blaðið - 23.06.2006, Síða 24
24 I VIÐTAL
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2006 blaöiö
Getum við farið með
dýr eins og skepnur?
Lítil umræða hefur verið um
dýrasiðfræði hér á landi og orðið
eitt kemur mörgum spánskt fyrir
sjónir. Erlendis er þessu öfugt
farið en þar hefur kastljósið
beinst að þessu sviði siðfræðinnar
á undanförnum árum, meðal
annars vegna fjölgunar verk-
smiðjubúa og aukinnar andstöðu
við tilraunir á dýrum. Gunnar
Örn Sigvaldason, heimspekingur,
hefur kynnt sér þessi fræði en
hann skrifaði meðal annars
BA-ritgerð um hugmyndir Peter
Singer eins frægasta og alræmd-
asta dýrasiðfræðings sem uppi er.
Blaðamaður Blaðsins settist niður
með Gunnari Erni og fékk hann
til að leiða sig í allan sannleikann
um dýrasiðfræði.
Gunnar segir að dýrasiðfræði sé í
raun hefðbundin siðfræði sem sé
heimfærð upp á dýrin og meðal
annars sé leitast við að svara spurn-
ingum sem tengjast meðferð okkar
á þeim. „Við spyrjum okkur hvernig
menn eigi að fara með dýr. Er allt sið-
ferðilega réttlætanlegt? Hvað er ekki
siðferðilega réttlætanlegt? Ein höf-
uðspurning dýrasiðfræðinga snýst í
raun um það hvort dýr eigi heima í
siðahringnum, það er að segja hvort
dýr geti í einhverjum skilningi kall-
ast siðferðisverur. Margir halda að
þegar talað er um siðferðisverur að
þær hafi einhverjum skyldum að
gegna. Ég á ekki við það í þessu sam-
hengi heldur að menn hafi skyldum
að gegna gagnvart dýrum,“ segir
Gunnar.
Blalid/SteinarHugi
Gunnar Sigvaldason segir að umræða fjölmiðla um dýraverndunarhópa sé oft einsleit enda sé áherslan einkum lögð á jaðarhópana sem ganga hvað lengst.
Umhverfisspjöll fylgja
verksmiðjubúskap
Á undanförnum árum hafa dýrasið-
fræðingar ekki síst beint spjótum
sínum að svokölluðum verksmiðju-
búskap sem hefur aukist mjög í heim-
inum, ekki síst í Bandaríkjunum.
,Það eru reyndar ekki bara dýrasið-
fræðingar sem hafa gagnrýnt verk-
smiðjubúskap vegna þess að vanda-
mál sem honum fylgja tengjast ekki
aðeins dýravernd eða dýraréttindum
heldur tengjast þau umhverfis-
málum í víðum skilningi. Það hefur
einfaldlega verið sýnt fram á það að
verksmiðjubúskapur, einkum svína-
og nautakjötsframleiðsla, hefur í för
með sér gífurleg umhverfisspjöll,"
segir Gunnar og bendir meðal ann-
ars á, máli sínu til stuðnings, að úr-
gangi frá dýrunum hafi verið varpað
út í náttúruna þar sem hann olli
mengun á vatnsbúskapi og landi. I
Bandaríkjunum er ennfremur talið
að notkun hormóna og annarra vaxt-
arbætandi efna í nautgriparækt hafi
leitt til þess að matvælaofnæmi er tíð-
ara þar í landi nú en áður.
Dýrasiðfræðingar og dýravernd-
unarsinnar hafa einkum gagnrýnt
aðstæður dýra í þessum verksmiðju-
búum. „Þessi býli eru gífurlega stór.
Þarna eru þúsundir ef ekki tugþús-
undir dýra í tiltölulega litlu plássi
þar sem farið er mjög illa með þau.
Þetta eru dýr sem fá kannski aldrei
að sjá sólarljós og fá vart að hreyfa
sig,“ segir Gunnar.
99...................................................
„Áríð 1944 var Draize-prófið svokailaða samþykkt
af bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitinu og var
viðurkennt próf næstu árin. Það gekk út á að setja
efni, oft óþynnt, í augu og á feld dýra til að athuga
hvort að ígerð myndaðist. Það eru til frægar myndir
afkanínum sem voru festar í gapastokk og augu
þeirra spennt upp þannig að þær gátu ekki lokað
þeim. Síðan voru hreinsiefni sett í augun á þeim,"
Verksmiðjubúskapur á fslandi
Gunnar leggur áherslu á að það þurfi
að gera greinarmun á verksmiðjubú-
skap og hefðbundnum búskap. „Við
getum ekki sett íslenskt lambakjöt
og hvernig það er verkað i sama
flokk og verksmiðjubúskap. Það er
ástæðan fyrir þvi að margir siðfræð-
ingar telja réttlætanlegt að borða
kjöt af íslenskum lömbum sem lifa
tiltölulega hamingjusömu lífi og líða
ekki þjáningar," segir Gunnar.
Að hans sögn er verksmiðjubú-
skapur hafinn hér á landi líkt og
víðast hvar annars staðar en hér hafi
ekki komið upp sömu vandamál í
tengslum við hann og erlendis.
Verksmiðjubúskapur hefur verið
að aukast alls staðar í heiminum og
við skulum alls ekki halda að það
gerist ekki á íslandi. Við verðum að
gæta þess að ef við viljum þannig
búskap, sem við viljum ekki öll, þá
verðum við að setja þeim strangar
kröfur sem ætla að standa í þessum
rekstri,“ segir Gunnar.
Vitund fólks um verksmiðjubú-
skap og þau vandamál sem honum
tengjast hefur aukist mjög á und-
anförnum árum og segir Gunnar
að það sé meðal annars að þakka
tilkomu öflugra dýraverndunarsam-
taka. Sú vitundarvakning hefur þó
ekki sjálfkrafa áhrif á neysluvenjur
fólks. „Á sama tíma gerir fólk kröfu
um ódýr matvæli og því skapast viss
togstreita. Matvæli sem eru fram-
leidd í verksmiðjubúum séu mun
Bialil/EinmJ.
Dýraverndunarsinnar vekja athygli á illri meðferð á dýrum í París í fyrrasumar. Andstaða
við tilraunir á dýrum og verksmiðjubúskap hefur aukist mjög bæði í Bandaríkjunum og
Evrópu á undanförnum árum.
SÝNDUTILWIF'.
SVNDU HÆRLöKÁ'-
SVNDU METNAÐ'
Táþessþarftþú
aö haía > hondunum
MbæravéV.
nikon
FYRIR KRÖFUHARÐA
6.0 milljón pixlar
3 x aðdráttur I linsu (38-116mm)
15 tökustiilingar
2.5* LCDskjár
Video upptaka meö hljóöi
23 MB innbyggt minni - hægt að
stækka með XD minniskorti
Aöeins 120 grömm án rafhlöðu
Notar AA rafhlöðu
Verð kr. 29.900
Nikon
Fagmenn þekkja Nikon gæðin.
NIKON Coolpix P3
8,1 milljón pixlar
VR linsa, alvöru hristivörn
3,5 x aðdráttur I linsu (36-126mm)
16 tökustillingar
2.5' LCD skjár
Video upptaka með hljóði
23 MB innbyggt minni
- hægt að stækka með XD minniskorti
Aðeins 170 g án rafhlöðu
Notar Lithium rafhlöðu
Verð kr. 49.900
SÍÐUMÚLA 9 • Sími 530 2800 I SMARALIND • Sími 530 2900 I KEFLAVÍK • Sími 421 1535 I AKUREYRI • Simi 461 5000 I SJA NANAR: www.ormsson
NIKQN Coolpix P1
8,0 milljón pixlar
Þráðlaus yfirfærsla á tölvu og prentara
3 x aðdráttalinsa (36-126mm)
4 x stafrænn aðdráttur
Ljósopf/2.7-5.2
Val á milli 19 program stillinga
Innbyggt flass með In Camera red-eye fix
2,5" LCD skjár (upplausn 110.000 punktar)
Quicktime videotaka
Innbyggt 32mbminni
Notar Li-ion rafhlöðu EN-EL8/180 myndir
Hleðslutæki, Þyngd 170 g
Verð kr. 34.900
Nikon
FÆST EINNIG i:
FRÍHÖFNINNI
Arvirkjanum
PIXLAR
CEISLA
MOOEL
BÓKAVERSLUN ÞÓRARINS
™ ORMSSON
IS