blaðið - 23.06.2006, Page 30
30 I ÍPRÓTTIR
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2006 blaðið
■ HM-leikir dagsins H-riðill, kl. 15
Úkraína - Túnis
• Varnarmaðurinn Vladyslav
Vashchyuk kemur aftur inn í lið
Úkraínu eftir að hafa tekið út leik-
bann. Landi hans Volodymyr Yes-
ersky verður hins vegar frá vegna
lærmeiðsla. Hjá Túnis er hinn
brasilískættaði sóknarmaður,
Francileudo Santos, tæpur vegna
meiðsla.
• Úkraínumenn eru öruggir áfram
með sigri og nægir jafntefli ef
að Sádí-Arabía sigrar ekki Spán
með meira en fjögurra marka
mun. Túnis verður að sigra til að
komast áfram.
• Roger Lemerre, þjálfari Túnis,
hefur ekki ENN unnið leik á
HM. Hann stjórnaði liði Frakka
sem vann ekki leik á HM 2002 í
ár hafa Túnismenn gert eitt jafn-
tefli og tapað einum leik.
Spánn - S.-Arabía
• Spánverjar hafa þegar tryggt
sér sæti í 16-liða úrslitunum.
Þar munu þeir mæta öðru af lið-
unum sem kemst upp úr G-riðli
- Frakklandi, Sviss, Suður-Kóreu
eða Tógó.
• Luis Aaragones, þjálfari Spán-
verja, mun að öllum líkindum
hvíla nokkra leikmenn. Talið er
víst að sóknarmaðurinn ungi,
Fernando Torres, muni byrja á
bekknum og þá mun Santiago
Canizares líklega standa í mark-
inu í stað Iker Casillas.
• Sádí-Arabar hafa keppt á síðustu
fjórum HM. Besti árangrinum
náðu þeir 1994 er þeir komust í
16-liða úrslit.
• Spánverjar hafa ekki tapað síð-
ustu 24 leikjum sinum. Síðasta
tap þeirra var gegn Portúgal í
riðlakeppni EM 2004.
Spænski markahrókurinn Raul er svo myndarlegur að áhorfendum verkjar er hann brosir.
Boltinn í beinni
32 sæta lúxus salur
Skeytin inn
Miroslav Klose er ekki
á leiðinni frá Werder
Bremen, samkvæmt
forráðamönnum liðsins. Þessi
knái framherji hefur slegið í
gegn á HM og skorað fjögur
mörk í þremur leikjum og er í
dag markahæstur á mótinu. Um-
boðsmaður Klose, Alexander
Schutt, segir að fjölmörg stórlið
í Evrópu hafi spurst fyrir um
kappann - þar á meðal Manc-
hester United og Arsenal.
„Frammistaða Miros á HM
hefur gert það að verkum að
hann er mikið í sviðsljósinu
núna. En það kemur ekki til
greina að við seljum hann,“
sagði Klaus Allofs, yfirmaður
íþróttamála hjá Bremen. Schutt
segir hins vegar að skjólstæð-
ingur sinn hafi í huga að leika
erlendis einhvern tímann á
ferlinum og það gæti gerst strax
á næsta tímabili.
Paulo Wanchope tilkynnti
í gær að hann væri
hættur að leika með
landsliði Kosta Ríka.
„Ég hef alltaf verið mjög
stoltur af því að leika fyrir þjóð
mína en nú er komið að leiðar-
lokum. Ég er Iíka fyllilega sáttur
þó að við höfum ekki unnið
neinn leik á HM. Mér fannst
ég standa mig vel og ég skoraði
góð mörk fyrir Kosta Ríka,“
sagði Wanchope.
Þrír aðrir leikmenn Kosta
Ríka, þeir Jose Porras, Maur-
icio Solis og Ronald Gomez,
tilkynntu einnig að þeir væru
hættir. „Kynslóð frábærra knatt-
spyrnumanna er nú horfin á
braut. Við höfum ekki brugðist
neinu og eigum virðingu skilda,"
sagði Wanchope ennfremur.
„Það getur enginn haldið því
fram í raun og veru að Kosta
Ríka geti unnið HM.“