blaðið - 21.04.2006, Side 10

blaðið - 21.04.2006, Side 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 blaöiö BA bregst við samkeppninni George Bush skiptir um hest í miðri á Stjórnendur breska flugfélagsins Brit- ish Airways hafa ákveðið að lækka fargjöld á 65 áfangastöðum félagsins innan Evrópu um allt að 50% sam- kvæmt frétt breska ríkisútvarpsins. Á undanförnum árum hefur Brit- ish Airways mætt harðnandi sam- keppni af hálfu lággjaldaflugfélaga og með þessu vill félagið reyna að vinna aftur tapaða markaðshlutdeild. Vonast stjórnendur félagsins til að lækkunin skili sér í mikilli aukningu á miðasölu eða um allt að sjö millj- ónir flugmiða á ári. British Airways hóf áætlunarflug til íslands í lok marsmánaðar en ekki kom fram í frétt breska ríkisútvarps- ins hvort að lækkunin gildi fyrir flug- leiðina hingað til lands. Breytingar á starfsmannahaldi Hvíta hússins í vikunni þykja bera vott um kosningaskjálfta og vaxandi áhyggjur af versn- andi stöðu George W. Bush, forseta Bandaríkjanna. Forset- inn hefur enda aldrei mælst óvinsælli en nú í könnunum. Á miðvikudag var tilkynnt að Scott McClellan, talsmaður forset- ans, hygðist láta'af störfum. Sama dag var það tilkynnt að Karl Rove, sem gengt hefur starfi aðstoðar- skrifstofustjóra, myndi hverfa til annarra starfa. Breytingarnar eru gerðar í kjölfar þess að Josh Bolten tók við starfi skrifstofustjóra Hvíta hússins af Andrew Card. Bolten er sagður hafa fengið það verkefni að stokka upp í starfsliði George Bush og bæta ímynd núverandi ríkisstjórnar. Töluverð tíðindi fel- ast í brotthvarfi Rove og er talið að Bolten muni á næstunni reyna að sannfæra fleiri þekkt nöfn um að tímabært sé að víkja fyrir nýjum mönnum. Breytingarnar eru ekki taldar boða breytingar á stefnu stjórnar Bush. Þær miðast fyrst og fremst við að breyta ímynd óvinsællar stjórnar en talið er að óvinsæld- irnar verði til þess að repúblikanar tapi meirihluta sínum á þingi í kosningunum í nóvember. Staða demókrata styrkist í réttu hlutfalli við vaxandi óvinsældir forsetans og þingmenn repúblikana hafa sett mikinn þrýsting á forsetann um að stokka upp í starfsliði sínu. Sendiboðanum fórnað Eitt af því sem að þingmenn repú- blikana hafa gagnrýnt ríkisstjórn Bush fyrir er hversu illa er staðið að almannatengslum. ScottMcClellan hefur þótt býsna litlaus talsmaður forsetans og er honum meðal ann- ars kennt um að stefnumál forset- ans komist illa til skila til almenn- ings. En þrátt fyrir þá gagnrýni benda sumir á að McClellan hafi þurft að leysa úr býsna erfiðum verkefnum eins og svara fyrir ásak- anir um rangar upplýsingar um aðdraganda Irakstríðsins og skipu- lagsleysi við björgunarstörf eftir að fellbylurinn Katrína reið yfir suðurríki Bandaríkjanna. Talið er að Tony Snow tak við af McClellan. Snow starfar sem stjórnmálaskýr- andi hjá Fox-fjölmiðlaveldinu en var áður ræðuskrifari í forsetatíð George Bush eldri. „Heili Bush"hverfurtil annarra starfa Karl Rove, sem er ákaflega um- deildur maður bæði á meðal repú- blikana og demókrata, hefur verið nánasti ráðgjafi George Bush allt frá því að hann bauð sig fram til embættis ríkisstjóra Texas. Það þykir til marks um áhrif hans á stjórnmálaferil forsetans að Rove gengur undir nafninu „Heili Bush.” Hann hefur haft mikil áhrif á mótun og framsetningu stefnu- mála forsetans og er talinn til valdamestu manna í röðum repbú- blikana. Gott dæmi um stöðu hans er sú staðreynd að eftir að Bush náði endurkjöri árið 2004 þakkaði hann Rove fyrst og fremst sigurinn í kosningunum. Eftir kosningarnar 2004 var hann skipaður aðstoðarskrifstofu- stjóri í Hvíta húsinu, en áður hafði hann gengt stöðu aðalráðgjafa for- setans, og fékk meðal annars það verkefni að hafa yfirumsjón með tveim helstu stefnumálum forset- ans á kjörtímabilinu: að koma í gegn breytingum á félagslega kerf- inu og nýjum innflytjendalögum. Stjórninni hefur gengið illa að afla þessum málum stuðnings í fulltrúa- öldungadeildum þingsins. Hefur það styrkt þær gagnrýnisraddir meðal repúblikana sem segja að Karl Rove sé snillingur í að tryggja sigur í kosningum með frjórri hug- myndavinnu og stefnumótun en verri þegar kemur að því að hrinda sjálfum málunum í framkvæmd. Rove mun þó ekki hverfa al- gjörlega af sjónarsviðinu. Hann mun sinna kosningabaráttu repú- blikana í þingkosningunum í nóv- ember. Auk þess er talið liklegt að hann muni áfram hafa mikil áhrif innan veggja Hvíta hússins þótt að hann gegni ekki lengur formlegu embætti. Bakari fyrir smið Eitt sem vekur athygli við brott- hvarf Rove úr Hvíta húsinu er að óvinsældir forsetans meðal kjós- enda stafa fyrst og fremst af ástand- inu í Irak. Þær er aðeins unnt að litlu leyti að rekja til stefnumála hans innanlands. Það eru einmitt innanlandsmálin sem Rove hefur borið hitann og þungann af í rík- isstjórninni. Heimildir herma að Rove hafi á sínum tíma verið and- vígur innrás Bandaríkjamanna í írak, þrátt fyrir að hann hafi haft hönd í bagga með hvernig það stríð var réttlætt fyrir almenningi, og vekur því athygli að tveir helstu arki- tektar Íraksstríðsins, Dick Cheney, varaforseti, og Donald Rumsfeld, sitja sem fastast. Það kann þó að hafa haft áhrif á vistaskipti Rove að hann hefur legið undir ámæli vegna þáttar síns í hinu svokallaða „CIA-lekamáli“. Varöan veitir þér frítt greiðslumat Kynntu þér hvað við getum gert meira fyrir þig á landsbanki.is. __ Landsbankinn Njóttu þess aö vera í Vöröunni Einstakt tækifæri til þess að eignast kínverska listmuni beint frá framleiðendum SÖLUSÝNING Á HÁGÆÐA HANDGERÐU KÍNVERSKU POSTULÍNI Úti- eða inniblómapottar myndir - lampar vasar - skálar og fleira White like jade Bright as mirror Thin as paper Sound like a chime LÚXUS GJAFIR OG SÖFNUNAR VÖRUR - GÓÐ FJÁRFESTING Gleðilegt sumar 30-50% Komdu og semdu um afslátt Hlíðasmári 15 Kópavogi Sími 895 8966 Opið 10:00 - 21:00 Stórviðburður Sumar' sumarhúsið heimilió garðurinn ferðalög afþreying umhverfi og heilsa Laugardalshöll 21.-23. apríl 2006 Yfir 150 sýningaraðilar, skemmtilegar uppákomur og fjöibreytt afþreying alla helgina ... skiluru! Opnunartími sýningarinnar: Verð aðgöngumiða Föstud. 21. apríl kl. 16:00 - 19:00 kr. 1 .OOO fyrir fulloröna, kr. SOO fyrir 12 Frá kl. 12:00 - 16:00 ehigöngu upin fagadiluni. ára og ellilífeyrisþega og frítt fyrir börn I.augardagiiin 22. apríl kl. 11:00 - 19:00 yngri en 12 ára í fylgd meö fnllorönuin. Suniiudaginn 23. apríl kl. 11:00 - 18:00

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.