blaðið - 20.06.2006, Qupperneq 2
2IFRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2006 blaðið
blaðió_
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 •www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfan'g: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Bangsi heldur
áfram að hrella
Bjarndýrið
sem setti
Bæjaraland
í Þýskalandi
á annan end-
ann á dög-
unum heldur
uppteknum
hætti og
herjar sem fyrr á sauðfé, kjúklinga,
býflugnabú og geitur. Þrátt fyrir
að finnskir sérfræðingar í bjarn-
dýraveiðum hafi verið kallaðir til
að handsama bangsa hefur ekkert
gengið og gerist dýrið frakkara með
hverjum degi sem líður.
Á aðfaranótt laugardags heim-
sótti bangsi þorpið Kochel am See
þar sem hann át kanínu sem var í
eigu 12 ára gamallar stúlku, borðaði
hunang úr býflugnabúi og gerðist
svo óskammfeilinn að setjast fyrir
framan lögreglustöð þorpsins þar
sem að hann gæddi sér á naggrís.
Um morguninn var hann svo horf-
inn aftur í skóginn þar sem hann
felur sig.
Þrátt fyrir mikla leit að bangsa
síðustu mánuði er hann ávallt
einu skrefi á undan veiðimönnum
og tekst að fara huldu höfði. Bjarn-
dýrið flækist á milli landamæra
Þýskalands og Austurríkis þar sem
það veldur usla hvert sem það fer.
Finnsku sérfræðingarnir í bjarn-
dýraveiðum hafa frest fram á sunnu-
dag til þess að handsama dýrið en
þá rennur út samningur þeirra við
bæversk umhverfisyfirvöld. Finn-
arnir fá rúmar þrjár milljónir kló-
festi þeir bangsa.
Það gæti orðið skammgóður
vermir þar sem fréttir herma að
bróðir björnsins hafi sést í ítölsku
ölpunum og sé á leið norður á bóg-
inn. Þeir koma báðir frá griðlandi
fyrir bjarndýr í Trentínó á Ítalíu og
sagt er að reiði þeirra gagnvart bú-
fénaði komi frá móður þeirra.
Bæverja
Skaðræðisbangsi
Skrúfað frá hananum
Bladid/Steinar Hugi
Liðsmenn slökkviliðsstöðvarinnar á Tunguhálsi voru á ferðinni í Árbænum í gær. Fóru þeir um og gengu úr skugga um að allir bruna
hanar hverfisins virkuðu sem skyldi.
Tónlistarhúsi og hatækni-
sjúkrahúsi verði frestað
Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður, vill setja andvirðið af sölu
Landsímans í gjaldeyrisvarasjóð og fresta byggingu tónlistarhúss.
Einar Oddur Kristjánsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins og
nefndarmaður í fjárlaganefnd, segir
brýnt að taka þá fjármuni sem feng-
ust fyrir söluna á Landsímanum og
setja þá í gjaldeyrisvarasjóð Seðla-
bankans. Það þýðir að fresta verður
byggingu hátæknisjúkrahúss við
Hringbraut. Framkvæmdum við
tónlistarhús á hafnarbakkanum í
Reykjavík á einnig að slá á frest að
mati þingmannsins.
I ræðu sinni á 17. júní sagði Geir
H. Haarde forsætisráðherra að til
þess að tryggja stöðugleika hér á
landi á næstu árum komi til greina
að fresta tímabundið opinberum
framkvæmdum af hálfu ríkisins.
Einar Oddur Kristjánsson tekur
undir með forsætisráðherranum og
hvetur til þess að verkefnum á borð
við hátæknisjúkrahús og tónlistar-
hús verði frestað.
Símapeninga í gjaldeyrisvarasjóð
„Ég tel að ríkinu beri skylda til þess
að gera allt sem í þess valdi stendur
til að draga úr þeirri ofhitnun sem er
hér í efnahagskerfinu,“ segir Einar
Oddur. „Ég hef sagt að það væri
best að taka alla þessa símapeninga
og setja þá inni í gjaldeyrisvarasjóð
Seðlabankans. Það er mjög brýnt að
gefa þau skilaboð að okkur sé alvara
í þessum málum.“
Einar Oddur segir nauðsynlegt
að styrkja gjaldeyrisvarasjóð Seðla-
bankans til þess að tryggja gengi ís-
lensku krónunnar. Aðspurður hvort
sú ákvörðun að setja Landsímapen-
ingana í gjaldeyrisvarasjóðinn fresti
ekki byggingu hátæknisjúkrahúss
við Hringbraut segir Einar Oddur:
„Að sjálfsögðu. Það þarf nauðsyn-
lega að tryggja gengið, og aðgerðir
í þessa veru myndu örugglega hafa
veruleg áhrif.“
Einar nefnir fleiri framkvæmdir
sem vert er að bíða með. „Við erum í
einkaframkvæmd með Reykjavíkur-
borg vegna byggingar tónlistarhúss
og það má alveg slá því á frest.“ Að-
spurður hvort sú framkvæmd sé
ekki of langt gengin til þess að hægt
sé að stöðva hana segir Einar svo
ekki vera. „Það er alltoflangt gengið
að fara í hana á þessum tímapunkti
og hvorki staður né stund til þess að
byrja á þessu verkefni núna.“
Einar segir að komi til þess að
ríkið verði gert skaðabótaskylt
vegna þess að framkvæmdin við tón-
listarhúsið sé þegar hafin verði þá
svo að vera. Einnig er brýnt að mati
Einars að ná tökum á þeim vanda
sem uppi er á húsnæðismarkaði.
„Það er mjög mikilvægt viðfangsefni
og ég býst við því að það séu tillögur
þar að lútandi í smíðum.“
Einar segist styðja forsætisráðherr-
ann heilshugar í því sem hann sagði
í ræðu sinni á þjóðhátíðardaginn.
„Það hefur ekki enn verið gengið frá
þessum málum nákvæmlega, en ég
vil ekki útiloka neitt þegar kemur að
því að fresta framkvæmdum,“ segir
Einar Oddur Kristjánsson.
Rúmur helm-
ingur vill rifta
varnarsamningi
Rúmlega helmingur þjóðar-
innar er hlynntur uppsögn varn-
arsamnings við Bandaríkin sam-
kvæmt könnun sem þingmaður
Samfylkingarinnar, Helgi
Hjörvar, lét gera.
53,9 prósent sögðust vera
hlynnt uppsögninni á meðan
24,8 prósent voru andvíg. 802
tóku þátt í könnuninni og var
svarhlutfall 722.
Athygli vekur að fleiri sjálf-
stæðismenn eru hlynntir upp-
sögn samningsins, eða 41,5 pró-
sent, á meðan 37,8 prósent eru
andvíg.
Helgi segir á heimasíðu sinni
tímabært að segja samningnum
við Bandaríkin upp og að könn-
unin staðfesti að sterkur vilji sé
hjá þjóðinni til þess að gera það.
Þyrlur varn-
arliðsins fara
til Englands
Varnarliðsþyrlurnar
verða framvegis
staðsettar i Laken-
heath í Suffolk.
Þyrlubjörgun-
arsveit varnar-
liðsins á Kefla-
víkurflugvelli
mun í fram-
tíðinni verða
staðsett í flug-
stöð breska
flughersins í
Lakenheath
á Englandi.
Frá þessu er
greint í dag-
blaðinu Stars
and Stripes sem gefið er út fyrir
bandaríska herinn. Nú þegar
eru tvær af þyrlunum fimm
komnar til Englands, sú þriðja
fer á næstunni en tvær þær síð-
ustu verða fluttar til Lakenheath
um miðjan september.
Þyrlubjörgunarsveitin er
eina sveitin í Keflavík sem ekki
verður leyst upp. Bandaríska
blaðið greinir frá því að brott-
flutningur þyrlusveitarinnar
hafi verið sérstaklega harmaður
af þeim Islendingum sem verið
hafa mótfallnir brottflutningi
hersins. Friðþór Eydal, upp-
lýsingafulltrúi varnarliðsins
á Keflavíkurflugvelli, segir í
samtali við dagblaðið að sveitin
hafi á síðustu þremur áratugum
bjargað hundruðum manna til
sjávar og sveita hér á landi. I
greininni kemur einnig fram að
brottflutningurinn frá Keflavík
sé að ná hápunkti sínum og að
um miðjan júlí verði færri en
500 manns eftir á stöðinni.
SJÓNARHÓLL
Gleraugnaverslun
fyrir svipmikla
STÆRRI VERSLUN
MEIRA ÚRVAL
Reykavíkurvegur 22
220 Hafnarfirði
# Heiðskirt Léttskýjað SkýjaðAlskýjað4^*-^ Rigníng, lltilsháttar^í^Rigning Jfc£*^Súld ^ Snjókoma * Slydda Snjóél
Skúr
ihlj'Jjlf
Algarve 25
Amsterdam 20
Barcelona 26
Berlín 24
Chicago 18
Dublin 16
Frankfurt 25
Glasgow 14
Hamborg 22
Helsinki 24
Kaupmannahöfn 22
London 21
Madrid 30
Mallorka 31
Montreal 19
New York 23
Orlando 23
Osló 20
París 24
Stokkhólmur 25
Vin 27
Þórshöfn 10
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
Á morgun