blaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 52
52 i DAGSKRÁ
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 blaöiö
HVAÐSEGJA
STJÖRNURNAR?
Röð atburða sem virðast ekki eiga neitt sameiginlegt
við fyrstu sýn tekurásig heildarmynd við lok dagsins.
Þá fyrst sérðu að það er ekki allt eins og þú bjóst við
að það væri. Sumt er erfitt að koma auga á.
©Naut
(20. apríl-20. maO
Þaðersól í hjarta þínu og ástvinur þinn fer ekki var-
hluta af þvi. Reyndu að njóta hvers dags á meðan
veðrið er fallegt. Það mun létta á sál þinni sem á
þaðtilaðverapínulítið þung
©Tvíburar
(21. maí-21. júnO
Þú verður að hugsa um fleiri en bara þig. Reyndu
að gefa þér meiri tíma til að hlusta á hvað aðrir
hafa að segja. Þú munt komast að því að það er ým-
islegt áhugavert sem fólk hefur fram að færa.
©Krabbi
(22. júnf-22. júlQ
Það er kominn timi til að gera alvarlegar breyting-
ar á lífi þínu. Ekki það að líf þitt sé í neinum mol-
um. Það er einungis það að þú hefðir mjög gott
af breytingum og nýtt áhugamál væri við hæfi í
þessu sambandi.
®Ljón
(23. júlí-22. ágúst)
Það kemur fljótlega í Ijós að eitthvað sem þú telur
að sé bölvun er í rauninni blessun. Axlaðu þessa
ábyrgð með gleði í hjarta og láttu alla gagnrýni
lönd og leið. Þetta gefur þér nýja sýn á Iffiö
CS Meyja
(23. ágúst-22. september)
Láttu af gömlum kreddum sem þú hefur haldið f
alltof lengi. Hugmyndafræði þfn þarf á endurnýjun
að halda svo að þú getir brugðist við breyttri heims-
mynd. Ekki dugar að bora í nefið þegar kemur að
þessum málum.
Vog
(23. september-23. október)
Það er ótrúleg orka í kringum þig og verður til þess að
þú vinnur tvöfalt miðað við venjulega. Vinnufélagar
fara ekki varhluta af þessari smitandi orku og allir taka
kipp. Þú verður þó að koma upp stundum og anda
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
Þú mátt ekki reyna of mikið þvi það getur orðið til
þess að hrekja burt þá persónu sem þú ert að reyna
að ná til. Þegar kemur að samskiptum fólks þá borg-
ar sig að fara hægt og yfirvegað af stað.
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
Það em ákveðin tímamót f Iffi þínu og nú verður þú að
huga að þvi hvernig þú ætlar að vinna úr aðstæðum.
Það er engin ástæða til að vera stressaður fyrirfram þó
erfitt sé að stjóma þvf. Reyndu að róa þig niður
Steingeit
(22. desember-19. janúar)
Þú munt á næstunni mynda nýtt samband og ekki
hafa áhyggjur af því þó það fari hægt af stað. Það
mun halda áfram að styrkjast og verða á endanum
mjög öflugt. Þú geturtreyst á það.
Vatnsberi
(20. januar-18. febrúar)
Þú ert á mikilli siglingu og þér líður líka þannig.
Það er hreinlega ekkert sem getur dregið úr þér
kraft þessa dagana og þú verður að nýta þér það
uppstreymi. Láttu ekki deigann siga.
©Fiskar
(19.febniar-20.mars)
Það er stormur i aðsigi en þú verður að gæta þess
að fjúka ekki. Þú ert sem strá i vindinum en styrk-
ingin er ekki langt undan. Hugrekkið byggist upp í
smáum skömmtum og erfitt er að breyta því.
IMQKLA
Isle oí Wight-há-
tíðin um helgina
Nú um helgina munu 30.000 aðdá-
endur hljómsveitanna Coldplay, The
Prodigy og Foo Fighters og fleiri
góðra hljómsveita storma á litla eyju
sem er við Bretland til þess að vera
viðstaddir Isle of Wight-tónlistarhá-
tíðina. Þetta er ein stærsta tónlistar-
hátíð sem haldin er ár hvert og hafa
nánast allir bestu tónlistarmenn
heims spilað á hátíðinni sem haldin
hefur verið nánast óslitið síðan á sjö-
unda áratugnum.
IWGVI HRAFN BJARGAR KVÖLDINU
Fjölmiðlar
Kolbrún Bergþórsdóttir
Þegar ég lcom heim síðastliðið
fimmtudagskvöld hlakkaði ég til
að eiga notalega stund yfir sjón-
varpinu. „Hvað ætli sé í Kastljós-
inu í kvöld?“ hugsaði ég full til-
hlökkunar. Þá kom þula á skjáinn
og tilkynnti að Kastljósið yrði ekki
á dagskrá vegna beinnar útsend-
ingar frá handboltaleik. „Ég trúi
þessu ekki,“ sagði ég upphátt. Ég
var alls ekki kát. Ástandið á heim-
ilinu skánaði ekki þegar drengur
frá Hive hringdi og sagðist vilja
gera mér tilboð. Mér skilst að Hi-
ve sé fjarskiptafyrirtæki. „Ég þarf
engar tengingar. Ég vil ekki meiri
tækni,“ sagði ég. „Viltu ekki lægri
símreikning?“ spurði hann. „Nei,
alls ekki, ómögulega," sagði ég og
lagði á. Ég er gamaldags kona og á
viðskipti við Símann.
Ég kveikti á útvarpinu. Ingvi
Hrafn var í ham á NFS. Hann hellti
sér yfir Morgunblaðið og sagði það
vera að breytast í kratalufsu. Þetta
voru einu góðu tíðindin sem ég
hafði heyrt þennan daginn. „Gott
að Mogginn er á réttri leið,“ hugs-
aði ég. Svo reif Ingvi Hrafn Mogg-
ann í tætlur vegna leiðara sem hon-
um mislíkaði mjög. Eftir að hafa
rifið Moggann sagði Ingvi Hrafn
að Mogginn hefði eyðilagt fyrir sér
daginn. Ingvi Hrafn bjargaði hins
vegar kvöldinu fyrir mér. Hann var
svo æstur að ég gleymdi raunum
mínum og hlustaði heilluð á hann
ausa úr skálum reiði sinnar.
kolbrun@bladid.net
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
0 SJÓNVARPIÐ
08.00 Barnaefni
10.50 Kastljós
11.20 Formúla 1 Bein útsending frá ti'ma- töku fyrir kappaksturinn í Bretlandi.
12.45 Hlé
15.05 Fótboltaæði (2:6) (FIFA Fever 100 Celebration)
15-35 fþróttakvöld
15.50 fslandsmótið í fótbolta Bein út- sending frá leik KR og Vals í Lands- bankadeild kvenna.
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 HopeogFaith (53:73)
18.25 Kokkar á ferð og flugi (8:8) (Sur- fingthe Menu)
18.54 Lottó
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19-40 Fjölskylda mín (10:13) (My Family)
20.10 Uppreisnin í skólanum (New Port South)
21.50 Kræktu í karlinn (Get Shorty)
23.30 Björgun Ryans (Saving Private Ry- an)
02.15 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
■ SIRKUSTV
18.30 Fréttir NFS
19.00 Friends (15:23) (e) (Vinir)
19.30 Friends (16:23) (e) (Vinir)
20.00 Þrándur bloggar (1:5) (e)
20.30 Sirkus RVK(e)
21.00 Fabulous Life of (16:20) (Fabulous Life of: Holly wood Super Spenders)
21.50 Killer Instinct (2:13) (e) (Five Easy Pieces)
22.40 Pink Floyd - Making Of the Dar
23.30 Jake in Progress (3:13) (Rivals And Departures)
23-55 Stacked (6:6) (e)
00.20 Tívolí
00.50 BoysDon'tCry(e)
STÖÐ2
07.00 Barnatími Stöðvar 2
10.25 Lína langsokkur á ferð og flugi
12.00 Hádegisfréttir (samsending með NFS)
12.20 Bold and the Beautiful (Glæstar vonir)
12.40 Bold and the Beautiful (Glæstar vonir)
13.00 Bold and the Beautiful (Glæstar vonir)
13.20 Bold and the Beautiful (Glæstar vonir)
13.45 Idol - Stjörnuleit (Niðurskurður)
14.45 Idol - Stjörnuleit (Niðurskurður)
15.45 Life Begins (7:8) (Nýtt líf)
16.45 William and Mary (2:6) (William og Mary)
17.45 Martha (Martha's looth Show With Rosie O'Donnell)
18.30 Fréttir, íþróttir og veður
19.00 fþróttirog veður
19.05 Lottó
19.10 George Lopez (22:24) (George's Extreme Makover: Holms Edition)
19.35 OliverBeene (7:14)
20.00 Bestu Strákarnir
20.25 Það varlagið
21.35 White Chicks (Hvítar gellur)
23.25 YoungAdam (Adamungi)
01.00 Serendipity (Vegir ástarinnar)
02.30 Black Point (Skotmarkið)
04.15 Starstruck (Stjörnudýrkun)
05.45 Fréttir Stöðvar 2
06.30 Tónlistarmyndbönd frá Popp TíVí
© SKJÁR EINN
12.45 Dr.Phile.
15.00 Point Pleasant e.
15.45 OneTree Hill e.
16.45 Courting Alex e.
17.15 Everybody Hates Chris e.
17-45 Everybody loves Raymond e.
18.15 South Beach e.
19.00 Beverly Hills
19-45 Melrose Place
20.30 Kelsey Grammer Sketch Show Bráðfyndin sketsaþáttur þar sem Kelsey Grammer fer á kostum.
21.00 Runofthe House
21.30 Janis
23.00 The Bachelorette III e.
23.50 Law & Order: Criminal Intent e.
00.40 Wanted e.
01.30 Beverly Hillse.
02.15 Melrose Place e.
03.00 Tvöfaldur Jay Leno e.
04.30 Óstöðvandi tónlist
^^SÝN
07.10 Sænsku nördarnir(FCZ)
08.00 HM 2006 (Pólland - Equador)
09.45 HM 2006 (Opnun: Þýskaland - Kosta Ríka)
11.30 442
12.30 HMstúdíó
12.50 HM 2006 (England - Paragvæ)
15.00 HM stúdíó
15.50 HM 2006 (Trinidad - Svíþjóð)
18.00 HMstúdíó
18.50 HM 2006 (Argentína - Fílabeins- ströndin)
21.00 442(442)
22.00 HM 2006 (England - Paragvæ)
23.40 HM 2006 (Trinidad - Svíþjóð)
01.20 Hnefaleikar: Antonio Tarver - Bernard Hopkins (Antonio Tarver - Bernard Hopkins)
*/> NFS
10.00 Fréttir (10:00 laugardaga og sunnud)
10.10 Óþekkt
11.00 Fréttavikan m. Þorfinni Ómarss
12.00 Hádegisfréttir
12.10 fþróttir, veður og leiðarar
12.25 Skaftahlíð
13.00 Dæmalaus veröld - með Óla Tynes
13.10 Óþekkt(e)
14.00 Fréttir
14.10 Fréttavikan m. Þorfinni Ómarss
15.10 Skaftahlíð
15.40 Hádegisviðtalið (e)
16.00 Fréttir
16.10 Vikuskammturinn
17.10 Óþekkt (e)
18.00 Veðurfréttir og íþróttir
18.00 Fréttayfirlit
18.02 ftarlegar veðurfréttir
18.12 fþróttafréttir
18.30 Kvöldfréttir
19.10 Fréttavikan m. Þorfinni Ómarss
20.10 Kompás(e)
21.00 Skaftahlíð (e)
21.35 Vikuskammturinn
22.30 Kvöldfréttir
23.10 Síðdegisdagskrá endurtekin
Wiesih stöð 2 - bíó
06.00 A View From the Top (Útsýni að ofan)
08.00 Clint Eastwood: Líf og ferill
10.00 Gemsar
12.00 Bridget Jones: The Edge of Reason (Bridget Jones 2: Mörk skynseminnar)
14.00 AViewFromtheTop
16.00 Clint Eastwood: Líf og ferill
18.00 Gemsar
20.00 Bridget Jones: The Edge of Reason
22.00 Man on Fire (1 eldlínunni)
00.25 Dahmer
04.00 Man on Fire (f eldlínunni)
RÁS1 92,4 / 93,5 • RÁS2 90,1 / 99,9 • Kiss FM 89.5 • Xfm 91,9 • Bylgjan 98,9 • FM 95,7 • X-ið 97,7 • Útvarp saga 103,3 • Talstöðin 90,9
Viltu spila með
Beyoncé?
Ný plata, bíómynd er væntanleg
frá Beyoncé sem slær ekki slöku
við þessa dagana.
Beyoncé Knowles, aðalstjarnan úr
þríeykinu Destiny’s Child, leitar nú
að hljóðfæraleikurum til að spila
undir á hljómleikaferð hennar í
sumar. Prufur verða í fimm borgum
í Bandaríkjunum á næstunni. Að
þeim loknum munu bestu tónlistar-
mennirnir spila fyrir Beyoncé sjálfa
í lok næstu viku. Bestu hljóðfæra-
leikararnir munu síðan skipa sveit
sem heldur af stað í tónleika þann
20. júní ogþví gefst ekki mikill tími
til æfinga. Prufurnar verða haldnar
næsta mánudag og ættu áhugasam-
ir að skella sér út og spreyta því Bey-
oncé er ein vinsælasta söngkonan í
heiminum í dag.
Plata í afmælisgjöf
Söngfuglinn fagri ætlar ennfremur
að gefa frá sér sólóplötu á 25 ára af-
mælisdegi sínum, þann 4. septem-
ber, sem bera mun nafnið „B’day“.
Rapparinn knái og kærasti Beyoncé,
jay-Z, tekur lagið Dejá Vu með
henni á plötunni. Talið er að Bey-
oncé komi að því að semja og útsetja
öll lögin á plötunni og geta aðdáend-
ur hennar þvi farið að hlakka til.
Leikur Diana Ross
Nýlega lék Beyoncé í myndinni
Dreamgirls undir leikstjórn Bill
Condon. Þetta er saga sem byggð
er á Broadway söngleik um þrjár
svartar blússöngkonur sem klifr-
uðu upp vinsældarlistana á
sjöunda áratugnum og
hefur þeim verið líkt
við The Supremes. Bey-
oncé leikur aðalsöng- kon-
una, sem margir þekkja, en það er
engin önnur en hin heimsfræga Di-
ana Ross.