blaðið - 21.04.2006, Blaðsíða 32
32 I MENNIWG
FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 biaöiö
Á laugardag kl. 16 verður
sýningin Það gisti óður
- Snorri Hjartarson 1906-
2006 opnuð í bókasal Þjóð-
menningarhússins. Sýn-
ingin er haldin í minningu
Snorra Hjartarsonar og lífs-
starfs hans þegar 100 ár eru
liðin frá fæðingu hans þann
22. april 2006.
Rithöfundasamband ís-
lands sér um dagskrána við
opnun sýningarinnar þar
sem Hjörtur Pálsson flytur
erindi um skáldið, Þor-
leifur Hauksson og
Ragnheiður Steindórs-
dóttir lesa kvæði eftir
Snorra og Gunnar Guð-
björnsson og Jónas
Ingimundarson flytja
sönglög við kvæði
hans.
1 tilefni af þessum
tímamótum kemur
út ný heildarútgáfa á
verkum Snorra Hjartar-
sonar hjá Eddu útgáfu.
SU DOKU talnaþrautir
Lausn síðustu gátu
9 8 6 1 3 4 5 2 7
1 2 4 5 7 8 6 3 9
3 5 7 9 2 6 8 4 1
6 9 2 7 4 5 3 1 8
4 7 8 2 1 3 9 5 6
5 1 3 6 8 9 2 7 4
8 4 5 3 9 7 1 6 2
7 3 1 8 6 2 4 9 5
2 6 9 4 5 1 7 8 3
Su Doku þrautin snýst um
að raða tölunum frá 1-9
lárétt og lóðrétt í reitina,
þannig að hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
í hverri línu, hvort sem er
lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu
má aukin heldur aðeins
nota einu sinni innan hvers
niu reita fylkis. Unnt er að
leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins
8 5 4 6 2
4 7 1 6
1
3 2 9 5
8 5 3 1
6 8 3
2 7 8 6
9 1
6 3 9
SUDOKU BHOP- IS ©6610015
VILTU SKJOL A
VERÖNDINA?
MARKISUR
www.markisur.com
:iu. jt iari<
Dalbraut 3,105 Reykjavík • Nánari upplýsingar í sima
567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar
Áslaug Jónsdótttir og Sigrún
Árnadóttir íá barnabókaverð-
laun menntaráðs Reykjavíkur
Gott kvöld eftir Áslaugu Jóns-
dóttur hlýtur barnabókaverðlaun
menntaráðs Reykjavíkur árið 2006
sem besta frumsamda bókin. Verð-
laun fyrir bestu þýddu barnabók-
ina fær Sigrún Árnadóttir fyrir
Appelsínustelpuna eftir norska
rithöfundinn Jostein Gaarder, en
þetta er í þriðja sinn sem hún fær
þessi verðlaun fyrir bestu þýðingu
á barnabók. Mál og menning gaf
báðar verðlaunabækurnar út.
Þetta er í 34. sinn að fræðsluyf-
irvöld í Reykjavík veita höfundum
og þýðendum barnabóka verðlaun
fyrir metnaðarfullar ritsmíðar
og þýðingar fyrir börn. Markmið
verðlaunanna er að vekja athygli
á mikilvægi góðra bókmennta í
uppeldisstarfi og því sem vel er
gert á þessum mikilvæga vettvangi
íslenskrar bókaútgáfu. Úthlutun-
arnefnd var að þessu sinni skipuð
Katrínu Jakobsdóttur formanni,
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og
Eiríki Brynjólfssyni.
í bókinni Gott kvöld segir Ás-
laug Jónsdóttir í máli og myndum
frá litlum strák sem er skilinn
eftir einn heima á meðan pabbi
skreppur frá til að sækja mömmu.
Það væri nú ekki svo slæmt ef
bangsinn hans væri ekki hræddur
* * • •• •• ^ •
Jostein Gaarder
?tepelsínu
. stelpaij
við þjófa og vofur og myrkur og
skrýtin hljóð. Ýmsar furðuverur
heimsækja þá félaga þetta kvöld;
hungurvofan, tímaþjófurinn og
fleiri, og alltaf þarf stráksi að
hugga bangsa. Orðaleikirnir í sög-
unni eru skemmtilegir, myndirnar
eru líflegar og litanotkun markviss.
Texti og myndir vinna vel saman í
áleitinni og sniðugri sögu um sígilt
efni: Ótta lítils barns við að vera
eitt.
I Appelsínustelpunni segir frá
Georg sem er fimmtán ára strákur
sem býr með móður sinni, stjúp-
föður og litlu systur. Lífið er gott og
allt gengur vel en þá berst honum
bréf frá föður sínum sem dó þegar
Georg var fjögurra ára. Bréfið hafði
faðir hans skrifað þegar hann var
orðinn veikur og beið dauðans.
Þar segir faðirinn fallega sögu og
hjálpar Georg að horfast í augu
við lífið og tilveruna en þó fyrst og
fremst dauðann. Hugsanir Georgs
við lesturinn eru fléttaðar saman
við efni bréfsins. Hér er tekið á sí-
gildum umfjöllunarefnum á nær-
gætinn og hlýlegan hátt og á þessi
bók erindi við fólk á öllum aldri.
Þýðing Sigrúnar Árnadóttur er
vönduð og skilar sögunni vel til ís-
lenskra lesenda.
Muriel Spark látin
Muriel Spark, ein besta skáldkona
Bretlands, lést á dögunum, 88 ára
gömul. Hún skrifaði tuttugu og
tvær skáldkonur, sú frægasta er
The Prime of Miss Jean Brodie, um
skoska kennslukonu sem dýrkar
Mussolini. Bókin varð að leikriti
og kvikmynd sem færði leikkon-
unni Maggie Smith Óskarsverðlaun.
Spark var aldrei í vafa um gæði bók-
arinnar og sagði á efri árum: „Mér
finnst ennþá að verkið sé töfrandi.“
Spark sagðist hafa vitað að hún
gæti skrifað allt frá því hún var níu
ára. Samt hóf hún rithöfundarferil
tiltölulega seint. Fyrsta skáldsaga
hennar, The Comforters, kom út
árið 1957. Spark var þá 39 ára gömul
og var að jafna sig eftir alvarlegt
taugaáfall. Einkalif hennar var ekki
áfallalaust. Hún giftist 19 ára gömul
manni sem var geðsjúkur og ofbeld-
isfullur. Þau eignuðust einn son en
Spark yfirgaf eiginmann sinn eftir
stutt hjónaband. Hún giftist ekki
aftur. Spark gerðist kaþólikki árið
1954 og flutti til Ítalíu árið 1967 þar
sem hún lést.
Sögur hennar einkennast af
Muriel Spark. Þessi virta skáldkona lést á dögunum, 88 ára gömul.
þurrum húmor og sumir sögðu
hana skrifa af kulda. Sjálf sagðist
hún hafa kuldalegt viðhorf til sögu-
persóna sinna. Eitt eftirlætisvið-
fangsefni hennar var spurningin
um af hverju illskan er til í heimi
sem algóður Guð skapaði.
Varöan
veitir þér
realuleq
tilboö
Kynntu þér hvað viö getum gert meira fyrir þig á landsbanki.is.
___Landsbankinn
Njóttu þess aö vera í Vöröunni
Sigurjón Sig-
hvatsson tryggir
sér kvikmynda-
réttinn á Oxinni
og jörðinni
JPV ÚTGÁFA
hefur gengið
frá samningi
við Sigurjón
Sighvatsson
umkvikmynda-
réttáÖxinni og
jörðinni eftir
Ólaf Gunnars-
son. Sigurjón
sagði nýlega
frá því í Kastljósviðtali að það hefði
lengi verið draumur sinn að gera
kvikmynd um Jón Arason biskup en
bók Ólafs fjallar um hann.
Ólafur Gunnarsson
Sigurjón Sighvatsson
hefur keypt kvik-
myndaréttinn á Öxin
ogjörðin.