blaðið - 23.06.2006, Blaðsíða 8
8 I FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2006 blaðið
Þjóðarátak gegn
umferðarslysum
Þjóðarátak VÍS gegn umferðar-
slysum er hafið sjötta árið í röð. í
fréttatilkynningu frá VÍS segir að
í ár verði sjónum einkum beint að
nokkrum meginþáttum sem hver
um sig er meðal algengustu orsaka
umferðarslysa hér á landi. „Auk
hraðaksturs eru það ölvunarakstur,
farsímanotkun undir stýri og önnur
ökuhegðun sem slævir athygli og
einbeitingu í akstri,“ segir í tilkynn-
ingunni. Yfirskrift þjóðarátaksins
að þessu sinni er: „Tökum heppn-
ina úr umferð“ og visar til þess
að ekki þýði að treysta á heppni í
umferðinni.
Vara við
erlendum
svindlurum
Nígerísk stjórnvöld hafa varað við
ferðalögum til Bretlands en að mati
þeirra stafar ferðalöngum mikil
hætta af svindlurum og þjófum.
í tilkynningu frá upplýsingamála-
ráðuneyti Nígeríu eru ferðamenn
varaðir við að ganga með mikið af
reiðufé og öðrum verðmætum á sér
þegar þeir eru á ferð um London.
Sérstaklega er varað við óprúttnum
einstaklingum sem gera sér að leik
að skvetta tómatsafa yfir föt grun-
lausra ferðalanga og bjóðast til að
þrífa blettinn en stela svo peningum
úr vösum fórnarlambsins.
Nígería er eitt spilltasta land
heims og nígerískar svikamyllur
gegnum tölvuskeyti eru þekktar
víða um lönd. Því hefur verið haldið
fram að svikamyllur séu næst
stærsta uppspretta gjaldeyristekna
Nígeríu á eftir olíuútflutningi.
Deilt um stefnu gagnvart
írak á Bandaríkjaþingi
Ólíkar áherslur demókrata og repúblikana í brennidepli í aðdraganda þingkosninganna í nóvem-
ber. Þingmenn demókrata vilja hefja brottkvaðningu bandarískra hermanna frá írak á þessu ári.
Reuters
Hugmyndafræðingar stefnu bandarískra stjórnvalda gagnvart frak. Ef demókratar sigra f þingkosningunum i nóvember aukast
líkurnar á breytingum á þeirri stefnu.
Eftir Örn Arnarson
Baráttan á milli repúblikana og
demókrata fyrir þingkosning-
arnar í nóvember er að komast á
fullt skrið. Meðal þeirra málefna
sem eru hvað mest í brennidepli
umræðunnar er hvenær eigi að
kalla bandaríska herinn frá irak.
Rætt var um málið í öldunga-
deild þingsins á miðvikudag og
endurspegluðu þær umræður
hversu ólíkar áherslur flokkanna
tveggja eru varðandi framtíð
þeirra 127 þúsund bandarískra
hermanna sem nú eru staddir í
írak. Demókratar vilja að stjórn-
völd kalli herliðið heim á þessu ári
á meðan flestir repúblikanar telja
hættulegt að hefja brottkvaðningu
áður en að íraska ríkisstjórnin
er í stakk búin til þess að tryggja
öryggi í landinu. Stjórnmálaskýr-
endur telja að úrslit þingkosning-
anna muni ráða miklu um þróun
mála í írak og þar af leiðandi
hafa áhrif á framkvæmd utanrík-
isstefnu Bandaríkjanna á næstu
árum.
Umræðurnar í öldungadeild-
inni snerust um tvö frumvörp
sem þingmenn demókrata hafa
lagt fram. Báðar tillögur fela í sér
að fyrstu bandarísku hermenn-
irnir verði kallaðir heim á þessu
ári. Annað frumvarpið felur í sér
að enginn bandarískur hermaður
verði eftir í Irak í júlí á næsta ári
en í hinu er ekki kveðið á um hve-
nær brottkvaðningu hersins á að
ljúka.
Ástæðan fyrirþví að demókratar
setja fram tvær tillögur er meðal
annars sú að þingmenn flokksins
gátu ekki komið sér saman um
hvort að það ætti að tímasetja
hvenær brottkvaðningu hersins
myndi ljúka.
Ólíklegt er að annað hvort frum-
varpið verði samþykkt en stjórn-
málaskýrendur segja umræðuna
um þau vera til marks um hvernig
ástandið í Irak mun móta kosn-
ingabaráttuna. Demókratar hyggj-
ast notfæra sér vaxandi óvinsældir
Íraksstríðsins meðal bandarískra
kjósenda til þess að sigra í kosning-
unum á meðan repúblikanar nota
umræðuna til þess að sýna fram á
hversu ósamstæðir andstæðingar
þeirra eru og ótrúverðugir þegar
kemur að utanríkismálum og ör-
yggis- og varnarmálum.
Vilja láta umræðuna
snúast um Bush
I umræðunum á þinginu gagn-
rýndu demókratar George Bush,
forseta Bandaríkjanna, harðlega
fyrir skort á stefnu varðandi írak
og fyrir að hafa ekki útskýrt fyrir
almenningi með hvaða hætti og
hvenær hann hyggist byrja að
draga herliðið frá landinu. Demó-
kratar ganga út frá því vísu að
meirihluti Bandaríkjamanna
vilji að brottkvaðning hermanna
hefjist fljótlega og munu hamra
á því málefni fram að kosningum,
burt séð frá því hver niðurstaða
atkvæðagreiðslunnar um tillögur
þeirra í öldungadeildinni verður.
Er þetta liður í þeirri stefnu þing-
manna demókrata að láta kosn-
ingaumræðuna snúast sem mest
um embættisverk George Bush
í stað þess að einbeita sér að
málefnum heima í héraði í kjör-
dæmum þingmanna.
Repúblikanar hafa svarað gang-
rýni demókrata með því að benda
á að yrðu bandarískir hermenn
kallaðir frá írak myndi það auka
líkurnar á allsherjar borgarastríði
í landinu og kæfa þann vísi að lýð-
ræðisskipulagi sem plantað hefur
verið. Hafa þeir bent á að hryðju-
verkasamtök eins og al-Qaeda
myndu notfæra sér tómarúmið
sem brotthvarf bandaríska herliðs-
ins myndi skilja eftir sig með þeim
afleiðingum að öryggi Bandaríkj-
anna yrði ógnað enn frekar.
Spennandi kosningar framundan
Kannanir undanfarinna mán-
uða hafa gefið vísbendingar um
að demókratar muni bera sigur úr
býtum í þingkosningunum í nóv-
ember. Ovinsældir George Bush,
óánægja með ástandið í írak og
óánægja vegna hás heimsmark-
aðsverðs á olíu hefur styrkt stöðu
flokksins á kostnað andstæðinga.
Hins vegar hafa þingmenn flokks-
ins átt í töluverðum vandræðum
með að láta kosningarnar snúast
um landsmálin og forsetatíð Ge-
orge Bush. Takist þeim það ekki
kunna repúblikanar að halda meiri-
hluta sínum í fulltrúa- og öldunga-
deildinni á næsta kjörtímabili.
Þrátt fyrir að of snemmt sé að
spá með einhverri vissu um nið-
urstöður kosninganna er ljóst að
sigur demókrata yrði til að auka
líkurnar á stefnubreytingu banda-
rískra stjórnvalda varðandi Irak
og hvernig hið svokallaða „hryðju-
verkastríð“ er háð.
orn@bladid.net
Nicorette Fruitmint
Nýtt bragð
sem kemur á óvart
Nícorette níkótínlyf eru fáanleg án lyfseöils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr
reykingum. Til aö ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiöbeiningum í fylgiseöli. Skammtar eru
einstaklingsbundnir eftír þv( hve mikiö er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að
kynna sér upplýsingar um notkun í fylgiseðli. I fylgiseölínum eru upplýsingar um: verkun og notkun,
varúöarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar
aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitiö til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um
lyfin. Þeir sem fengíö hafa ofnæmi fyrir nikötini eöa öörum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall,
óstööuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nícorette
nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaöar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki aö nota Nicorette
nikótínlyf nema aó ráöí læknis. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið.
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið aö lesa hann síðar.
Handhafi markaösleyfis: Pfizer ApS. UmboÖ á íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, Garðabæ. www.nicorette.is
*Meöan birgöir endast
—----------■
■ .Vasfe w* liiy,
“ *■
ÓL(K ÖRLÖG MANNANNA Hrakinn flóttamaður skríður á land eftir að hafa siglt til Kanarí-eyja frá norðurströnd Afríku á heimatilbúnum bát.
Á Gran Tarajal ströndinni endurspeglast ólík örlög mannfólksins. Á meðan Vesturlandabúar njóta sólarinnar flykkjast ólöglegir innflytjendur
sjóleiðis að ströndinni. Um tíu þúsund ólöglegir innflytjendur frá Afríku hafa komið til Kanarí-eyja þar sem af er ári.Talið er að um þúsund þeirra
hafi týnt lífi á leið sinni yfir hafið.