blaðið - 20.06.2006, Page 10
10 I FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2006 bla6ið
Reuters
Berlín sýnir lit
Óttar Guðmundsson skrifar frá Berlín
Lokheimsstyrj-
aldarinnar síð-
ari og skilmála-
laus uppgjöf
og ósigur Þjóð-
verja höfðu
í för með
sér sársauka-
fullan skilnað
þjóðarinnar við sögu sína og fjöl-
margar hefðir. Skyndilega var
allt sem minnti á marsérandi og
syngjandi brúnstakka foringjans
bannað. Þjóðverjar tóku sér sæti
á þeim sakamannabekk sem þeir
æ síðan hafa vermt. Öllu sem
minnti á þýska þjóðerniskennd
skyldi komið fyrir í glatkistum
sögunnar.
Einhverju sinni fyrir allmörgum
árum var ég á krá í Berlín og söng
ásamt nokkrum drukknum fé-
lögum mínum úr MR gamlan
söng sem allir urðu að læra í
þýskutímum þessara ára; 0 alte
Burschenherrlichkeit. Söngurinn
var eiginlega kæfður í fæðingu
af reiðum og áhyggjufullum dyra-
vörðum og barþjónum sem litu á
textann sem fjallar um vináttu og
tryggð gamalla félaga sem lofgjörð
um gamla tíma. Við máttum víst
þakka fyrir að vera ekki fleygt út af
kránni og barðir fyrir að hafa uppi
áróður þjóðernisjafnaðarmanna.
Fyrir áhugamenn um þýska
sögu og sál eru þessar fótbolta-
vikur í Berlín ákaflega merkilegar.
Skyndilega er ný bylgja þjóðernis-
kenndar og ættjarðarástar runnin
upp. Alls staðar getur að líta
þýska fána og svipþunga erni enda
er borgin öll klædd í svart, gult
og rautt. Þjóðverjar virðast líta
svo á að þeim sé leyfilegt að sýna
harðbannaðar tilfinningar í verki
þessa sólríku júnídaga.
Þetta veldur svo skemmtilegum
þýskum tvískinnungi. Blöðin
eru annars vegar full af aðdáun á
þýska liðinu og fagna þeim stuðn-
ingi sem það fær frá þjóðinni allri,
en hins vegar má sjá lærðar greinar
frá áhyggjufullum sagnfræð-
ingum og þrætubókarhöfundum
sem lýsa yfir miklum áhyggjum
vegna þessarar nýfundnu ættjarða-
ástar. Menn spyrja sig í alvöru
þvort þetta fótboltaæði geti leitt
þjóðina aftur í stórkostlegar en
jafnframt misheppnaðar herferðir
til Parísar, Varsjár og Stalíngrað
undir blaktandi fánum, bumbu-
slætti og söng.
Mörgum finnst ástandið minna
óþægilega mikið á Ólympíuleik-
ana 1936 þegar borgin var líka öll
fánum skreytt og þjóðin velti sér
upp úr þjóðerniskennd og stolti
yfir unnum og óunnum afrekum.
Þá eins og nú var Berlín mið-
punktur alheimsins um stund og
allra augu hvíldu á borginni.
En mestu skiptir fyrir hinn
almenna borgara að þjóðinni
leyfist að standa upp af saka-
mannabekknum í nokkrar vikur
og veifa fánunum sínum og æpa
taktföstum rómi; Deutschland,
Deutschland!
Þjóðverjar eiga nefnilega enga
eiginlega hvatningarsöngva eins
og öll hin liðin. Þeir voru nefni-
lega bannaðir eins og öll karlakóra-
músíkin árið 1945.
Heita stórbrotnum fram-
förum - og útgjöldum
Frambjóðendur í forsetakosningunum í Mexíkó heita uppbyggingu
á öllum sviðum en ýmsir óttast að sagan kunni að endurtaka sig.
Andres Manuel Lopez Obrador, helsti frambjóðandi vinstri manna, lofar 30 háskólum á
mettfma.
Frambjóðendur í forsetakosning-
unum í Mexíkó í byrjun næsta mán-
aðar heita nú kjósendum þvílíkri
aukningu opinberra útgjalda að
mörgum þykir nóg um. Vegir verða
lagðir, olíuhreinsunarstöðvum
fjölgað og einn heitir 30 nýjum há-
skólum á næstu sex árum. Landið
á nú að „nútímavæða” og draga að
erlenda fjárfesta.
Ekki er um það deilt að þörf er á
mikilli uppbyggingu í Mexíkó. Stoð-
kerfi landsins þarf á innspýtingu
að halda - verkfræðingahópur einn
telur að fjárfesta þurfi fyrir 310 millj-
arða dollara á næstu árum (23.000
milljarða króna). Hins vegar óttast
margir að loforð frambjóðenda nú
feli í sér afturhvarf til þeirra stjórnar-
hátta þegar stjórnvöld söfnuðu ævin-
týralegum skuldum og fjármunum
var fleygt í alls kyns opinberar og
oft gjörsamlega misheppnaðar fram-
kvæmdir í von um atkvæði.
Útgjöld án eftirlits
Forsetakosningar fara fram í Mexíkó
3. næsta mánaðar. Roberto Madrazo,
sem er í þriðja sæti ef marka má
skoðanakannanir, reyndi að hleypa
nýju lífi í kosningabaráttu sína fyrr
í mánuðinum með því að skýra
frá því að hann muni hefja 1.027
opinberar framkvæmdir nái hann
kjöri. Þar ræðir m.a. um verkefni
tengd samgöngum og uppbyggingu
af ýmsum toga. Madrazo er fram-
bjóðandi Stofnanavædda byltingar-
flokksins (PRI) sem var við völd í
Mexíkó frá 1929 til 2000. Á þessum
tíma gátu forsetar flokksins ausið út
opinberum fjármunum að vild og
þurftu ekki að áhyggjur af eftirliti
af hálfu þingsins eða fjárlagagerð.
Andres Manuel Lopez Obrador,
helsti frambjóðandi vinstri manna,
hefur tekið undir að flestar þeirra
framkvæmda sem Madrazo boðar
séu nauðsynlegar en við þær hefur
hann bætt 30 nýjum háskólum
sem reknir verða íyrir opinbert fé.
Þessar stofnanir hyggst Lopez Obra-
dor reisa á einu kjörtímabili sem er
sex ár. Hann hyggst einnig leggja of-
urhraðlest frá Mexikóborg til landa-
mæra Texas. Hann hyggst einnig
leggjabæðivegogjárnbrautarlestfrá
Mexíkóflóa að Kyrrhafsströndinni
til að keppa við Panama-skurðinn.
Lopez Obrador var borgarstjóri
Mexíkóborgar frá árinu 2000 þar
til í fyrra. Hann beitti sér fyrir því
að lagðar voru fjölmargar tveggja
hæða hraðbrautir og hann kom
einnig á fót háskóla þar sem nem-
endur hljóta ókeypis menntun.
En ýmsir telja að þessar fram-
kvæmdir allar hafi litlu skilað.
Hraðbrautirnar hafa skapað nýjan
umferðarvanda. Og háskólinn þykir
ekki fyrirmyndar menntastofnun.
Námsgjöld eru að vísu engin en þar
eru ekki heldur gefnar einkunnir og
námskeiðin munu flest snúast um
félagsfræði.
Felipe Calderon, frambjóðandi
Þjóðarátaksflokksins (PAN), sem
nú er við völd í Mexíkó tekur líka
fullan þátt í samkeppninni. Hann
lofar nýjum vegum bókstaflega um
land allt. Og hann hyggst einnig
bæta aðgang íbúa að drykkjarvatni
sem víða er afar takmarkaður
með því að reisa hreinsistöðvar og
dreifikerfi.
Þeir Calderon og Lopez Obrador
eru hnífjafnir ef marka má skoð-
anakannanir og stefnir í tvisýnustu
kosningar í sögu landsins Madrazo
á tæpast nokkra von um sigur.
Auðjöfur þrýstir má
frambjóðendur
Ekki leikur minnsti vafi á því að
stuðningur við opinberar fram-
kvæmdir er mikill og almennur í
Mexíkó. Við þetta bætist að Mexí-
kaninn Carlos Slim, þriðji ríkasti
maður heims, þrýstir nú mjög á
frambjóðendur um að þeir lofi stór-
brotinni og opinberri uppbyggingu í
landinu. Slim hefur sett á stofn bygg-
ingar- og fjárfestingafyrirtæki og
hyggur á mikil umsvif. Ýmsir halda
því fram að Slim muni hagnast
mjög verði loforð frambjóðendanna
uppfyllt. Auður Slims er metinn um
30 milljarðar Bandarikjadala (rúmir
2.240 milljarðar króna).
Slim sjálfur og raunar fleiri halda
því fram að nú gefist einstakt tæki-
færi til uppbyggingar í Mexíkó.
Vextir séu lágir og stöðugleiki ríki.
Á áttunda áratugnum leiddi hátt
olíuverð til ævintýralegra fjárfest-
inga í Mexíkó. Skýjakljúfar risu
og gríðarleg ið/ivæðing fór fram.
Heilu iðnaðarbæirnir voru reistir.
Lopez Obrador og Madrazo sýn-
ast enn nálgast stjórnmálin eftir
þessum leiðum. Báðir koma þeir
frá Tabasco-ríki við Mexíkó-flóann
þar sem tvennt einkennir einkum
umhverfið; mýrar og risavaxnar
opinberar framkvæmdir. Tepetitan,
heimabær Lopez Obrador, naut góðs
af þessum áætlunum en Þær þykja
litlu hafa skilað. Bróðir hans, Jose
ramiro, er raunar héraðsstjóri þar.
í tíð hans var reist gríðarmikil brú
í útjaðri bæjarins sem tengir saman
ófæra troðninga þangað sem bú-
smali ku einkum eiga erindi.
Reynslan víð'a er því ekki sérlega
góð. Á níunda áratugnum lauk góð-
ærinu þegar olíuverð tók að lækka
og eftir sat ríkissjóður skuldum
vafinn. Og síðan varð mönnum ljóst
að margar framkvæmdanna höfðu
verið vanhugsaðar og hörmulega að
sumum staðið
Lopez Obrador og Calderon boða
nú nýja nálgun. Sá fyrrnefndi ætlar
að fjármagna uppbygginguna með
því að draga úr bruðli og síðan
hyggst hann lækka laun þeirra ríkis-
starfsmanna sem bestra kjara njóta.
Calderon kveðst horfa til einkageir-
ans. Kjósendur horfa vonaraugum
til frambjóðenda og yfirboða þeirra
í nafni „nútímavæðingar”
Reuters
Frumleg umhverfisbarátta
Er þér heitt?
Skrifstofu-
og tolvukœlar
íshúsiö ehf S: 566 6000
Þeir auðmenn sem aka um á sport-
jeppum í fínni hverfum Lundúna geta
nú átt á hættu að verða fyrir barðinu á
frumlegri umhverfisverndarbaráttu.
Meðlimir samtaka sem nefnast
.Bandalag gegn notkun stórra jeppa í
borgum” fara nú um hverfin og setja
límmiða á bensínháka sem minna
eigendur þeirra á hversu óumhverfis-
vænir slíkir jeppar eru í borgarakstri.
Sala á stórum jeppum hefur auk-
ist gríðarlega í Bretlandi undanfarin
ár. Blake Ludwig, talsmaður samtak-
anna, segir að slíkir jeppar eyði mjög
miklu bensíni auk þess sem þeir séu
beinlínis hættulegir í umferðinni.
Barátta samtakanna miðast að því
að koma af stað hugarfarsbreytingu
meðal auðmanna í borginni.
Reuters