blaðið - 20.06.2006, Síða 25
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2006
MENNING I 33
í fyrra. Hún hét Silfurvængur og
hlaut mjög lofsamlega dóma gagn-
rýnenda. Svo er ég líka að vinna að
mjög stóru verkefni fyrir Bjart. Það
er safn smásagna hvaðanæva að úr
heiminum. Ég ritstýri því safni og
þýði hluta af sögunum. Þar má finna
sögur eftir mörg stærstu nöfnin í
bókmenntasögunni og við reynum
að leita fanga í sem flestum löndum.
Það er enn nokkuð langt í að safnið
komi út enda mikil vinna sem liggur
að baki,“ segir Rúnar Helgi.
„Þýðingar farnar að
hljóta meiri athygli"
Rúnar Helgi telur að starf þýðand-
ans sé farið að njóta meiri virðingar
í samfélaginu. „Menn hafa talið þýð-
ingarstafið vanþakklátt í gegnum
tíðina en ég hef nú eiginlega fengið
tvenn stór verðlaun á þessu ári fyrir
starf mitt í þeim geira þannig að
það er kannski að breytast á siðustu
árum og það er mikið gleðiefni fyrir
okkur sem stöndum í þessu að þýð-
ingar séu farnar að fá meiri athygli
og að menn séu í meira mæli að átta
sig á mikilvægi þeirra fyrir islenska
menningu. Orðin „þjóð“ og „þýða“
eru samstofna orð og það fer vel á
því að nýafstöðnum þjóðhátíðardegi
að velta fyrir sér stöðu þýðinga.“
Nýstúdentar úr Fjölbrautaskól-
anum í Garðabæ tóku þátt í verð-
launaathöfninni á 17. júní og þar
flutti Ragnheiður Helga Sæmunds-
dóttir nýstúdent ræðu um gildi ís-
lenskrar tungu fyrir menningarlif
fslendinga. Henni mæltist svo vel að
Rúnar Helgi segist hafa fengið end-
Bragi Ólafs-
son og Ósk-
arÁrnimeð
nýjar bœkur
SMEKKLEYSA sm.ehf. gaf á
dögunum út tvær nýjar bækur,
Fjórar línur og titil eftir
Braga Ólafsson og Ráð við
hversdagslegum uppákomum
eftir Óskar Árna Óskarsson
sem báðar eru gefnar út í tilefni
af tuttugu ára útgáfuafmæli
höfundanna.
Fjórar línur og titill eftir
Braga Ólafsson er safn 52 texta
sem höfundur hefur sett saman
á undanförnum árum, og eins og
titill bókarinnar gefur til kynna
eru textarnir samsettir af íjórum
linum og titli. Bragi gaf út sína
fyrstu bók, ljóðabókina Drag-
súgur, árið 1986. Síðustu útgefin
verk hans eru skáldsagan Sam-
kvæmisleikir sem kom út 2004,
prósaljóðið Innkaupalisti fyrir
Kaupmannahöfn sem kom út í 50
eintökum i tengslum við sýningu
Smekkleysu Humar eða frægð í
Kaupmannahöfn i apríl 2004, og
leikritið Belgiska Kongó sem Leik-
félag Reykjavíkur hefur sýnt fyrir
fullu húsi tvö leikár í röð.
Ráð við hversdagslegum
uppákomum eftir Óskar Árna
Óskarsson er safn húsráða, leið-
beininga og heilræða sem höf-
undur hefur skrifað fyrirlesendur
sína og munu nýtast við ólíkar
aðstæður og tækifæri. Óskar Árni
gaf út sína fyrstu bók, ljóðabók-
ina Handklæði í gluggakistunni,
árið 1986 og hefur á tuttugu árum
gefið út íjölmörg ljóða- og prósa-
söfn, auk þess að vera mikilvirkur
þýðandi. Síðustu bækur hans
eru prósasöfnin Lakkrísgerðin
og Truflanir í Vetrarbrautinni
sem komu út árin 2001 og 2004.
Aðdáendur Óskars þurfa ekki að
kvíða neinu því von er á nýrri
bók frá honum með haustinu.
Bækurnar eru báðar um 30 bls.
að lengd. Þær eru gefnar út í 299
eintökum og eru 99 eintök af
hvorri þeirra tölusett og árituð af
höfundi.
urnýjaða trú á framtíð íslenskra bók-
mennta eftir að hafa hlustað þessa
ungu og frambærilegu konu flytja
slíka ræðu. Rúnar Helgi er ekki í
vafa um gildi þess að þýða heims-
bókmenntirnar á íslensku þó að
sumir telji það óþarfa hinn mesta að
vera að þýða bókmenntir úr alþjóða-
tungumálinu ensku á íslensku þegar
nánast hvert mannsbarn les ensku.
„Ég held að við ofmetum oft ensk-
ukunnátu okkar og það kemur
ekkert í staðinn fyrir það að lesa á
okkar ástkæra, ylhýra. Ég held að
það sé einmitt sérstök ástæða til
þess að þýða úr ensku því okkur
hættir til að sletta óþýddum hug-
tökum í miklu mæli. Við þurfum að
þýða úr ensku til þess að læra betur
að hugsa á íslensku. Það er sjálfsagt
ofmælt að til sé i íslensku orð yfir
allt sem er hugsað á jörð en það er
hægt að koma öllu í orð á íslensku
ef viljinn er til staðar,“ segir Rúnar
Helgi Vignisson að lokum, ánægður
með titilinn bæjarlistamaður Garða-
bæjar 2006.
Páll Hilmarsson forseti bæjarstjórnar, Rúnar Helgi Vignisson og Gunnar Einarsson bæjarstjóri.
MALNING
Innimálning
kr. 1290.- 3 L.
Innimálning
kr. 2980.- 10 L.
afsláttur af
hágæða þakmálningu
Verð áður 12,992.- 10L
Tilboðsverð 6,496.- I0L
BIORA INNIMÁLNING FRÁ TEKNOS
"teknos
•/ Ný tegund almattrar veggjamáln-
ingar sem hefur mikla þvottheldni
V’ Þoliryfir 10000 burstastrokur
skv. SFS 3755 staðlinum
V Gæðastöðluð vara á góðu verði
•/ Ábyrgð tekin á öllum vömm
ÍSLANDSMÁLNING • Sími 517 1500 • Vöruhús / verslun Sætúni 4
TEKNOS