blaðið - 21.04.2006, Page 20
20 I VIÐTAL
FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 Ma6iö
Ég fékk að þroskast öðruvísi
Ylfa Geirsdóttir var aðeins 12 ára gömul þegar hún var uppgötvuð sem fyrirsœta.
Þær eru örfáar konurnar í
þessum heimi sem fá að kynn-
ast því að alast nánast upp sem
fyrirsætur, en Ylfa er ein af þeim.
Tólf ára var hún uppgötvuð en
aðeins ári síðar var hún komin
til London og byrjuð að vinna
í veröld tískunnar sem flestum
þykir framandi. í dag er hún 21
árs og hefur því níu ára reynslu
sem fyrirsæta. Margrét Hugrún
Gústavsdóttir fór í Kringluna og
hitti Ylfu yfir kaffibolla og einni
flösku af appelsíni.
Við hringdum okkur saman og
mæltum okkur svo mót á Kringlu-
kránni. Hún skaust frá vinnunni í
stutta viðtalspásu, en í dag starfar
Ylfa í tískuvöruversluninni Spútnik.
Við pöntuðum kaffi og appelsín
og byrjuðum að spjalla.
Hvernig kom það til að þú varðst
fyrirsœta svona ung?
,Eg var stödd í bakaríi þegar það
gekk að mér kona sem spurði hvort
ég vildi koma á fyrirsætunámskeið.
Þetta var hún Ásta hjá Eskimó mód-
els. Ég var svo ung að ég áttaði mig
ekkert á því hvað það var eða um
hvað þetta snerist. Ruglaði þessu
saman við að vera fegurðardís og
hljóp heim til mömmu þar sem
ég tilkynnti henni upp með mér
að mér hefði verið boðið að verða
fegurðardís og fara á fegurðardísar-
námskeið,“ segir Ylfa og hlær. „1 kjöl-
farið fór ég svo á þetta námskeið en
ári síðar tók ég þátt í Ford keppninni
og lenti þar í öðru sæti. Þetta leiddi
til þess að við mamma fórum saman
til London, sumarið eftir keppnina,
þar sem ég byrjaði strax að vinna
sem fyrirsæta.“
KOMIN (NÝJAN HAM Ylfa er tuttugu og eins árs í dag en þegar hún var átján ára komst hún að þvi að fyrirsætustörf voru ekki það eina sem hún vildi fá út úr lífinu.
99...........:................................................................................................
Konur eins og Naomi Campbell og Kate Moss sem eru með óaðfinnanlega húð og ótrúlega fallegar.
Málið er að það getur hver sem er verið fallegur á Ijósmynd. Þetta er yfirleitt allt saman blekking, unnin
í tölvum, og það versta við þetta er að ungar stelpur geta fengið lotugræðgi og lystarstol afþvíþær
bera sig saman við þessar fyrirmyndir og finnst þær sjálfar vera vanskapaðar í samanburði.
Var á réttum stað á réttum tíma
Ylfa segir að heppnin hafi verið með
henni frá fyrsta degi. „f þessum
bransa gengur þetta allt út á að
vera á réttum stað á réttum tíma og
hitta rétta fólkið. Ég hafði heppnina
með mér og fékk strax mjög mikið
af stórum og flottum verkefnum.
Slapp alveg við ferli sem margar
stelpur þurfa að fara í gengum; til
dæmis að fara í hundrað prufur, fá
ekkert borgað og vera jafnvel skuld-
ugar fyrir vikið.
Heppni mín fólst aðallega í því
að snemma hitti ég ljósmyndara
sem heitir Miles Aldridge. Hann
er orðinn mjög þekktur í dag en á
þessum árum var hann að vinna í
því að koma sér á framfæri og vann
mikið fyrir stærstu tískublöðin. Mi-
les notaði mig í allt sem hann gerði
á þessum tíma og út frá því fékk ég
mikla kynningu. Stílistar og aðrir í
bransanum vissu fljótlega hver ég
var. Um leið og fólk vissi að ég hefði
verið að vinna með Miles var bara
sagt: „Já, tökum hana“... og þannig
byrjaði þetta að rúlla.“
Á síðum Vouge
1 hvaða blöðum varstu?
„Ég sat til dæmis fyrir í ítalska Vo-
uge, ID, Face og mörgum fleiri.
Þetta voru aðallega tískuþættir en
ég sat fyrir í fötum frá mjög stórum
og virtum hönnuðum. Til dæmis
Gaultier, Versage, Armani o.fl.“
Varstu einhvern tímann notuð
sem andlit einhvers vörumerkis?
„Já, ég var andlit Rimmel maskar-
ans um tíma. Það kom þannig til
að ég fór bara í prufu og var valin
úr hópnum. Auglýsingarnar voru
í fjölmörgum blöðum og á skiltum
víða um heim, en ég sá þau samt
ekki sjálf heldur frétti bara af þessu.
Þetta er í sjálfu sér ótrúlega sérkenni-
legt ástand ef maður hugsar út í það.
Ég er alin upp við það að horfa á
myndir af sjálfri mér í blöðum og
það er ekkert sérstaklega algengt
held ég,“ segir Ylfa hugsi og fær sér
sopa af appelsínflöskunni.
Fyrirsætur eldast
Nú varst þú aðeins þrettán ára
þegar þú byrjaðir að sitja fyrir
í fi's/cwþáttum. Er algengt að svo
ungar stelpur séu að kynna vörur
sem þær hafa í sjálfu sér ekki efni á
að kaupa, fyrir utan kannski þessar
þrjátíu sem starfa sem fyrirsætur?
„Þetta var meira svona áður en í dag
er stemmningin svolítið að breytast.
Til dæmis sér maður að Nivea notar
alla aldurshópa í sínar auglýsingar
og það sama má segja um fleiri fyr-
irtæki. Þessi rosalega granna fyrir-
mynd sem hefur hvorki mjaðmir né
brjóst er eitthvað að breytast. Ég sé
til dæmis ekki lengur svona korn-
ungar stelpur í blöðunum. Þær eru
reyndar margar um fimmtán ára
gamlar en hafa ekki þetta hrikalega
barnslega útlit sem var vinsælt fyrir
nokkrum árum.“
Má þá ekki segja að lífaldur fyrir-
sœtunnar sé að lengjast?
„Jú, ætli það ekki. Eg hef stundum
verið spurð að því hvort ég sé ekki
bara orðin kerling í bransanum af
því ég byrjaði náttúrlega svo rosal-
ega ung. Núna hef ég öðlast mikinn
þroska í þessu fagi og ég veit að ef ég
ætlaði mér að halda eitthvað áfram
þá þyrfti ég að gefa mig í þetta al-
veg 100%. Það er ekkert sem heitir
að ætla sér að vera með hálfkák í
þessu. Þegar ég byrjaði að vinna
sem fyrirsæta þá bjóst ég ekki við
neinu þar sem ég var bara tólf ára
í bakaríi! Svo fór ég á fyrirsætu-
námskeið með frekjuskarð og mér
finnst myndirnar hreinlega fyndnar
þegar ég sé þær í dag. Eg hugsaði
aldrei út í þennan heim. Fletti aldrei
tískublöðum og átti mér engar fyrir-
myndir úr þessum heimi, en svo var
mér bara hálfpartinn kastað í djúpu
laugina og ég þurfti að læra allt frá
byrjun," segir Ylfa.
Bjó [„penthouse" íbúð
með dóttur Eileen Ford
Myndirðu segja að þú hafir kynnst
einhverjum svörtum hliðum á
bransanum?
,Nei, í rauninni ekki. Það eru nátt-
úrlega bæði kostir og ókostir í fyr-
irsætubransanum eins og í öðrum
fögum en ég sé ekki eftir neinu. Til
dæmis sé ég ekkert eftir því að hafa
sleppt því að fara í menntaskóla
vegna þess að ég lærði svo rosalega
mikið á þessu og þroskaðist öðruvísi.
Ég lærði til dæmis mikið í sambandi
við mannleg samskipti og hvernig
fólk kemur fram við hvert annað.
Hverjum á að treysta og hverjum
ekki og síðast en ekki síst lærði ég
mikið um sjálfa mig. Fólk reynir
oft að vaða yfir fyrirsætur. Maður
lenti kannski hjá ljósmyndara sem
vildi hafa mann svona og hinsegin
en þegar maður öðlast meiri reynslu
þá er auðveldara að setja mörk og
vita hvað maður vill og hvað ekki.
Á sama tíma finnst mér frábært að
hafa fengið tækifæri til að ferðast
svona mikið og sjá svo margt. Þegar
ég var fjórtán ára þá fór ég til dæmis
ein til New York og bjó heima hjá
dóttur Eileen Ford í rosalega fallegri
„penthouse" íbúð. Hún átti tvö börn
og þetta var allt mjög heimilislegt
en það var samt mjög sérstakt að
vera ein í þessari stórborg. Ég lærði
fljótt og hratt að rata út um allt og
í dag þekki ég lestarkerfin í París,
New York og London eins og lófann
á mér.“
Varöan
veitir þér frítt
greiðslumat
Kynntu þér hvað við getum gert meira fyrir þig á landsbanki.is.
É/f
Bk Landsbankinn
Njóttu þess aö vera í Vöröunni