blaðið - 01.04.2006, Qupperneq 12
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 blaAÍÖ
12 I FRETTASKÝRING
Aftökur trúskiptinga fátíðar
Mál Abdul Rahman, afgansks
manns sem stefnt var fyrir dómstóla
í heimalandi sínu og átti á hættu að
vera dæmdur til dauða fyrir þá sök
að hafa skipt um trú, vakti hörð
viðbrögð þjóðarleiðtoga, mannrétt-
indasamtaka og fleiri í nýliðnum
mánuði.
Máfið hreyfði ekki síður við vest-
rænum sérfræðingum í íslömskum
fræðum sem hafa lengi deilt um
hlutverk hinna ströngu sjaríalaga
í nútímasamfélagi. Sérfræðingar
halda því fram að ekkert sé í Kór-
aninum, helgri bók múslíma, né í
kenningum Múhameðs spámanns
sem banni trúskipti eða krefjist þess
að þeir sem skipti um trú skuli láta
lífið fyrir. Það var ekki fyrr en eftir
andlát Múhameðs sem sú hugmynd
kom fram og það var ekki síður af
pólitískum ástæðum en trúarlegum.
Afneitun trúar er alvarleg synd
í augum margra múslíma og sam-
kvæmt sjaríalögum liggur dauðarefs-
ing við henni.
Framsæknir fræðimenn í
íslömskum fræðum halda því fram
að merking lagagreinanna hafi tekið
breytingum með tímanum. Þegar
þær hafi verið settar hafi trúhvarf
jafngilt landráðum.
Aftökur fyrir trúhvarf fátíðar
íslamskir lögfræðingar sem styðja
aftökur þeirra sem hverfa frá trúnni
benda oft á hadith-hefðina sem rakin
er aftur til Múhameðs spámanns.
Samkvæmt henni lét hann svo um
mælt að taka ætti af lífi hvern þann
sem tæki upp önnur trúarbrögð. 1
Kóraninum er aftur á móti hvergi
hvatt til aftakna vegna fráhvarfs frá
trú. Ekki eru til neinar heimildir
Reuters
Afganskir menn biðja fyrir í Pul-i-Khishti moskunni í Kabúl, höfuðborg Afganistans í síðustu viku. Mál afgansks manns sem sagði skilið
við íslam og tók upp kristni hefur vakið upp margar spurningar um stöðu sjaríalaga í nútímasamfélagi og spennu milli kristinna og
múslíma.
um að spámaðurinn sjálfur hafi
látið taka nokkurn mann af lífi fyrir
þessar sakir og í sögu íslams hafa af-
tökur vegna þeirra verið fátíðar.
Þó að aftökur vegna trúhvarfs séu
sjaldgæfar eru lög sem heimila þær
enn í gildi, ekki aðeins í Afganistan
heldur einnig í Sádí Arabíu, {ran og
Súdan.
í flestum ríkjum múslíma er yfir-
leitt litið fram hjá lögum sem kveða
á um aftökur trúskiptinga. Fæst
þeirra hafa þó sett formleg lög gegn
trúskiptum.
Það sem flækir málið enn frekar
er að í íslam er ekki til neitt miðlægt
kennivald eða stofnun líkt og Vat-
íkanið er fyrir kaþólska sem gæti
kveðið upp lokaúrskurð í deilum
um kennisetningar.
Ósamræmi veraldlegra
og trúarlegra laga
Sérfræðingar segja að íhaldsmenn
nýti sér mál á borð við mál Rahmans
í pólitískum tilgangi. „íslamistar
munu alltaf nota mál sem þessi til
að styrkja pólitíska stöðu sína og trú-
verðugleika," sagði Bernard Haykel,
prófessor í íslömskum fræðum við
New York háskóla í viðtali við New
York Times.
I nýrri stjórnarskrá Afganistans
er bæði gert ráð fyrir trúarlegum
og veraldlegum lögum en ekki er
ljóst hvernig ganga mun að sam-
ræma þau. I stjórnarskrá landsins
stendur að engin lög skuli ganga í
berhögg við trúna. Jafnframt segir í
stjórnarskránni að ríkið muni virða
Mannréttindasáttmála Sameinuðu
þjóðanna.
Afganistan er mjög íhaldssamt
ríki þar sem 99% þjóðarinnar eru
íslamstrúar. Talið er að aðeins séu
um 10.000 kristnir menn í landinu
og iðka þeir trú sína fyrir luktum
dyrum. Aðeins ein kirkja er í land-
inu, nánar tiltekið í kjallara ítalska
sendiráðsins í Kabúl.
Trúfrelsi víða skorður settar
Mál Abduls Rahman hefur ekki
aðeins beint kastljósinu að lögum
og aðgerðum ríkisstjórnar Afganist-
ans sem komið var á laggirnar eftir
innrás Bandaríkjamanna. Það er
einnig áminning um þær skorður
sem trúfrelsi er sett í mörgum
músHmaríkjum.
Þó að trúfrelsi sé tryggt i stjórnar-
skrám ríkja á borð við Egyptaland
og Pakistan eru skorður settar við
iðkun annarra trúarbragða en íslam
og lögregla beitir þá sem vilja skipta
um trú þrýstingi.
Trúarleg spenna milli kristinna
og múslíma hefur aukist í þessum
ríkjum á undanförnum árum og oft
tekur fólk lögin í sínar hendur.
f þorpum i Pakistan eru múslímar
sem snúist hafa til kristni einstöku
sinnum teknir af lífi af ættingjum
sínum sem er annt um heiður fjöl-
skyldunnar. I stærri borgum hafa
hópar íslamista gert árásir gegn
kirkjum kristinna vegna meintrar
samúðar þeirra með málstað
Bandaríkjamanna.