blaðið - 01.04.2006, Síða 30
30 I TILVERAN
LAUGARDAGUR l.APRÍL 2006 blaðið
Halldóm hugsar upphátt
Keppnin um konfektmolann!
Það er engum ofsögum sagt að íslenskar konur eru fallegar.
Þessu hefur lengi verið haldið fram og kvenþjóðin spígsporar
stolt um - meðvituð um eigin fegurð og með nokkuð sjálfs-
öryggi, enda berum við nafn með rentu sem fallegar konur.
Þetta deila fáir um. Engu að síður viljum við, eins og reyndar
aðrar þjóðir, keppa hver við aðra um fallegt útlit og hafa feg-
urðarsamkeppnir skotið rótum í íslensku samfélagi. Ég ætla
alls ekki að setja út á slíkar keppnir, enda hvers manns val
og óneitanlega aukið líf í tilveru okkar hinna þegar við fylgj-
umst með og veljum okkar konfektmola. Hins vegar get ég
ekki annað en lýst yfir hneykslan minni á einu atriði sem
prýðir allar keppnirnar; bikiníatriðunum þar sem stelpurnar
ganga hálfberar á sinn gyðjulega hátt á sviðinu á meðan þær
gera alls kyns æfingar með höndunum og passa sig á því að
hrynja ekki á bossann á tíu sentímetra hælunum. Nei, svona
án gríns! Ég er alls ekki að setja út á stelpurnar sjálfar og vil
taka það sérstaklega fram - ég er að setja út á þennan hluta
keppninnar og lýsa yfir vorkunn minni í garð stelpnanna
sem sýna líkama sinn frammi fyrir landsmönnum,
sem geta setið heima í stofu með popp í hendi og
mælt út brjósta- og rassastærðir keppenda. Þetta
er hálfsorglegt og ef ég á að segja eins og er líður
mér alltaf hálfilla fyrir hönd stelpnanna þegar
sirkusinn stendur sem hæst.
Kannski er ég bara svona hrikalega fordóma-
full eða viðkvæm, ég skal ekki segja. En fyrir
mína parta verð ég að viðurkenna að það renna
á mig tvær grímur bara við það eitt að labba
hálfber á sundlaugarbakkanum, af ótta við
að hinir ýmsu líkamspartar séu skotmark ein-
hverra augnanna. Hvað þá ef maður myndi nú
taka sig til og dilla þessu öllu framan í þjóðina...
Ef ég mætti ráða myndi ég mælast til þess að stelp-
unum yrði gert kleift að taka þátt í keppnum sem
þessum án þess að súlustaðirnir hefðu möguleika
á að litast eftir nýjum stúlkum í vinnu. Þetta hlýtur
«
að vera óþægilegt fyrir einhvern hluta
keppenda og því væri mun eðlilegra og
vægast sagt fágaðra að sniðganga þetta
atriði. Ég er líka viss um að margar af
stúlkunum sem taka þátt eru sammála
mér með þetta. Við þurfum ekkert að
sjá brjóstaskorur til þess að meta fal-
legar konur. Eins og sást til dæmis í
keppninni Ungfrú Reykjavík síðastlið-
inn fimmtudag eigum við ógrynni af
flottum og frambærilegum konum
sem þurfa ekkert á líkamanum að
halda til þess að ná langt. Þá vil ég
nú frekar sjá þær syngja, já eða bara
fara með ljóðstúf...
Halldóra Þorsteinsdóttir
HEIMAVÖRN SECURITAS - ÖRYGGISKERFI FYRIR HEIMILIÐ
Ert þú heilsufrík?
Það skiptir miklu máli að vera í
flottu formi á íslandi í dag. Aug-
lýsingar dynja á okkur þar sem
við fáum að vita að flotta fólkið
stundar þessa ákveðnu líkamsrækt
og drekkur ákveðna tegund af
vatni. Á sama tíma sjáum við þetta
flotta fólk í formi fá sér súkkulaði
með sykurlausa drykknum og
leggja bílnum í stæði fatlaðra til
þess að þurfa einungis að labba
tvö skref í ræktina. Oft er því
hollustan og hreyfingin meira á yf-
irborðinu en í raunveruleikanum.
Hvað með þig, ertu þú raunveru-
legt heilsufrík? Taktu prófið og þá
kemstu að sannleikanum!
Hvaða augum líturðu
hreyfingu?
a) Hún er mér nauðsynleg,
bæði til þess að mér líði vel og eins til
að viðhalda góðri heilsu.
b) Ég get alveg fundið margt betra
til að eyða deginum í, en maður
neyðist víst til að hreyfa sig einstaka
sinnum þannig að maður líti bæri-
lega út.
c) Stundumheldégaðéghreyfimig
of mikið, þannig að ég ætla að flytja í
minni íbúð. Ég er alveg uppgefin/n á
kvöldin eftir að hafa gengið þessi tíu
skref á klósettið og í eldhúsið.
d) Ég hreyfi mig samviskulega
tvisvar á dag og tek mikið á.
Hugsarðu um hvað þú lætur
ofaníþig?
a) Já vitanlega, hver gerir það
ekki? Til dæmis fer beikonborgari
mjög illa í mig en kjúklingaborgari
er góður. Enda er kjúklingur mjög
hollur.
b) Ég velti því svo sem ekkert sér-
staklega fyrir mér en passa þó að
borða mikinn fisk, kjúkling, græn-
meti og ávexti.
c) Já, enda ekkert vit í öðru. Ég
vigta allan mat og athuga hvað eru
margar kaloríur í honum, hve mikið
kolvetni og hve mikið prótein. Ég forð-
ast alla fitu og borða aldrei nammi
eða önnur sætindi, sé hreinlega ekki
tilganginn í því.
d) Eg hugsa stundum um það en
viðurkenni fúslega að ég mætti huga
betur að því. Ég ligg samt ekki í sukki
alla daga en mætti eflaust borða meiri
fisk og minna nammi.
Veltirðu því mikið fyrir þér
hvernig þú lítur út?
a) Hver gerir það ekld? Ég
passa upp á að fötin mín séu hrein og
að ég sé vel útlítandi en ég geri lítið af
því að kaupa mér föt.
b) Já, vitanlega geri ég það. Ég
kaupi mér reglulega föt og passa upp
á að ég fylgi tískunni.
c) Já og ég skammast mín ekki
fyrir það. Ég lít alltaf frábærlega vel út,
kaupi föt eftir nýjustu tísku og hendi
þeim eftir að ég hef notað þau.
d) Ég hef lítinn tíma til að velta
því fyrir mér og býst við að flestum
sé nolekuð sama um hvernig ég lít út.
Ég reyni þó að þrífa mig og fötin reglu-
lega en annars pæli ég lítið í þessu.
Hvernig kemstu ferða þinna?
a) Ég á fínan bíl sem kemur
mér hvert sem er.
b) Ég keypti mér fjallahjól á 250
þúsund krónur fyrir stuttu síðan og
get notað það hvort sem er að vetri
eða sumri.
c) Ég vildi óska að ég gæti gengið
eða hjólað í vinnuna en það er svo tíma-
frekt þannig að ég neyðist til að aka
bílnum mínum hvert sem er, meira
að segja í sjoppuna sem er í tveggja
mínútna íjarlægð frá heimilinu.
d) Ég geng hvert sem ég fer.
Þegar þú ætlar að dekra við
þig og hafa eitthvað ljúffengt
í matinn hvað verður fyrir
valinu?
a) Djúpsteiktur kjúklingur með
frönskum kartöflum, kokteilsósu og
2htrumafgosi.
b) Þrátt fyrir að ég vilji gera vel við
mig þá vil ég halda mér við hollustuna
því ég verð að líta frábærlega út. Ég fæ
mér því djúpsteiktan fisk því fiskur er
svo hollur, kartöflur og eitthvað sykur-
laust gos með.
c) Eg fæ mér nautalundir með
brúnum hrísgrjónum og vatni. Ef sér-
staklega vel liggur á mér þá fæ ég mér
örlitla sósu úr sýrðum rjóma.
d) Eitthvað ljúffengt kjöt sem ég
grilla, ásamt ofnsteiktu grænmeti,
hrísgrjónum, fitulitilli sósu og slettu
afrauðvíni.
6Hvað með andlega heilsu,
leggurðu rækt við sjálfa/n
þig?
a) Það er vitanlega ekki hægt að
tala um að vera heilsuhraustur án
þess að huga að andlegri heilsu. Ég
fer í klukkustundar slökun daglega
og læt annríki hversdagsins líða úr
mér. Auk þess hugleiði ég kvölds og
morgna.
b) Leggja rækt við hvað, hvaða bull
er þetta. Andleg heilsa mín er prýði-
leg, af hverju ætti hún ekM að vera
það? Það er bara eitthvað að þessu
asnalega prófi!
c) Ég geri mitt besta, sem er
reyndar ekki alltaf nógu gott. Ef lífið
er fullt af streitu þá reyni ég að slaka á
og vera góð/ur við sjálfan mig.
d) Ég lifi mjög annasömu lífi og
mætti leggja meiri rækt við sjálfa/n
mig. Það eina sem ég geri í raun fyrir
mig er að leyfa mér að horfa á heila-
lausa ameríska gamanþætti í smá
tíma á hverju kvöldi.
Hvaða líkamsrækt stundarðu
ef einhverja?
a) Ég reyni að komast í rækt-
ina þrisvar sinnum í viku og brenni í
svona hálftíma í senn.
b) Ég mæti klukkan sex í ræktina
á morgnana og lyfti lóðum. Seinni-
partinn fer ég í ræktina til að brenna
og þar eyði ég um tveimur tímum á
hlaupabrettinu.
c) Ég geng allra minna ferða og
læt það duga. Sennilega geng ég hátt
í fjóra tíma á dag.
d) Ég nenni ekki að eyða tíma
mínum í svoleiðis hégóma.
Teldu saman stigin:
i. a)3 b) 2 c)1 d)4
2. a)1 b) 3 e)4 d)2
3. a) 2 b)3 c)4 d)1
4. a) 2 b)3 01 d)4
5. a) 1 b)2 04 d)3
6. a)4 b) 1 03 d) 2
7. a)2 b) 4 03 d) 1
0-10 stig
Það væru ýkjur að halda því fram að
þú hugsir um heilsuna. Þér gæti ekki
staðið meira á sama og þú hugsar
aldrei um hollt mataræði. Þótt að öllu
beri að taka með hæfilegu kæruleysi
þá er heilsan mikilvæg og því ættirðu
að reyna að taka þig taki. Þótt þú hellir
þér ekki út í líkamsæfingar mörgum
sinnum í dag þá væri tilvalið að rölta
út í búð einstaka sinnum I stað þess að
keyra. Um leið og þú byrjar að hreyfa
þig þá muntu vafalaust finna fyrir mikl-
um breytingum til hins betra. Einnig
væri lag að bæta mataræðið þvi það er
hægt að elda Ijúffengan mat þótt hann
sé hollur.
11-18 stig
Þú veist best sjálf/ur að þú hugsar
ekki nægilega um heilsu og hollustu.
Viljinn virðíst svo sannarlega vera fyrir
hendi en eitthvað annað virðist stöðva
þig. Kannski er það tímaleysi, leti eða
hreinlega of lágt sjálfsmat. Horfðu á
jákvæðu hiiðarnar, þú liggur þó ekki í
óhollustunni og þú ert meðvituð/aður
um hvað þú þarft að gera. Það eina
sem þú þarft að gera er að taka þér taki,
minnka óhollustuna í lífinu og auka
hreyfinguna. Þér á eftir að liða betur
áður en þú veist af og hollusta verður
hluti af daglegu lífi þfnu.
19-23 Stig
Þú ert meðvituð/aður um heilsu, hvað
þú lætur ofan i þig og hvað hollusta
er. Þú hreyfir þig reglulega og ert með
mjög eðlilegt viðhorf gagnvart hreyf-
ingu og hoilustu. Þrátt fyrir að borða
mestmegnis hollan mat þá leyfirðu
þér alls kyns góðgæti endrum og eins.
Haltu áfram á þessari braut enda er
gott jafnvægi á milli hollustu og óholl-
ustu í þínu lifi.
24-28 stig
Það er ekkert leyndarmál að þú hugsar al-
deilis vel um heilsuna, svo mjög raunar að
það virðist eiga hug þinn alla daga. Það er
mjög mikilvægt að hugsa vel um heilsuna
en það er einnig mikilvægt að láta það
ekki fara úr böndunum. Það er hollt að
borða smá fitu einstaka sinnum og eins er
gaman að leyfa sér að borða smá nammi
fyrir framan sjónvarpið á föstudagskvöld-
um. Haltu áfram að hugsa um heilsuna en
ekki gleyma að lifa lífmu lifandi og leyfa
þér eitthvað einstaka sinnum.