blaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 1
Þakmálun
Húsamálun
í síma: 844-1011
eða á www.thakmalun.is
ÞAKMÁLUN.H.
Frjálst,
óháð &
ókeypis!
Aukablað um
tísku fylgir
Blaðinu
ídag
■GARÐAR:
Garðahönnun sem
byggir á náttúru,
sögu og hefðum
100% eldbökun,100% ísl. ostur,
100%metnaður, 100% Rizzo"
Japanskir garðar eru ekki bara
augnaprýði og þægilegir í um
hirðu
rzzra
ISÍÐURIS-lB^ggg^
c )///?/* .5777000
SÍÐA20
129. tolublao 2. argangur
manudagur
12. juni 2006
Sameiginlegt
landslið ESB?
Margir óttast þann dag þegar
Bandaríkjamenn munu loks
sigra heimsmeistarakeppnina
í knattspyrnu. Talið er að slík
uppákoma myndi særa þjóðar-
stolt Evrópubúa með djúpstæð-
um hætti. Jafnvel er talið líklegt
að einstaka landslið yrðu lögð
niður og sameiginlegt knatt-
spyrnulið Evrópusambandsins
myndi iíta dagsins Ijós. íþrótta-
deild Blaðsins spáir í spilin og
kemur með drög að því hvernig
slíkt landslið yrði skipað tæki
það þátt á HM í Þýskalandi.
| SfÐA 22.
Frækinn sigur
gegn Svíum
Sjómannadagurinn i sumarsúld
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur í Reykjavík og víða annars staðar á landinu f gær. Margt var um að vera á Miðbakka í Reykjavík þar sem flutt voru ávörp auk þess sem boð-
ið var upp á fjölbreytta dagskrá. Rigning setti svip sinn á hátíðahöld, en á degi sjómanna er starf sjómanna kynnt, sjómanna sem fórust á hafi er minnst og er honum ætlað að efla
samhug sjómanna. Sjómannadagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur í Reykjavik og fsafirði þann 6. júní 1938 og breiddust hátfðarhöldin út um land alit á fáeinum árum.
K' M
Islenska hand-
boltalands-
liðið vann
frækinn sigur
með fjögurra
marka mun
gegn Svíum
í Stokkhólmi
í gær og er
því komið
skrefi nær í
að tryggja sér
þátttöku á HM í Þýskalandi á næsta
ári. Lokatölur leiksins voru 32:28 en
jafnt var á með liðunum í hálfleik,
13:13-
íslenska liðið lék frábærlega
bæði í sókn og vörn. Leikurinn var
í járnum allan tímann en þegar
átta mínútur voru eftir komst ís-
lenska liðið yfir, 27:26, og bætti við
forskotið það sem eftir lifði leiks.
Markahæstu menn íslenska liðsins
voru Snorri Steinn Guðjónsson með
sjö mörk og Einar Hólmgeirsson
með sex. Þeir Arnór Atlason og
Róbert Gunnarsson skoruðu fimm
mörk hvor. Birkir Ivar Guðmunds-
son varði 12 skot.
Næsti leikur liðanna fer fram í
Laugardalshöll þann 17. júní.
Valgerður bað Geir um
að leiða varnarviðræður
Valgerður Sverrisdóttir, verðandi
utanríkisráðherra, mun ekki taka
við af Geir Haarde í viðræðum ís-
lendinga við Bandaríkjamenn um
framkvæmd varna hér á landi. „Ég
hef farið fram á það við verðandi
forsætisráðherra og fráfarandi utan-
ríkisráðherra að hann haldi áfram
utan um viðræðurnar við Banda-
ríkjamenn,“ segir Valgerður. Hún
segir mikilvægt að samfella sé í
því ferli og því hafi hún talið fyrir
bestu að hann færi áfram fyrir við-
ræðunum af hálfu íslendinga. Geir
Haarde mun hafa samþykkt þessa
tillögu Valgerðar.
„Vinnan verður að verulegu leyti
unnin í utanríkisráðuneytinu og
sendinefndin verður skipuð fólki
úr báðum ráðuneytum. En Geir
verður sá sem leiðir viðræðurnar."
Valgerður segir að um afar mikil-
vægt mál sé að ræða. „Vissulega
má segja að ekki hafi verið nægi-
lega mikið að gerast í þessum
málum undanfarið, en við trúum
ekki öðru en að einhver niðurstaða
komi i það mál áður en langt um
líður.“
Var áður á könnu Davíðs
Valgerður bendir á að forsætisráðu-
neytið hafi leitt varnarviðræðurnar
áður. „Það má segja að Davíð Odd-
son hafi tekið málið með sér í utan-
ríkisráðuneytið þegar hann flutti
sig þangað. Þetta getur því verið á
hvorn veginn sem er. En auðvitað
mun utanríkisráðuneytið áfram
fara með öll samskipti við varnar-
liðið og varnarmálin. Þetta á því
aðeins við um yfirstandandi við-
ræður við Bandaríkin." Valgerður
segir að næstu vikur hjá henni fari
í að setja sig inn í málefni utanrík-
isráðuneytisins. „Þetta leggst mjög
vel í mig. Ég hef fengið smjörþefinn
af utanríkismálum í gegnum mitt
starf sem viðskiptaráðherra. Ég hef
leitt viðskiptasendinefndir og mér
hefur fallið það vel. En ég kveð iðn-
aðar- og viðskiptaráðuneytið með
söknuði."
Hef nóg á minni könnu
Valgerður segist ánægð með skipan
mála í ráðuneyti Geirs Haarde.
„Mér finnst þessi hópur sem núna
mun skipa nýja ríkisstjórn vera
mjög líklegur til þess að láta gott af
sér leiða. Eg er því mjög bjartsýn á
það að þetta stjórnarsamstarf geti
gengið vel áfram, þó að vissulega
söknum við Halldórs Ásgrimssonar
öll mikið.“
Aðspurð um framtíðina og fyrir-
hugað flokksþing segist Valgerður,
sem orðuð hefur verið við formanns-
stól Framsóknarflokksins, hafa
ákveðið sig. „Ég mun ekki bjóða
mig fram. Ég tel að ég hafi nóg á
minni könnu með því að taka að
mér utanríkisráðuneytið. Síðan er
ég í forystu fyrir norðaustur-kjör-
dæmi. Ég tel að kraftar mínir muni
nýtast vel þar, enda legg ég áherslu á
það að vera áfram fyrsti þingmaður
kjördæmisins.“
Valgerður segist ekki vilja vera
með bollaleggingar um hvort
enn frekari breytingar verði á ráð-
herraskipan í kjölfar flokksþings
framsóknarmanna í haust. „Það er
seinni tíma mál.“
FRJÁLSI
FASTEIGNALÁN
í MYNTKÖRFU
Nánari upplýsingar veita lánafulltrúar Frjálsa og á www.frjalsi.is
2,5%
tiliðað við myntkörfu 3, Libor vextir 3.4.2006