blaðið - 23.06.2006, Blaðsíða 20

blaðið - 23.06.2006, Blaðsíða 20
20 I HEIMSPEKI FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2006 blaöÍA Hrósa happi yíir góðum kaupum Spurtiing dagsins í dag er hvort skortir á siðrœna hugsun í neyslunni semfer stigvaxandi frá ári til árs? Ný dönsk heimildamynd um indverskan vefnaðariðnað hefur komið löngu tímabærri umræðu af stað sem krefur vestræna neytendur um að velta fyrir sér siðferðilegri ábyrgð sinni. Heimildamynd Tom Heineman hefur vakið mikið umtal í Dan- mörku og umræðan borist hingað til Islands. Mynd Heineman fjallar um indverskan vefnaðariðnað í af- mörkuðu héraði og í henni kemur fram að börn séu látin vinna við ómannúðlegar og heilsuspillandi aðstæður. f myndinni er því enn- fremur haldið fram að dönsk fyrir- tæki, sem og önnur, loki augunum gagnvart þessari þrælkun. Þetta hefur meðal annars orðið til þess að Rúmfatalagerinn hér á landi hefur tekið handklæði úr hillum sínum til að undirstrika að fyrirtækið styðji ekki við barnaþrælkun. Á þriðju- daginn í þessari viku mætti síðan Jóhanna Eyjólfsdóttir, framkvæmda- stjóri íslandsdeildar Amnesty Inter- national, í Kastljósið til þess að ræða þetta mál og tengd málefni. Allir vita Eins og Kristján Kristjánsson frétta- maður kom inn á í viðtalinu við Jó- hönnu þá eru þetta ekki nýjar fréttir. Það vita allir að barnaþrælkun er iðkuð víða án þess að ráðist sé markvisst gegn henni. Spurningin er frekar þessi: Af hverju fer barna- þrælkun fram fyrir augunum á öllum án þess að nokkuð sé gert í því? Svo virðist að samræmdar að- gerðir gegn barnaþrælkun hafi lítið gert til að sporna við vandamálinu. A svipaðan hátt má segja að aðgerðir til að stöðva útbreiðslu fíkniefna og koma í veg fyrir skipulagt vændi hafi einnig borið takmarkaðan ár- angur. Ein veigamikil ástæða fyrir því hlýtur að vera sú að það er ein- faldlega eftirspurn. Á meðan ein- staklingar sækjast eftir því að kaupa sér vændi, kaupa sér fíkniefni og kaupa sér hræódýr handklæði, þá mun þeirri eftirspurn verða svarað. Á þetta benti Jóhanna í viðtalinu í Kastljósinu þegar Kristján spurði hvort að það sem kæmi fram í mynd Tom Heineman væri ekki á allra vi- torði. Jóhanna benti á að umræðan meðal íslenskra neytenda snerist helst um vöruverð. í máli hennar kom einnig fram að meðvitund um umhverfisáhrif og mannrétt- indaáhrif væri öflugri víða annars staðar. Jóhanna hélt áfram og kom sennilega að kjarna vandans þegar hún sagði að fyrirtæki tækju ábend- ingar um misnotkun í öllum skiln- ingi mjög alvarlega. Það er langt frá því að vera algild regla en því miður er það svo að fyrirtæki ganga eins langt og þau mögulega geta til að halda kostnaði niðri og hámarka þess í stað gróða. „Frjálst flæði" Þetta hefur í raun verið einn angi umræðu um hnattvæðingu, um- ræðu sem tengist hugmyndum um „frjálst“ flæði hugmynda, fjármagns og síðast en ekki síst vinnuafls. Hnattvæðingin hefur vissulega haft góð áhrif á samvinnu einstaklinga og stofnana á ýmsum sviðum. Það sem vill þó stundum gleymast er það að hnattvæðingin er oftar en ekki sniðin að þörfum ríkari þjóða. Félagsfræðingurinn Zygmunt Bau- man er einn þeirra sem hefur fjallað ítarlega um hnattvæðingu og áhrif hennar á heimsvísu. Bauman er langt frá því að vera jákvæður i garð Lengi hefur sú vitneskja legið fyrir að barnaþrælkun fari fram víða um heim og sé vaxandi vandamál sem taka verður á. hnattvæðingar og með ákveðinni sanngirni mætti vísast halda því fram að hann geri of mikið úr nei- kvæðum áhrifum hennar og of lítið úr jákvæðum eiginleikum. Neytendur bera ábyrgð Ein stoð í umfjöllun Bauman er hugmyndin um hnattvædd fyrir- tæki gagnvart staðbundnum vanda- LAMISIL málum. Stórfyrirtæki hasla sér völl á þeim landsvæðum þar sem skatta- umhverfi er hagstætt og vinnuafl ódýrt. Ríkisstjórnir reyna að þókn- ast kröfum stórfyrirtækja því af öðrum kosti hóta þau oft að flytja starfsemina annað. Það er auðvelt fyrir alþjóðlegt fyrirtæki að flytja starfsemina annað í frjálsu flæði hug- mynda og auðmagns. Þegar kemur að vinnuafli og staðháttum þá blasir málið öðruvísi við. Fyrirtæki geta lagt margt af mörkum til samfélaga, og gera það mörg hver, en þegar þau rífa sig upp án ábyrgðar getur mynd- ast gap sem erfitt er að fylla í fátæk- ari þjóðfélögum. f krafti frelsis og fjárhagslegrar hagræðingar geta fyrirtæki þannig „kúgað“ ríkisstjórnir og samfélög einstaklinga til að fylgja kröfum sínum. Þetta er ekki algild regla en það er ekki hægt að líta framhjá þessu heldur. Vinnuafl í fátækari löndum á þá ekki endilega auðvelt með að stökkva frá heimahögunum til þess að fylgja vinnunni. Ástæðan fyrir því að þau alþjóðlegu störf sem í boði eru krefjast venjulega góðrar menntunar og félagslegs öryggis- nets sem flestir í fátækari löndum hafa ekki aðgang að. Punkturinn hjá Bauman er sá að fyrirtæki hafi samfélagslegum skyldum að gegna sem þau bregðast oft. Fyrirtæki bera ábyrgð. Það er þó ekki allt og sumt eins og umfjöllun um mynd Tom Hei- neman hefur sýnt fram á. Fyrirtæki og einstaklingar bregðast við neyslu og útvega það sem neytendur kalla eftir. Það er ekki hægt að stara á íoo króna handklæði og hrósa happi yfir góðum kaupum. Neytendur bera ábyrgð og hana ekki litla. jon@bladid.net TERBINAFINE ...einu sinm a dag i Það er engin ástæða til að láta sér liða illa á besta tima ársins. Komdu og fáðu ráðgjöf hjá okkur. ^Lyf&heilsa Við hlustum! Lamisil er borið á einu sinni á dag í eina viku. Hreinsið og þurrkið sýkt svæði vel áöur en Lamisil er borið á. Bera skal Lamisil á í þunnu lagi á sýkta húð þannig að það þekji allt sýkta svæðið. Lamisil er milt og veldur mjög sjaldan húðertingu. Lamisil inniheldur terbinafin sem er sveppadrepandi (fungisid) efni og vinnur á sveppasýkingum í húð af völdum húðsveppa, gersveppa og litbrigðamyglu (“lifrarbrúnir blettir”). Lamisil á ekki að nota gegn sveppasýkingum í hársverði, skeggi eða nöglum nema samkvæmt læknisráði. Það má ekki nota ef þekkt er ofnæmi fyrir terbinafini eða öðrum innihaldsefnum í Lamisil. Geymist þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningarseðil sem fylgir hverri pakkningu. ÆRRI VERSLUN MEIRA ÚRVAL Reykavíkurvegur 22 220 Hafnarfirði 565-5970 www.sjonarholl.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.