blaðið - 01.04.2006, Síða 40
40 I MEWNING
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 blaðið
Smásögur Tolstojs í íslenskri þýðingu
Lafleur-útgáfan hefur gefið út allar
smásögur rússneska skáldjöfursins
Leó Tolstojs í nýrri þýðingu Gunn-
ars Dal, rithöfundar. Sögurnar eru
alls 23 og greinast í sjö kafla. Tol-
stoj er einkum þekktur fyrir stórar
og miklar skáldsögur á borð við
Stríð og frið og Önnu Karenínu en
þrátt fyrir það má segja að hann
hafi hafið rithöfundaferil sinn og
lokið honum sem smásagnahöf-
undur. Sjálfur taldi Tolstoj tvær
þeirra, Guð sér hið sanna en bíður
og Fangi í Kákasus,
það besta sem hann
hefði skrifað. f bók-
inni Hvað er list?
segir hann meðal
annars að fyrri
sagan sé fyrirtaks-
dæmi um trúarlega
list og sú síðari um
veraldlega list.
Þetta er í fyrsta
skipti sem smásögur
hans eru gefnar út í
heild sinni hér á
landi og því um tals-
verðan feng að ræða
fyrir áhugafólk um
bókmenntir.
Skáldspírukvöld
tileinkað Tolstoj
Auk þess að hafa
verið afkastamik-
ill útgefandi hefur
Benedikt Lafleur
staðið reglulega
fyrir skáldspírukvöldum á undan-
förnumárum. Næstkomandiþriðju-
dag verður 59. skáldaspírukvöldið
haldið i versluninni og verður
það sérstaklega tileinkað útkomu
bókarinnar. Gunnar Dal, þýðandi
smásagnanna, kemur sjálfur og les
úr bókinni og leggur út af erindi
hennar auk þess sem gestum gefst
kostur á að ræða um Tolstoj og verk
hans. Dagskráin hefst kl. 20 og er
aðgangur ókeypis.
*Tilboð gildir aðeins ef sótt er.
Hækkaðu þig
upp um einn
5? 12345
Opið alla daga frá 16:00 til 22:00
PRPINOS
P I Z Z fí
Sími: 5 9 12345
Nupalind I, 201 Kópavogi Reykjavíkurvegi 62, 220 Hafnarfirði
Liíheimur
H.C. Andersen
Ævintýraskáldið Hans Christian
Andersen er uppspretta innsetninga
sem þrír af helstu listamönnum sam-
tímans, Joseph Kosuth og hjónin og
samstarfsmennirnir Ilya og Emilia
Kabakov, sýna á Kjarvalsstöðum
og í Hafnarhúsinu. Forseti íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson, opnar sýn-
inguna á Kjarvalsstöðum á morgun
kl. 14 en opnunardaginn ber upp á
fæðingarafmæli H.C. Andersens.
Hluti sýningarinnar er í porti Hafn-
arhússins og er hún opnuð þar kl. 18
sama dag. Listamennirnir verða við-
staddir opnun sýningarinnar.
Bæði Kosuth og Kabakovhjónin
eru frumkvöðlar innan samtímalist-
arinnar. Joseph Kosuth var einn af
máttarstólpum listaheimsins í New
York á sjöunda áratugnum, þegar
grunnur var lagður að konseptlist-
inni og hefur síðan þá verið lifandi
goðsögn innan myndlistarheimsins.
Það sama má segja um Ilya Kabakov,
sem er þekktur sem „faðir Moskvu
konseptsins" og einn fremsti lista-
maðurinn sem kom frá fyrrum
Sovétríkjunum. Frá árinu 1989
hefur hann starfað með eiginkonu
sinni Emiliu að ævintýralegum
innsetningum sem hafa heillað
sýningargesti allra helstu listasafna
heimsins.
Sunnudaginn 2. apríl kl. 13
fjallar Emilia Kabakov um list
sína og Ilyas og sýnir myndir af
verkum þeirra. Fyrirlesturinn fer
fram í fundarsal Kjarvalsstaða.
Málþing um
japanskar
bókmenntir
íslensk-japanska félagið minnist 25
ára afmælis á þessu ári. Af því til-
efni stendur félagið fyrir málþingi
um japönsk ljóð og sögur í Háskóla
íslands, Odda, stofu 101, í dag kl. 14.
Aðalfyrirlesari verður Alan Cumm-
ings, lektor í japönsku máli og bók-
menntum við Lundúnaháskóla.
Nefnist fyrirlestur hans „Narrative
and geography in Kabuki“ og verður
fluttur á ensku.
Allir eru velkomnir á málþingið
sem haldið er í samvinnu við jap-
anska sendiráðið á íslandi.
Hallgrímskirkju 2. apríl kl.17:00
Flytjendur:
Hymnodio •
Kammerkór Akureyrarkirkju
Anno Zander - sópran, Helena G.
Bjornadótlif * sópran, S'igrún A.
Arngrímsdóttir • all, Míchael Jón Clarke
- borilon, Horalduf Hauksson • bassi,
lars 5jöstedl • orgel, hljómsveit skipuð
sænskum og íslenskum barokk-
tónlistormönnum.
Stjórnondi: Ey|jór Ingi Jónsson
Aógangseyrir kr. 2000,-/! 500,-
Miðasala í Hallgrímskirkju
s. 510 1000.