blaðið - 21.04.2006, Side 22
FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 blaöÍA
f 22 I TÍSKA_______________________
Náðu lit fyrir sumarið
Þrjár leiðir til að verða brún án sólar
Sólin skín ekki árið um kring á
íslandi, en það breytir því ekki
að við getum alltaf verið svolítið
dökk á hörund, sem þykir jú
fallegt hér á norðurhjara - og
reyndar um gervöll Vesturlönd.
Örlítill litur gerir okkur hvít-
ingjana svolítið hraustlegri og
athugasemdir á borð við: „Mikið
ertu brún!“ eru ávallt túlkaðar
sem hrós.
Airbrush brúnka
Það nýjasta í „brúnkumálum“ er svo-
kölluð „airbrush" brúnka en best er
að fara á sérstakar snyrtistofur til að
láta sprauta henni á sig. Efnið sjálft
er unnið úr litar- og sætuefnum og
hefur ekki á nokkurn hátt skaðleg
áhrif á húðina. Liturinn verður jafn
og fallegur og endist í um ío daga.
Áður en farið er í brúnkusprautun
er nauðsynlegt að fara í sturtu og
skrúbba burtu dauðar húðfrumur til
að efnið fari ekki í kekki á húðinni.
Forðast ber að setja á sig ilmvatn og
svitalyktareyði þar sem það getur
einnig haft þau áhrif að liturinn
verður ekki jafn. Eftir brúnkuspraut-
unina er gott að bíða með að fara í
sturtu í sólarhring en þá þvæst allur
aukalitur af og eftir situr gyllt og sér-
lega falleg brúnka. Meðferðin kostar
frá 2900-3500 kr. (fer eftir stofum).
Ljósabekkir
Ljósabekkir eru ágætir til síns
brúks svo lengi sem þeir eru notaðir
í miklu hófi, en hóf í þeim efnum
er um það bil einu sinni í mánuði.
Reyndar mæla flestir læknar alger-
MEÐ BRÚNKU IBYSSU Heiða á snyrtistofunni Bætt útiit mundar hér Airbrush byssuna
sem er notuð til að spreia dýrindis lit á föla kroppa.
ÓHOLLT Ljósabekkir eru skaðlegir en það
breytir ekki vinsældum þeirra.
lega gegn notkun ljósabekkja en það
breytir því ekki að fólk lætur sér
ekki segjast.
Ef þú vilt endilega fara í ljós er
mælt með að þú berir á þig raka-
gefandi krem áður en þú leggst á
bekkinn og eins eftir að úr honum
er komið. Ef þú hefur viðkvæma húð
eða ert rauðhærð/ur er mjög ráðlegt
að láta ljósabekkina eiga sig. Ljósa-
tími kostar frá 350-800 kr.
HVENÆR SEM ER
Nýjubrúnkukrem-
in eru ótrúlega
handhæg og góð
og gera það að
verkum að þú
geturnáðáþig
fallegum lit, hvar
sem er og hvenær
sem er.
Ilbelladonnan
Hlíðarsmára 11 • Kópavogi • sími 517 6460 • www.belladonna.is
Gleðilegt Sumat
nú eru komnar
nýjar sumarvorur
ffá C
Vertu þú sjálf
- vertu Bella donna
Opið mán-fös 11-18
laugardaga 11-15
www.belladonna.f8
Brúnkukrem
Það má segja að brúnkukremin
sem komu á markað fyrir nokkrum
árum hafi verið guðs gjöf til brúnku-
unnenda. Þau eru tiltölulegaþægileg
í notkun, hafa ekki neikvæð áhrif á
húðina og skilja eftir sig fallegan lit.
Það eina sem fólk kvartar undan er
svolítið umstang í kringum smurn-
inginn, en það ferli er svipað því sem
maður þarf að gera fyrir brúnku-
sprautun. Fjarlægja þarf dauðar
húðfrumur og svo er gott að hafa á
sér latex hanska þegar liturinn er
borinn á. Allir helstu snyrtivöru-
framleiðendur framleiða línur af
brúnkukremum og kremin eru eins
misjöfn og þau eru mörg. Á spjall-
síðum á Netinu má þó sjá að nokkur
þeirra fá sérlega góð meðmæli. Þar
á meðal eru Johnsons Holiday Skin
Moisturiser, Fake Bake og nýja sjálf-
brúnkukremið frá Shiseido sem fæst
bæði fyrir andlit og líkama.
margret@bladid. net
Rapparinn Kristín Ýr gengur aðallega í íþróttafötum en hafði gaman af diskóbylgjunni
sem gekk yfir fyrir ári síðan.
Ljót föt klœða
ekki Kristínu
Kristín Ýr Bjarnadóttir, rappari og söng
kona í Snooze, svarar nokkrum vel völdum
spurningum um tískuna.
Hvað er tíska íþínum augum?
„Mér finnst tíska vera eitthvað sem
þykir smart í ákveðinn tíma, eða
þar til annað tekur við.“
Fylgistþú mikið með tískunni?
„Eg verð að viðurkenna að mér þykir
skemmtilegt að kíkja á þætti sem
fjalla um förðun, hár eða föt. Ann-
ars held ég að ég sé bara voðalega
venjuleg í alla staði. Er mikið í
íþróttafötum."
Hver er uppáhaldshönnuðurinn
þinn?
„Ég þekki nú ekkert sérstaklega mörg
nöfn en dettur helst í hug Donna
Karen (DKNY). Enda á ég ótrúlega
fallegt og rándýrt úr frá DKNY
sem ég fékk í jólagjöf frá tengdafor-
eldrum mínum!“
Hvaða tískutímabil heldurðu upp
á?
„Ég held ekki upp á neitt sérstakt
frekar en annað. Finnst gaman
að sjá hvað tískan gengur í hringi
og undantekningalaust er nýjasta
tískan smituð af gamalli tísku. Ég
hafði reyndar svolítið gaman af
þessu hálfgerða diskó/6o’s sem var í
gangi fyrir um ári síðan.“
Hvaða flík er í uppáhaldi hjá þér
og afhverju?
„Án nokkurs vafa er það „nían“ en
það mun vera fótboltatreyjan mín
númer 9 sem er að sjálfsögðu merkt
Val. Fótboltabúningurinn hefur
fylgt mér í þau sautján ár sem ég hef
æft fótbolta og allt sem ég hef lært
í þessari treyju er ómetanlegt: að
hlæja og gráta, heyja drengilega bar-
áttu, vinna fyrir hlutunum og hafa
metnað til að leggja sitt af mörkum
til að uppskera sigur. Allt er þetta
hluti af því sem fólk lærir á því að
vera í íþróttum allt sitt líf.“
Hvaðfinnstþér ekki klæða þig?
„Ég hef gaman af því að prófa mig
áfram í að raða fötum saman. Það
kemur þó misvel út og hef ég því
komist að því að það er margt sem
klæðir mig ekki, þar ber að nefna
ljót föt,“ segir Kristín að lokum og
skellir upp úr.
Garðhúsgögnin
vinsælu
GARÐHEIMAR
allt í garðinn á einum staðl
Sumardagskarfai
stráð yflr hrelnan jarðveg;
heldur lllgresi í skefjum!
Stekkjarbakka 6 - 540 3300
www.gardheimar.is
CLEÐILEGT SUMAR!
isoron’ G