blaðið - 23.06.2006, Qupperneq 1
| SÍÐA35
■ AFPREYING
Frægðarsólin rís!
Magni verður með í Rock Star:
Supernova
Frjálst,
óháð &
ókeypis!
140. tölublað 2. árgangur
föstudagur
23. júní 2006
Getum við farið
með dýr eins
og skepnur?
Ekki hefur mikið farið fyrir
umræðu um dýrasiðfræði
hér á landi þrátt fyrir að fram-
leiðsluhættir hafi töluvert
breyst á undanförnum árum.
Mikill munur er á líðan dýra
við hefðbundna búskapar-
hætti og verksmiðjubúskap
segir Gunnar Örn Sigvalda-
son, heimspekingur, í viðtali
við Einar Örn Jónsson í
Blaðinu í dag. Gunnar segir
áróður gegn dýraverndunar-
sinnum og umhverfisvernd-
arsinnum ofstækiskenndan
en það megi best sjá á því
að háttsettir embættismenn
í bandaríska stjórn-
kerfinu tali um
þessa hópa
sem hryðju-
verkasamtök.
SfÐUR 24 & 25
RAFRÆN RÆKTUN Yrkjuvefurinn.yrkja.is, var opnaður í Grasagarðinum í Laugardal í gær.Vefurinn er í umsjón Yrkjusjóðs sem stofnaðurvar
í tilefni af 60 ára afmæli frú Vigdísar Finnbogadóttur sem opnaði vefinn ásamt Sigurði Pálssyni, formanni Yrkju, Einari Sveinssyni, stjórnarfor-
manni Glitnis og aðalstyrktaraðila vefjarins, og fulltrúum unga fólksins. Markmið Yrkjusjóðsins er að kosta trjáplöntun íslenskra skólabarna á
grunnskólastigi en plöntufjöldinn sem hefur verið gróðursettur frá stofnári sjóðsins árið 1990 fer að nálgast hálfa milljón og er að mestu birki.
Skattleysismörk hækka í 90
þúsund krónur um áramót
Lægstu laun hækka í 123 þúsund krónur. Ríkið kom til móts við allar kröfur verkalýðshreyfing-
arinnar í öllum málum nema einu. Engar breytingar verða gerðar á eftirlaunafrumvarpi.
Eftir Aðalbjörn Sigurðsson
Persónuafsláttur mun hækka um
tvö þúsund krónur um næstu mán-
aðamót samkvæmt samkomulagi
ríkisins við Alþýðusamband Islands
(ASÍ) ogSamtaka Atvinnulífsins (SA)
sem gengið var frá seinni partinn í
gær. Ennfremur verður hann fram-
reiknaður miðað við verðbólgu og
tekur því einnig hækkunum um ára-
mót. Þá munu skattleysismörk vera
komin 90 þúsund krónur á mánuði,
og hafa þá hækkað um 14%. Tekju-
skattur lækkar þá ennfremur um
1% en ekki 2% eins og ríkisstjórnin
hafði áður boðað. Þá hafa stjórnvöld
skuldbundið sig til að verðtryggja
skattleysismörkin miðað við vísitölu
í framtíðinni.
Lífeyrisþegar fá hækkun
Gengið var frá samkomulaginu
seinnipartinn í gær, en í því eru
einnig fleiri ákvæði. Til að mynda
munu atvinnuleysisbætur taka 15
þúsund króna hækkun og verða
eftir næstu mánaðarmót alls ríflega
110 þúsund krónur. Lífeyrisþegum
Tryggingastofununar ríkisins
verður ennfremur tryggð umrædd
15 þúsund króna hækkun. Því til við-
bótar hefur náðst samkomulag um
að komið verði í veg fyrir þá miklu
skerðingu vaxtabóta sem fjölmörg
heimili sáu fram á að verða fyrir.
Stjórnvöld höfðu þegar boðað 25%
hækkun á barnabótum og það hefur
ekki breyst. Hinsvegar verða barna-
bætur í framtíðinni greiddar til for-
eldra barna allt að 18 ára aldri í stað
16 ára áður. Að lokum verða settar
100 milljónir króna í starfsmennta-
sjóð verkafólks.
Með samkomulaginu er komið til
móts við kröfur verkalýðshreyfingar-
innar í öllum málaflokkunum nema
einum. Ekki náðist nein sátt um
breytingu á eftirlaunafrumvarpinu
svokallaða.
Friður tryggður
1 samkomulagi milli Samtaka At-
vinnulífsins og Alþýðusambands Is-
lands sem einnig hefur verið gengið
frá er gert ráð fyrir 5,5% launaþró-
unartryggingu, miðað við tímabilið
júní 2005 - júní 2006. Algengasta al-
menna launahækkunin um síðustu
áramót var 2,5%, og ef einstaklingur
hefur einungis fengið hana og verið í
starfi hjá sama vinnuveitanda allan
tímann á viðkomandi tilkall til þess
að laun hans hækki um 3%.
Ennfremur er gerður sérstakur
kjarasamningur milli SA og verka-
lýðshreyfingarinnar. I honum er
ákvæði um svokallaðan „taxtavið-
auka“ sem nemur 15 þúsund krónum.
Þessi krónutala er viðbót við um-
samda taxta kjarasamninga, en ekki
einstaklingsbundinn réttur. Giskað
hefur verið á að um 40% launa-
manna á almenna markaðnum fái
hækkun vegna þessara nýju samn-
ingsákvæða sem taka gildi þann 1.
júlí næstkomandi.
Með samkomulaginu hefur verið
tryggt að kjarasamningum verður
ekki sagt upp um komandi áramót,
og því er ljóst að friður mun ríkja á
vinnumarkaði næstu 18 mánuði eða
svo.
adalbjorn@bladid.net
Rogue RO’
FREESTYLE
Tyax Comp BB"
Frábært fjallahjól fyrir
kröfuharða
Motomlcro 16”
Frábært barnahjól
fyrir 4-6 ára
FJALLAHJÓLABÚÐIN
FAXAFENI 7 5:5 200 200
MÁN - FÖS. KL. 9-18. LAU. 10-16
■Mtr
UTI
m ú\
1
JA-SKREf
BILALAN
Finndu bara bílinn sem þig dreymir um og viö sjáum um
LÆGRI fjártnögnimina. Reiknaöu lániö þitt a www.frjalsi.is.
VEXTIR hringriu i síma 540 5000 eöa sendu okkur linu á
frjalsi@frjalsi.is, Viö viljum aö þú komist sem lengsti
r
FRJÁLSI
r JARf ts í INCARBANKINN