blaðið - 23.06.2006, Page 14
blaðiö
BB
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson
Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber.
AUKIN SJÁLFSTJÓRN
í KATALÓNÍU
Katalóníumenn samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu um liðna
helgi ný stöðulög sem skilgreina hvernig sjálfstjórn þeirra skuli
háttað innan spænska ríkisins. Niðurstaða atkvæðagreiðsl-
unnar kom ekki á óvart; 74% þátttakenda reyndust hlynnt því að ’sjálf-
stæði gagnvart miðstjórnarvaldinu í Madríd yrði enn aukið. Þátttakan
í kosningum þessum reyndist hins vegar aðeins tæp 50% sem gerir að
verkum að umboðið til breytinga verður lengi dregið í efa.
Samkvæmt nýju stöðulögunum munu völd heimastjórnarinnar í
Katalóníu á sviði skattheimtu verða aukin. Heimamenn munu nú halda
eftir stærra hlutfalli þeirra skatttekna sem til verða í Katalóníu en áður
var. Jafnframt mun héraðsstjórnin fá meira um ráðið hvernig þeim
fjármunum er ráðstafað. Að auki verður staða katalónskrar tungu enn
styrkt í héraðinu og völd á sviði dómsmála verða aukin.
Spánn skiptist upp í 17 héruð sem njóta mismikillar sjálfstjórnar.
Mest eru völd heimamanna í Katalóníu, Baskalandi og Galisíu á norð-
vestur Spáni. Spenna í samskiptum heimastjórna og miðstjórnarvalds-
ins í Madríd hefur löngum sett mark sitt á spænsk stjórnmál. Frá því
að einræðisstjórn Francisco Francos leið undir lok árið 1975 hefur þró-
unin almennt verið í þá átt að auka valdið heima í héraði. Hófsamir þjóð-
ernissinnar í Katalóníu hafa nokkrum sinnum komist í oddaaðstöðu í
spænskum stjórnmálum og jafnan nýtt sér hana til að knýja fram aukna
sjálfstjórn á ýmsum sviðum.
Að þessu sinni reyndist fyrirstaðan ekki mikil. José Luis Rodríguez
Zapatero, forsætisráðherra minnihlutastjórnar sósíalista, var hlynntur
breytingunni. Zapatero telur samkomulagið varðandi Katalóníu mikil-
vægt ekki síst sökum þess að hann leitast nú við að skapa samstöðu á
Spáni um að ganga, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, til viðræðna
við pólitíska fulltrúa ETA-hreyfingarinnar sem áratugum saman hefur
háð blóðuga baráttu fyrir sjálfstæði Baskalands.
í inngangi stöðulaganna nýju er vísað til Katalóníumanna sem
„þjóðar“ innan spænska ríkisins. Ýmsir óttast að þjóðernissinnar í
öðrum héruðum fái nú byr undir báða vængi og herði sóknina gegn mið-
stjórnarvaldinu. Einingu spænska ríkisins kunni að vera ógnað. Hægri
menn hafa boðað að stöðulögunum verði vísað til stjórnarskrárdóm-
stóls Spánar.
Zapatero teflir djarft og víst er að frumkvæði hans á eftir að kalla
fram gífurlega harðar deilur á Spáni. Friðarviðræður við ETA-hreyfing-
una, sem trúlega hefjast í sumar, myndu reynast sögulegt skref en full-
yrða má að pólitísk sátt um þær og enn aukin völd sjálfstjórna mun seint
nást á Spáni.
Ásgeir Sverrisson
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar. Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Sfmbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadaíld: 510 3711
Netföng: Wadid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Dreifing: Islandspóstur
VEIÐIKORTIÐ
2 vatnasvæði
fyrir aðeins 5000 krónur!
Handbók með ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir!
Fæst á ESSO, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
14 I ÁLIT
FÖSTUDAGUR 23. JÚWÍ 2006 blaöiö
■HÆSTARÉTTí 2H.JAKj.'2t>54
AUöNABLÍK,AUGNAvUKI! fcETTA hKBKfú .KJ) ,
BÚip Bó ffo 'flKÆflULÍÐUfiA 20? og 3IV UAFÍ WU \ y
'ERrÞ Vísnvm- Vif) H6TI//V1 ^REiÐAf/LEGTÍ^. ^ \
LV/Í flh títl u/lra í /
l/ÉRf-P
VítNí fiV þVf Jów íjSGEipt HHTi í ,
'LEYFjSLEYSí FflRt-P YFiR Loí>#NA MJfl
Víttit BjflR.NA£vMi. EÍNHVEICWTÍM/fl
^EiNT
? 5ÍR STtiN/IR
| 6UWILWI66M
9*
gs
0ý k&ill
Fjölmörg skref fram á
við - en eitt til baka
Enginn dregur í efa nauðsyn þess að
sátt ríki á íslenskum vinnumarkaði á
næstu mánuðum og misserum. Eftir
langvarandi tímabil mikils uppgangs
og stöðugrar kaupmáttaraukningar
hefur verðbólgan gert vart við sig
svo um munar og allir eru sammála
um að mikilvægasta verkefnið fram-
undan sé að ná henni niður. Að því
verki þurfa allir að koma, bæði at-
vinnulífið, verkalýðshreyfmgin og
stjórnvöld. Augljóst er að átöká vinnu-
markaði við þessar aðstæður myndu
gera viðfangsefnið illviðráðanlegt og
því til mikils að vinna að koma í veg
fyrir að slík staða komi upp.
Mikilvægt að ná sátt á vinnumarkaði
1 ljósi þessara aðstæðna var afar
mikilvægt að Samtök atvinnulífsins
skyldu eiga frumkvæði að því að að-
ilar vinnumarkaðarins settust niður
nú á sumarmánuðum til að semja um
breytingar í kjaramálum, með það að
markmiði að tryggja áframhaldandi
frið á vinnumarkaði. Það er líka ljóst
að ríkisstjórnin hefur nálgast við-
fangsefni sitt af alvöru og festu þótt
auðvitað séu ekki allir á eitt sáttir um
þær tillögur sem komið hafa fram af
hennar hálfu. Frá upphafi var ljóst að
ríkisstjórnin myndi með einhverjum
hætti koma að þessum viðræðum,
eins og iðulega gerist við gerð kjara-
samninga, en athyglisvert er að á
undanförnum dögum hefur verka-
lýðshreyfingin einkum beint kröfum
sínum að henni, ekki síst með kröfum
um verulegar skattkerfisbreytingar.
Tillögur ríkisstjórnarinnar í
þessum efnum liggja nú fýrir. Fallist
er á fjölmörg atriði sem aðilar vinnu-
markaðarins hafa gert tillögur um en
Birgir Ármannsson
varðandi skattkerfisbreytingarnar þá
var ekki fallist á kröfu verkalýðshreyf-
ingarinnar um sérstakt skattþrep
fyrir lægri tekjur. Þess í stað setur rík-
isstjórnin fram áætlun um hækkun
persónufrádráttar og þar með skatt-
leysismarka. Verði áform ríkisstjórn-
arinnar að veruleika hækka skattleys-
ismörkin reyndar enn frekar vegna
lækkunar tekjuskattshlutfallsins um
i% um næstu áramót, enda ráðast
skattleysismörk annars vegar af fjár-
hæð persónufrádráttar og hins vegar
af hlutfalli tekjuskatts.
Vonbrigði varðandi tekjuskattinn
Það er hins vegar ekkert gleðiefni
að ríkisstjórnin leggi til að almenna
tekjuskattslækkunin um áramótin
verði aðeins um þetta eina prósent en
ekki tvö prósent, eins og ákveðið var
með lögum haustið 2004. Sjálfstæðis-
flokkurinn lagði mikla áherslu á það í
síðustu kosningum að tekjuskattshlut-
fallið yrði lækkað í áföngum um 4%
á kjörtímabilinu en nái þessi áform
fram að ganga verður lækkunin 3%.
Hækkun persónufrádráttarins leiðir
hins vegar auðvitað líka til þess að
skattgreiðslur alls almennings lækka,
þótt með öðrum hætti sé.
Við sjálfstæðismenn megum
auðvitað að mörgu leyti vel við una
þegar horft er til skattalækkana und-
anfarinna ára. Tekjuskattshlutfall
hefur verið lækkað umtalsvert, eign-
arskattur og sérstakur tekjuskattur
afnuminn, erfðafjárskattur lækkaður
og samræmdur og fleiri breytingar
gerðar til hagsbóta fyrir skattgreið-
endur. Það er kannski einmitt þess
vegna sem það veldur vonbrigðum
nú að ríkisstjórnin telji nauðsynlegt
í þessum viðræðum við aðila vinnu-
markaðarins að hverfa frá hluta tekju-
skattslækkunarinnar. Lækkun skatt-
hlutfalla er langtímaaðgerð í þeim
tilgangi að minnka þann hlut sem
ríkið tekur til sín af sjálfsaflafé fólks.
Sú tillaga sem ríkisstjórnin hefur nú
kynnt varðandi tekjuskattinn leiðir
til þess að okkur mun eitthvað seinka
á þeirri leið. Við höfum stigið mörg
skref ffam á við í þessum efnum á
kjörtímabilinu - en förum nú eitt til
baka.
Höfundur er þingmaður Sjálfstaeðisflokksins
f Reykjavík.
Klippt & skorið
Pegar símaskráin á Netinu er skoðuð
kemur oft ýmislegt forvitnilegt í Ijós.
Klippari rak augun í það á dögunum
að tveir Vestmannaeyingar sem halda heimili
á tveimur stöðum, í Eyjum og á meginlandinu,
leika tveimur skjöldum ef svo má segja. Árni
Johnsen er titlaður blaðamaður í Reykjavík
en í Eyjum er hann ennþá
alþingismaður þrátt fyrir að
hafa látið af þeim störfum fyrir
nokkrum árum. Annar Eyja-
maður, Magnús Krístinsson,
sem nú tekst á
við Björgólf Thor um völdin
í Straumi-Burðarás er titlaður
framkvæmdastjóri ( Reykjavík
en í Eyjum er hann skráður
útgerðarmaður.
Sú hefð hefur verið við lýði árum saman
að borgarstjóri Reykjavíkur opni fyrir
veiði í Elliðaánum og hlotnaðist Vil-
hjálmi Þ.Vilhjálmssynisá heiðurívikunni. Vel
bar í veiði hjá „gamla góða Villa"
sem setti í tvo laxa, en landaði
reyndar aðeins öðrum þeirra. Sá
sem slapp náði að slíta línu veiði-
mannsins og komast undan á æsi-
legum flótta. Klippari man ekki betur en að Villi,
eins og sönnum veiðimanni sæmir, hafi talað
um það, þegar veiðidagur var að kvöldi kominn,
að þó laxinn sem kom á land hafi verið vænn,
hafi sá sem slapp verið enn vænni. Á heimasíðu
Stangaveiöifélags Reykjavíkur er hins vegar sagt
frá því að borgarstjórinn hafi þennan dag lent
í miklu ævintýri, því þegar litið var upp í kjaft
laxins sem á land kom, hafi mátt sjá maðkaön-
gul sem var nokkuð kunnuglegur. Þar hafi verið
kominn aftur laxinn sem Vilhjálmur missti fyrr
umdaginn.
Eins og Klippari sagði frá á dögunum
hefur Björn Ingi Hrafnsson verið
ósáttur við að fá ekki
skrifstofu í Ráðhúsi Reykjavíkur,
heldur þurfa að deila skrifstofu- Ij -=*
húsnæðimeð„óbreyttum"borgar- L A
fulltrúum í húsnæði borgarinnar
i Tryggvagötu. Það hefur hins vegar breyst og
fær kappinn nú kontór ekki langt frá Vilhjálmi
Þ. í sjálfu ráðhúsinu. Ekkert skrifstofurými var
hins vegar laust fyrir Björn Inga og því hefur
mannréttindafulltníi borgarinnar, sem og starfs-
maður jafnréttisnefndar, verið flutt til, og fá nú
að hírast saman á skrifstofu við þriðja mann.
adalbjorn@bladid.net