blaðið - 20.06.2006, Qupperneq 16
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2006
16 I SUMARIÐ
Fuglaganga og stöku kvak
1 kvöld mun Jóhann Óli Hilmars-
son fuglafræðingur stýra þriðju-
dagsgöngu í Viðey. Eyjan er þekkt
fuglaparadís þar sem um 30 fugla-
tegundir verpa og margar af elstu
heimildum um eyjuna snúa að fugla-
lífi hennar. Um þetta leyti sumarsins
er fuglalífið í algleymingi og mikið
af hreiðrum og ungum að sjá. „I
bæklingum sem hafa verið gefnir út
hefur fuglalífið verið ítarlega kynnt
og hún er á skrám yfir mikilvæga
fuglastaði. Eyjan er öll opin og það
eru göngustígar þarna út um allar
trissur. Fuglarnir eru þó fljótir að
venjast slíkri umferð sem er innan
þessara marka. Þeir sem að heim-
sækja svona fuglasvæði eru venju-
lega þeir sem hafa áhuga á fuglum
og kunna að umgangast fugla. Þar
sem ég þekki til fer fólk venjulega
eftir reglum,“ segir Jóhann Óli.
Fiðruð paradís
í eyjunni má vissulega finna fjöl-
breytt fuglalíf og þar halda til sjó-
fuglar, mófuglar, spörfuglar og
nokkrar endur svo eitthvað sé nefnt.
.Þarna má finna fýl, teistu, svartbak
og sílamáv af sjófuglum. Sílamávur-
Jaðrakan er ein af þeim fágætu fuglateg-
undum sem verpa í Viðey
inn er reyndar töluvert algengur í
eyjunum en virðist þó hafa fengið
örlítinn skell. Varp mávsins er mun
minna í ár en oft áður og stafar það
helst af skorti á sandsílum. Þessi
skortur virðist hafa náð til fleiri sjó-
fuglategunda sem verpa í eyjunni.
Lundi var eitthvað að reyna að þreifa
fyrir sér aftur eftir áratuga- eða ald-
SERBLAÐ
BÍLAR
Mánudaginn 26. júní
blaöió
Auglýsendur, upplýsingar veita:
ún Ragnarsdóttu • fSíœiSlO 3722 • Gsm 848 023; • kol!a@b!adid.
íús 'lauti Hauí:s%n • Síim 510 3723 • Gsm 691 2209 • ruaaaiw vh;
Gleraugnaverslun
fyrir ungtfólk
STÆRRI VERSLUN
MEIRA ÚRVAL
Reykavíkurvegur 22
220 Hafnarfírði
565-5970
SJÓNARHÓLL
Auðugt fuglalíf er að f inna í Viðey.
Blafíið/SteinarHugi
Jóhann Óli Hilmarsson mun leiða fuglagöngu í Viðey í kvöld en hann kann reyndar best
við sig bakvið vélina
arhlé en mér skilst að það hafi ekki
gengið sem skyldi. Lundinn er aftur
á móti kominn aftur í Engey. Fyrir
utan það sem hér hefur verið nefnt
er mikið af mófugli á borð við jaðr-
akan, spóa, tjald, hrossagauk, þúfu-
tittling, hrafn og steindepil. Eitt
stærsta æðavarp landsins var þarna
í eina tíð en er ekki lengur. Undir lok
18. aldar voru tínd þarna árlega um
45 kíló af dún.“
Það verður þrammað duglega
en þó mun tími gefast til að njóta
þess að fylgjast með fuglum. „Við
munum væntanlega fara um alla eyj-
una, bæði vestureyjuna og heimaeyj-
una. Það er meira fuglalíf á austur-
eyjunni. Þetta fer svolítið eftir veðri
en það verður allavega farið um vest-
ureyjuna," segir Jóhann Óli. Það er
þá örugglega við hæfi að taka með
sér sjónauka til þess að fá enn betri
tilfinningu fyrir fuglalífi eyjunnar.
Lagt verður af stað með Viðeyj-
arferjunni frá Sundahöfn klukkan
19.00 og gangan tekur rúmar tvær
klukkustundir. Ferjutollur er 750 kr.
fyrir fullorðna og 350 kr. fyrir börn
en leiðsögn er ókeypis.
jon@bladid.net
Hvað er hœgt að
gera í garðinum?
Garðar geta þjónað margvíslegum tilgangi,
hvort sem um er að rœða til gagns eða gam-
ans. ígarðinum geta þú ogþínir til dcemis:
• Tengst náttúrunni
• Ræktað gróður og grænmeti
• Skoðað fúgla og skordýr
• Fylgst með árstíðunum breytast
• Slakaðá
• Borðað morgun- og kvöldverði
• Farið í boltaleik svo lengi sem þess
er gætt að skemma ekki blómin
• Dútlað með blóm
• Buslað í uppblásinni sundlaug
þegar vel viðrar
• Sótt afskorin blóm til að skreyta
stofuna með
• Ræktað graslauk og aðrar krydd-
jurtir til að gæða matinn betra
bragði
• Lesið bækur í ró og næði um leið
og ferskt loft er dregið í lungun