blaðið - 20.06.2006, Síða 6
6 i FRÉTTnr™—
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2006 blaAÍ6
Reutecs
Fara fram á dauðadóm
yfir Saddam Hussein
Ákæruvaldið í réttarhöldunum yfir
Saddam Hussein, fyrrum forseta
Iraks, hefur hvatt til þess að hann
verði dæmdur til „þyngstu mögu-
legu refsingar”. Þetta kom fram í
gær þegar ákæruvaldið hóf lokakafl-
ann í málflutningi sínum.
Saddam og sjö menn aðrir sem
ákærðir eru ásamt honum hlýddu
á málflutning saksóknarans í réttar-
salnum í Bagdad, höfuðborg Iraks.
Verjendur munu hefja málflutn-
ing sinn ío. næsta mánaðar. Þegar
honum lýkur mun fimm manna
dómur ákveða refsinguna.
Saddam og sjömenningarnir eru
sakaðir um að bera ábyrgð á dauða
148 sjía-múslima sem myrtir voru
í þorpinu Dujail á níunda áratug
liðinnar aldar. Saddam Hussein
var sýnt banatilræði er hann kom
til þorpsins og er hann sakaður
um að hafa brugðist við þeirri
ógnun með því að fyrirskipa fjölda-
morðið. Mennirnir eru sakaðir um
glæpi gegn mannkyni og verði þeir
fundnir sekir kunna þeir að hljóta
líflátsdóm.
Einn saksóknara í málinu sagði
í gær að enginn vafi léki á því að
sakborningar hefðu beitt sér fyrir
.skipulagðri og víðtækri” árás á al-
þýðu manna í Dujail. Þeir hefðu
látið handtaka fjölda fólks, karla,
konur og börn. Fangarnir hefðu
síðan sætt pyntingum. Lögmað-
urinn hélt því og fram að morðtil-
raunin hefði verið sett á svið í „pól-
itískum tilgangi”.
Verjendur sakborninga halda
því fram að eðlilegt megi teljast að
stjórnvöld hafi brugðist við tilræð-
inu. Verjendur halda því einnig
fram að margir þeirra sem sagðir
voru hafa verið drepnir í Dujail séu í
raun enn á lífi.
Vísitala bygg-
ingarkostn-
aðar hækkar
Vísitala byggingarkostnaðar,
reiknuð eftir verðlagi um miðjan
júní, hækkar um 0,3% frá fyrra mán-
uði samkvæmt tölum frá Hagstof-
unni. Vísitalan er nú 335,8 stig og
gildir fyrir júlímánuð. Síðastliðna
tólf mánuði hefur vísitala byggingar-
kostnaðar hækkað um rúmlega 7%.
Réttarhöldin y fir Saddam Hussein
og sjömenningunum hafa nú staðið
yfir í átta mánuði. Ýmsir lagaspek-
ingar hafa gagnrýnt framkvæmd
þeirra og nefnt hefur verið að verj-
endum hafi ekki verið tryggður
nægur tími til að leiða fram þau
vitni sem kölluð höfðu verið til.
Saddam Hussein, fyrrum Iraks-
forseti, og Abdullah Kathim Ruwaid,
sem einnig er sakaður um ábyrgð
á fjöldamorðinu í Dujail, í réttar-
salnum í Bagdad í gær.
Sjávarútvegsráðherra kallar
eftir gagnkvæmri viröingu
Einar K. Guðfinnsson vonast og ætlast til þess að afstaða forsvars-
manna hvalaskoðunarfyrirtækja mótist af gagnkvæmri virðingu.
Eftir Atla Isleifsson
Einar K. Guðfinnsson, sjávarút-
vegsráðherra, segir að þegar hvala-
rannsóknir hófust 2003 hafi menn
ákveðið veiðisvæðin meðal annars
með hliðsjón af því að trufla ekki
starfsemi hvalasfcoðunarfyrirtækja.
„Ég veit ekki annað en að staðið hafi
verið við að veiða á þeim svæðum
sem ákvörðun var tekin um á sínum
tíma,“ segir Einar í samtali við
Blaðið.
í síðustu viku mótmæltu Hvala-
skoðunarsamtök íslands harðlega
þeirri ákvörðun sjávarútvegsráð-
herra að leyft verði að veiða 50
hrefnur á þessu ári. Samtökin
áréttuðu jafnframt að Samtök ferða-
þjónustunnar og aðalfundir Ferða-
málaráðs hafi ítrekað mótmælt hval-
veiðistefnu stjórnvalda.
Fullur vilji
Að sögn Einars ganga rannsóknirnar
út á að veiða á tilteknum fyrirfram
ákvörðuðum svæðum. „Hins vegar
er það þannig að hvalaskoðunarfyr-
irtækin hljóta einnig að færa sig til
Einar K. Guðfinnsson
og reyna að fara með báta sína á þá
staði sem líklegast er að menn finni
og sjái hval. Auðvitað getur komið
til þess að einhver árekstur verði þar
á milli. Það er sjálfsagt ekki hægt að
komast algerlega hjá því.“
Einar segir vera fullan vilji af hálfu
Færeyskir sjómenn
teknir í landhelgi
Varðskipið Óðinn stöðvaði á sunnu-
dagskvöld færeyska togarann
Sancy sem staðinn var að því að
vera inni í íslensku efnahagslög-
sögunni fyrir austan land án þess
að tilkynna um ferðir sínar. Fjórir
varðskipsmenn réðust um borð í
skipið á ferð þar sem skipstjórinn
sinnti í engu tilmælum skipherra
Óðins.
Togarinn var staddur 17,3 sjó-
mílur vestan sameiginlegs nýting-
arsvæðis sem samið var um á milli
íslands og Færeyja árið 2002 þegar
varðskipsmenn tóku eftir honum.
„Skipherra Óðins gaf stöðvunar-
merki sem skipstjóri Sancy sinnti
ekki,“ segir Dagmar Sigurðardóttir,
upplýsingafulltrúi Landhelgis-
gæslu fslands. „Klukkan 22.53 fór
léttbátur frá varðskipinu í áttina
að Sancy og jafnframt var tilkynnt
í talstöð á rás 16 að varðskips-
menn væru á leiðinni um borð og
var togaranum skipað að stöðva
strax.“ Dagmar segir að togarinn
hafi verið á níu sjómílna ferð þegar
þetta gerðist. „Varðskipsmennirnir
hófu þá uppgöngu um borð í togar-
ann og hægði skipstjórinn ekki ferð-
ina fyrr en tveir menn voru komnir
i stigann á hlið skipsins."
Varðskipsmönnum stefnt í hættu
Dagmar segir að varðskipsmenn-
irnir telji að færeyski skipstjórinn
hafi með þessu hátterni sínu stefnt
Varðskipsmenn ráðast til uppgöngu í togarann Sancy
þeim í hættu. „Þeim tókst svo að
komast klakklaust um borð og
rannsökuðu þeir veiðarfæri og
þann afla sem um borð var.“ Varð-
skipsmennirnir tóku því næst við
stjórn skipsins. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar, Sif, flaug með tvo skip-
stjórnendur austur fyrir land og
setti um borð í varðskipið. Þaðan
fóru þeir á léttbát yfir í Sancy og
sigldu skipinu til Eskifjarðar þar
sem málið verður rannsakað frekar
af lögregluy firvöldum.
Óðinn var á leið til Hull þar sem
skipið tekur þátt í minningarat-
höfn um drukknaða sjómenn og
af því tilefni var forstjóri Landhelg-
isgæslunnar, Georg Kr. Lárusson,
staddur um borð. Óðinn hélt því
ferð sinni áfram eftirþessa óvæntu
uppákomu.
Dagmar segir að viðurlög við
broti af þessu tagi séu sekt frá 400
þúsund krónum og allt að fjórum
milljónum. „Þeir voru ekki staðnir
að fiskveiðum, heldur að þvi að
vera inni í lögsögu án þess að til-
kynna sig.“ Hún segir að nú verði
kannað hvaðan sá afli sem er um
borð hafi verið fenginn.
þeirra sem standa fyrir þessum rann-
sóknum að haga málum þannig að
starfsemi hvalaskoðunarfyrirtækj-
anna verði ekki trufluð. „Það eru þó
einhver takmörk fyrir því sett hvað
menn geta þrengt að sér við þessar
rannsóknarveiðar. Þær ganga út á
að veiða á afmörkuðum fyrirfram
ákvörðuðum svæðum,“ segir Einar.
Gagnkvæm virðing
„Þessar veiðar fara fram á afmörk-
uðum svæðum þannig að það er stór
hluti af landgrunninu, eða þessari
hefðbundnu slóð hrefnunnar, sem
hvalveiðibátarnir fara ekki inn á,“
segir Einar sem er ekki í nokkrum
vafa um að hvalveiðar og hvala-
skoðun geti vel farið saman.
Einar segist þó hafa skilning á því
að Hvalaskoðunarsamtök íslands
hafi áhyggjur af atvinnuvegi sínum.
„Við höfum engan áhuga á öðru en
að umgangast starfsemi þeirra af
fullri virðingu, líkt og ég ætlast og
vonast til að afstaða þeirra til hval-
veiða mótist af þessari gagnkvæmri
virðingu."
atlii@bladid.net
Katherine Schori.
Kona leiðir
bandarísku
biskupakirkjuna
Bandaríska biskupakirkjan kaus á
sunnudag konu, Katherine Schori, í
fyrsta sinn til þess að gegna æðstu
stöðu kirkjunnar. Schori var kjörin
biskup þrjátíu árum eftir að banda-
ríska biskupakirkjan veitti konum
leyfi til þess að gegna starfi prests
innan hennar.
Katherine Schori, er með háskóla-
próf í líffræði og haffræði og kenndi
trúarbragðafræði við ríkisháskól-
ann í Oregon áður en hún var vígð
til þjónustu árið 1994.
Bandaríska bisfcupakirkjan þykir
frjálslyndari en enska biskupa-
kirkjan. Fyrir þrem árum vígði hún
til biskupsþjónustu Gene Robinson,
sem er samynhneigður og í sambúð.
Vígslan var ákaflega umdeild og
krafðist meðal annars erkibiskup-
inn af Kantaraborg, í Englandi, þess
að bandaríska biskupakirkjan bæð-
ist afsökunar á vígslunni og með-
limir hennar strengdu þess heit að
vígja ekki fleiri samkynhneigða til
prests- eða biskupsþjónustu.
í
!
i
I
I
!
Markaðsvaktin - Veist þú hvað er að gerast á markaðnum í dag?
ÓKEYPIS
á www.mentis.is
Micmsoít
C E R T I F 1 E D