blaðið - 20.06.2006, Side 14
blaðiö
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaðun Sigurður G. Guðjónsson
Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson
Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber.
ÞEGAR AÐHALDS ER ÞÖRF
Pessa dagana standa yfir þríhliða viðræður milli Samtaka at-
vinnulífsins, verkalýðshreyfingarinnar og ríkisvaldsins, þar
sem reynt er að koma í veg fyrir uppsögn kjarasamninga.
Allir eru þessir aðilar sammála um að forsendur samninga séu löngu
brostnar og því þurfi að gripa til aðgerða. Frumkvæðið að þessum við-
ræðum er komið frá SA, sem með tilboði um 12 þúsund króna hækkun
lægstu launa, opnaði fyrir að þessi vinna hæfist nú í stað þess að beðið
yrði til haustsins. Verkalýðshreyfingin, með Alþýðusamband Islands í
fararbroddi, fór yfir tilboð SA, en svar þeirra var þegar mjög afdráttar-
laust. Þrátt fyrir almenna ánægju með frumkvæði SA er ljóst að verka-
lýðshreyfingin telur sig þurfa meira, enda finnst mörgum verkamann-
inum sem hann hafi ekki notið góðs af því góðæri sem ríkt hefur hér á
landi síðustu misserin.
Og þar með liggur boltinn hjá ríkisvaldinu sem virðist vera komið í þá
stöðu að geta nánast með einu pennastriki tryggt að friður muni ríkja
á vinnumarkaði næstu átján mánuðina. Ríkið þarf hinsvegar að kosta
14 I ÁLIT
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2006 blaöiö
EER. 'FYtiK m? GBmt-p tZA
SvíflQ'KÝLumi OG'cSK*R.^FTiTt '
Av Þú <SflN6 rR_ FkA F-VTíKFoLþLJ^
'OVi NUM íg>L4NÞ$.:
s
einhverju til og svo virðist sem hugmyndir um breytingu á barnabóta-
kerfinu eigi upp á pallborðið hjá stjórnvöldum sem og möguleg breyting
á vaxtabótakerfinu. Einnig virðast stjórnvöld vera tilbúin að gera aðrar
smávægilegar lagfæringar á félagslega kerfinu til að tryggja friðinn.
Hinsvegar er tveimur veigamiklum kröfum ASf hafnað.
Annars vegar eru það hugmyndir um láglaunaskattþrep sem tryggja
myndi þeim sem lægstar hafa tekjurnar hér á landi beinan fjárhagslegan
ábata. Stjórnvöld hafa þegar boðað skattalækkun um áramót og krafa
ASf virðist ennþá rúmast innan þeirra kostnaðarmarka sem þar hafa
verið sett. En þessari hugmynd hafna stjórnvöld alfarið.
Hin hugmyndin er jafnvel ódýrari fyrir ríkið. Hún felst í að færa væg-
ast sagt umdeild lífeyrisréttindi æðstu embættismanna ríkisins, þar
með talið stjórnmálamanna, til samræmis við það sem almennir launa-
menn þurfa að sætta sig við. Með þessu myndu stjórnmálamenn sjálfir,
sem og aðrir embættismenn ríkisins, færa ákveðna fórn og sýna frábært
frumkvæði. Þessari lausn hefur einnig alfarið verið hafnað.
Geir H. Haarde boðaði í 17. júní ávarpi sínu að almenningur jafnt sem
ríkisvaldið ætti að draga úr neyslu og útgjöldum, í raun herða sultaról-
ina. Það yrðu allir að sýna ábyrgð ef draga ætti úr verðbólgu hér á landi.
Það er auðvelt að tala á þennan hátt á tyllidögum, en greinilega erfið-
ara að standa við stóru orðin þegar sparnaðurinn kemur beint við eigin
pyngju og möguleg eftirlaun.
Aðalbjörn Sigurðsson
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aöaisími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Dreifing: (slandspóstur
Miðvikudaginn 21. júní
blaóió
Auglýsendur, upplýsingar veita:
Kolbrún Ragnarsdóttir • Simi 510 3722 • Gsm 848 0231 • kolla@bladid.net
Magnús Gauti Hauksson • Sími 510 3723 • Gsm 691 2209 • maggi@vbl.is
Endurheimtum Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur
Fyrir ári síðan ákváðu ríki og borg
að selja Heilsuverndarstöðina við
Barónsstíg á almennum markaði. Á
Heilsuverndarstöðinni var ýmsum
greinum forvarna og heilsugæslu
sinnt, auk ungbarna- og mæðra-
verndar. Stofnunin var ávallt afar
mikilvæg miðstöð heilsugæslu í
borginni. Að mati F-listans var það
skylda borgaryfirvalda, sem meiri-
hlutaeiganda Heilsuverndarstöðv-
arinnar, að selja hana ekki nema
tryggt væri að það heilsugæslu- og
heilsuverndarstarf sem hún var
reist til að hýsa yrði þar áfram. F-
listinn var eina stjórnmálaaflið í
borgarstjórn sem lagðist eindregið
gegn sölu Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur.
Tillögur F-lista fengu ekki stuðning
Við í F-listanum teljum að það heyri
undir sveitarstjórnarmenn hvernig
heilbrigðisþjónusta er veitt í borg-
inni og hvar hún er veitt. Annars
eru þeir að bregðast hlutverki sínu
sem kjörnir fulltrúar borgarbúa.
Á fundi borgarstjórnar 1. nóv-
ember2005 lagði Ólafur F. Magn-
ússon, borgarfulltrúi F-listans
fram svohljóðandi tillögu um að
heilsugæslustarfi yrði áfram sinnt á
Heilsuverndarstöðinni:
„Borgarstjórn Reykjavíkur skorar
á heilbrigðisráðherra að sjá til þess að
heilsuverndar- og heilsugæslustarfi
verði áfram sinnt á Heilsuverndar-
stöð Reykjavíkur og að stöðin verði
ekki seld úr eigu almennings. Borg-
arstjórn telur að það yrði óbætanlegt
tjón fyrir heilbrigðisþjónustuna á
höfuðborgarsvæðinu og menningar-
sögu Reykjavíkur ef starfsemi Heilsu-
verndarstöðvarinnar ýmist legðist
niður eða yrði tvístrað. Ljóst er að
tilfærsla á þjónustu stöðvarinnar á
Margrét Sverrisdóttir
víð og dreif um höfuðborgarsvæðið
myndi hafa stóraukinn kostnað í för
með sér og gera þjónustuna lakari
og ósamhæfðari en áður, en Heilsu-
verndarstöðin hentar afar vel fyrir
þá starfsemi sem hún var reist til að
hýsa.“
Tillagan hlaut ekki stuðning og
var felld með 14 atkvæðum gegn 1
atkvæði Ólafs. í staðinn var tillaga
borgarstjóra, Steinunnar Valdisar
Óskarsdóttur, samþykkt með 14
atkvæðum gegn 1. I tillögu borgar-
stjóra var ekki lagst gegn flutningi
á starfsemi Heilsuverndarstöðvar-
innar en lögð áhersla á „að hugsan-
legar breytingar í húsnæðismálum
heilsugæslunnar, mæðraverndar og
ungbarnaeftirlits verði ekki til þess
að þjónusta við borgarbúa skerðist.”
Áf því tilefni lagði Ólafur fram svo-
hljóðandi bókun:
„Það er grundvallaratriði fyrir
heilsugæsluna í Reykjavík og heil-
brigðisþjónustuna á höfuðborgar-
svæðinu að heilsugæslu- og heilsu-
verndarstarf sé áfram innt af hendi
áHeilsuverndarstöð Reykjavíkur. Af
tillögu borgarstjóra má ráða að ekki
ríki nægur skilningur á þýðingar-
miklu hlutverki Heilsuverndarstöðv-
arinnar í borgarstjórn Reykjavíkur.”
Ný staða í málinu
Nú berast fréttir af því að fyrirtækið
Mark-Hús ehf., sem keypti Heilsu-
verndarstöðina af ríki og borg í nóv-
ember fyrir tæpan milljarð, hafi aug-
lýst hana til sölu eða leigu. Nú er lag
og ríki og borg geta bætt fyrir þau
mistök sem þegar hafa verið gerð.
Sjálfsagt er að kanna strax hvort
mögulegt sé að Heilsuverndarstöðin
geti aftur komist í eigu almennings
svo að unnt verði að bjarga þeirri dýr-
mætu starfsemi sem þar fer fram.
Höfundur er varaborgarfulltrúi F-listans í
Reykjavík
Klippt & skorið
Miðai við kynjahlutföll á framboðslista
sjálfstæðismanna fyrir borgarstjórnarkosn-
ingarnar í Reykjavik ætti skipan i nefndir, ráð
og stjórnir fyrirtækja
á vegum Reykjavíkur-
borgaraðlítaalltöðru-
vísi úten raun ber vitni.
Það er hreinlega kjafts-
högg fyrir sjálfstæðis-
konuríReykjavíkað
hluturþeirraskulivera 1
fyrir borð borinn. Hvað gerðist? Nú eru konur í
framvarðasveit í kosningabarattunni alln en
þegar á hólminn er komið er leitast við að láta
vini og vandamenn (karlmenn) fá stöður og
sæti I nefndum og ráðum sem eðlilegast hefði
verið að hefðu fallið I hlut þeirra kvenna sem
áttu sæti á framboðslista flokksins.
Maður spyr sig: Hvað þarfkona t.d. að gera
til að fá sæti I stjórn Orkuveitunnar? Fara í kyn-
skiptaaðgerð? Kannski að það sé svarið, hver
veit?Útkomanerhræðilegogíþetta skipti á
flokkurinn að skammastsín þvi svona gerir
maðurekki - skamm skamm Villi!
SjÁLFSTÆÐISKONAN OLGA AuSTFJÖRÐ A TIKIN.IS
Eigendurog stjórnendurFróðahöfðutil-
efni til að fagna fyrir
helgi.en nýjasta fjöl-
miðlakönnun Gallup sýnir að
blöð útgáfunnar eru í mikilli
sókn. Það vekur hinsvegar
athygli að
lestur Vik-
unnar jókst um 26% milli
fjölmiðlakannana og ekki
síður að lestur Séð og Heyrt
jókst um heil 55%. Þessar
tölur hljóta að vekja nokkra athygli í Ijósi þess
að Elínu Albertsdóttur, ritstjóra Vikunnar, og
Bjarna Brynjólfssyni, rit-
stjóraSéð og heyrt, varsagt
upp störfum fyrir skemmstu.
Ástæðan var sú að rekstur
blaðanna þótti ekki standa
undir kröfum stjórnenda
fyrirtækisins. Eitt megin-
hlutverk ritstjóra hlýturað vera að búa til blöð
sem almenningur vill lesa, og nú lítur út fyrir
að það hafði þessir tveir ritstjórar verið að gera.
Það hlýtur að vekja spurningar um það hvaða
kröfur verði gerðar til Mikaels Torfasonar sem
nýlega var ráðinn aðalritstjóri Fróða. Ef aukn-
ing á lestri upp á 55% dugöi ekki til að Bjarni
héldi vinnu sinni ætti Mikael að hafa í mörg
horn að líta á næstunni.