsynjavörur fyrir hunda, ketti, hamstra og önnur
dýr. Meðal þeirra„nauðsynjavara" sem gestir geta skoðað eru sólgleraugu og demants-
ólar.
Hættir Blair um áramótin?
Breskir fjölmiðlar greindu frá því í
gær að Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, muni hugsanlega segja
af sér um næstu áramót. Blaðið Da-
ily Telegraph hefur eftir mönnum í
innsta hring forsætisráðherrans að
hann sé búinn að taka ákvörðun
um afsögnina. Blair hefur áður lýst
því yfir að hann muni ekki bjóða sig
fram í næstu kosningum en hann
ætli sér að sitja út þetta kjörtímabil.
Óánægja meðal flokksmanna og
umdeild mál tengd forsætisráðherr-
anum kunna að verða til þess Blair
komist ekki hjá því að segja af sér
fyrr en hann ætlaði sér.
Umdeildar lánveitingar til Verka-
mannaflokksins í aðdraganda
síðustu kosninga og erfiðleikar rík-
isstjórnarinnar við að hrinda end-
urbótum á menntakerfi landsins í
framkvæmd hafa þrengt verulega
stöðu Blair. Forsætisráðherrann
er sakaður um að hafa þegið lán-
veitingar fyrir hönd flokksins frá
auðmönnum gegn því að þeir voru
tilnefndir til setu í lávarðadeild
þingsins. Einnig er óeining innan
flokksins um fyrirhugaðar endur-
bætur á menntakerfi Bretlands.
HverfurTony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, brátt af sjónarsviðinu?
Ásamt þessu ganga ýmsir fortíðar-
draugar ljósum logum innan þing-
flokksins. Enn er deilt um stuðning-
inn við innrás Bandaríkjanna í frak
og fleiri mál hafa magnað upp krofu
um afsögn Blair. Margir þingmenn
telja að staða flokksins muni ekki
styrkjast fyrr en að Blair segi af sér
enda sýni kannanir að óvinsældir
flokksins stafi fyrst og fremst af
veikri stöðu forsætisráðherrans.
Búist er við að Gordon Brown,
fjármálaráðherra, taki við af Blair
segi hann af sér. Að sögn Daily Tele-
graph krefjast áhrifamiklir þing-
menn innan flokksins að Blair láti af
embætti sem fyrst. Talið er að John
Prescott, aðstoðarforsætisráðherra,
sé að reyna að vinna að málamiðlun
sem felur í sér að forsætisráðherrann
undirbúi jarðveginn fyrir valdatöku
Brown með því að láta af embætti
með ákveðinni reisn. Þessi kenning
fékk byr undir báða vængi þegar
Prescott var spurður í þinginu á mið-
vikudag hvenær forsætisráðherrann
hygðist segja af sér. Prescott svaraði:
„Það er fyrir mig að vita og ykkar að
finna út.“ Dagblaðið Evening Stand-
ard flutti fréttir af því í vikunni að
Blair muni lýsa yfir hvenær hann
hyggist segja af sér á flokksþingi
Verkamannaflokksins síðar á árinu.
Talsmenn forsætisráðherrans hafa
neitað að eitthvað sé hæft í fréttinni.
Stjórnmálaskýrendur telja af-
sögn Blair blasa við og benda á að
fari Verkamannaflokkurinn illa út
úr sveitastjórnarkosningum í maí
muni það flýta fyrir afsögninni.
~>Uckburn berst óvæntur liðsauki
fíeuters
,su, utanrikisráðherra Bretlands, færöi Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, keppnistreyju úrvalsdeildarliðs
Blackburn á Ewood-leikvanginum í gær. Rice er á ferðalagi um Evrópu þar sem hún hefur rætt við ráðamenn um kjarnorkuáætlun
frana. Þrátt fyrir meiðsli leikmanna verður Rice ekki I leikmannahópnum þegar liðið mætir Wigan á mánudag.
STANGAVEIÐIMENN ATHUGIÐ
Nýtt námskeið í fluguköstun hefst sunnudaginn 2. apríl íTBR húsinu
Gnoðavogi 1 klukkan 20:00.
Kennt verður 2., 9., 23. og 30. aprll.
Við leggjum til stangir. Skráning á staðnum gegn greiðslu (ekki kort).
Mætið tímanlega. Munið eftir inniskóm.
Verð krónur 8.000 en krónur 7.000 til félagsmanna gegn framvísun
gilds félagsskírteinis.
Upplýsingar veita Gísli í sima 894-2865 og Svavar í síma 896-7085
KKR, SVFR og SVH $
KARATE
ÍSLANDSMEISTARAMÓTIÐ í
KATA
íþróttahúsi Fjölnis
í Grafarvogi
Laugardaginn 1. apríl kl. 13
Úrslit hefjast kl. 16
Aðgangur ókeypis
Yfirvofandi
stjórnarkreppa
í Taílandi
Gengið verður til þingkosninga í
Taílandi á morgun. Kosningarnar
munu ráðapólitískri framtíð Thaksin
Shinawatra, forsætisráðherra lands-
ins. Thaksin rauf þing fyrr á árinu og
boðaði til kosninganna í kjölfar mik-
illa mótmælaöldu sem reið y fir vegna
spillingaásakanna á hendur forsæt-
isráðherranum. Þrír stærstu stjórn-
arandstöðuflokkarnir á þingi hafa
ákveðið að sniðganga kosningarnar.
Óvist er að kosningarnar bindi enda
á kreppuna í stjórnmálum landsins
þar sem niðurstaða þeirra gæti falið
í sér að ómögulegt verði að mynda
ríkisstjórn.
Samkvæmt stjórnarskrá Taílands
má neðri deild þingsins einugis koma
saman þegar lokið er kosningu full-
trúa í öll fimmhundruð sætin. Þar
sem að þingmaður getur ekki tekið
sæti nema að hann hafi að minnsta
kosti stuðning tuttugu prósenta
kjósenda er hugsanlegt að ekkí ná-
ist að fylla öll þingsætin að loknum
kosningum. I sumum kjördæmum
eru einungis frambjóðendur flokks
forsætisráðherrans í framboði og því
getur farið svo að þeir fái ekki nægj-
anlegan fjölda atkvæða til þess að
taka sæti á þinginu.
Thaksin hefur lýst því yfir að styðji
meirihluti kjósenda aðra flokka eða
skili auðu muni hann segja af sér.