blaðið - 23.06.2006, Page 32
32 I MEWNING
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2006 blaðið
Málverk Gustavs Klimt af Adele Bloch-Bauer seldist dýrum dómum á dögunum
Metverð íyrir málverk
Glatkistan
Jón Þór Pétursson
Er mín sárt
saknað?
Á dögunum seldist verkið „Adele
Bloch-Bauer 1“ eftir austurríska
listmálarann Gustav Klimt fyrir
135 milljónir dollara. Talið er að
þetta sé hæsta verð sem nokkru
sinni hafi verið greitt fyrir
málverk og velti Klimt við þetta
Picasso úr sessi en hingað til var
talið að hann hefði málað það
verk sem greitt hefði verið mest
fyrir. Það mun vera „Boy With a
Pipe“ sem Picasso málaði á bláa
tímabili sínu árið 1924. Pilturinn
með pípuna í munnvikinu seldist
fyrir 104,1 milljón dollara á upp-
boði hjá Sotheby's árið 2004 og
þótti mörgum nóg um.
Það var milljarðamæringurinn
Ronald S. Lauder sem greiddi hið
háa verð fyrir „Adele Bloch-Bauer
1“ eftir Klimt og afhenti það Neue
galleríinu í New York sem hann átti
þátt í að stofna, en safnið sérhæfir
sig í þýskri og austurrískri myndlist.
.Þetta er okkar Mona Lísa,“ sagði Lau-
der þegar hann handsalaði kaupin
kátur í bragði. Hann hefur í gegnum
tíðina lagt mikið fé til þess að halda
austurrískri og þýskri menningu á
lofti og sér ekki fyrir endann á þeim
fjárútlátum. Lauder er þó langt frá
því að vera á flæðiskeri staddur og
er hann iðulega ofarlega á þeim
listum sem birtir eru yfir efnuðustu
menn veraldar.
Ast í meinum?
Ferdinand Bloch-Bauer var i sinni
tíð athafnamaður í Vín sem naut mik-
illar velgengni í viðskiptum. Hann
var mikill áhugamaður um listir og
safnaði málverkum af miklum móð.
Ferdinand þessi fékk Gustav Klimt
til þess að mála nokkrar myndir af
sinni fögru eiginkonu Adele. Klimt
gerði verkið af mikilli vandvirkni
og hafa myndirnar heillað listunn-
endur alla tíð síðan. Það tók Klimt
þrjú ár að fullgera Adele Bloch-
Bauer I. Verkið sýnir Adele með dul-
arfullt, starandi augnaráð. Varirnar
eru hárauðar og nautnalegir og hún
krossleggur hendur nærri andlit-
inu til að undirstrika afskræmdan
fingur sinn. Klimt notaði gull í bak-
grunninn og kjól Adele sem óneit-
anlega setur heillandi blæ á verkið.
Margir listfræðingar og söguritarar
hafa haldið því fram að Klimt og Ad-
ele hafi verið elskendur og að verkið
sýni þann einlæga hug sem Klimt
bar til konunnar fögru.
Adeleendurheimt
Árum saman var málverkið „Adele
Bloch-Bauer 1“ bitbein austurrísku
ríkisstjórnarinnar og afkomanda
Bloch-Bauer hjónanna, Maríu Alt-
mann, sem hélt því fram að hún
væri réttmætur eigandi verksins þar
sem nasistar hefðu sölsað það undir
sig í síðari heimsstyrjöldinni ásamt
fjórum öðrum verkum eftir Klimt. í
janúar á þessu ári var sú staðreynd
viðurkennd og María varð eigandi
allra myndanna fimm. María Alt-
mann er háöldruð og býr í Los
Angles ásamt fjölskyldu sinni. Hún
er bróðurdóttir Ferdinands Bloch-
Bauer og flúði ásamt manni sínum
Fritz Altmann til Bandaríkjanna
árið 1942.
María kveðst í viðtali við The New
York Times hafa hitt auðjöfurinn
Richard S. Lauder fyrir nokkrum
árum og þá hafi hún heimsótt Neue
Gallerí þegar það opnaði í nóvember
2001. „Lauder hefur djúpan skiln-
ing á austurrískri menningu og
hann ann svo sannarlega listsköpun
Gustavs Klimts,“ sagði María. Hún
bætti við að hvorki hún né ættingjar
hennar hefðu talið það fyrir bestu
að fjölskyldan sæti lengur á málverk-
inu fræga sem sýnir hina fögru Ad-
ele sem lést þegar María var aðeins
níu ára gömul. María segist geyma
með sér nokkrar minningar um Ad-
ele. „Ég sá hana aldrei brosa,“ rifjar
María upp í viðtalinu við The New
York Times. „Hún var alltaf ákaf-
lega alvarleg, klæddist oftast hvítum,
víðum kjólum og var alltaf með gyllt
sígarettumunnstykki milli fingr-
anna. Hún hefði viljað vera uppi í
dag og njóta alls þess sem konur geta
notið en gátu ekki þá. Adele hefði
farið í háskóla og reynt að hafa áhrif
á samfélag sitt með því að taka þátt í
stjórnmálum," sagði María og bætti
við að Adele hefði allt sitt líf safnað
í kringum sig menningarvitum og
menntamönnum og verið dugleg
að halda þeim glæsilegar veislur á
heimili þeirra hjóna. Mjög kært var
með Adele og Richard Strauss og var
hann tíður gestur í veislum hennar.
Altmann hjónin eru mjög þakklát
Richard S. Lauder og segja þau hann
hafa átt sinn þátt í því að fjölskyldan
endurheimti málverkin af austur-
ríska ríkinu. María er afar ánægð
með að Adele sé nú loksins komin á
öruggan stað á safninu í New York
og segist ekki geta hugsað sér betri
stað fyrir verkið fagra.
Mappa
Glær plastmappa með þýskum
ættfræðiskjölum týndist á mánu-
daginn var. Hún týndist einhvers
staðar á leiðinni frá Bernhöftsbak-
aríi að Skólavörðustíg 3. Eigandi
hennar saknar möppunnar sárt
stendur í tilkynningu.
Skjöl um ættingja, hold og blóð,
staðfesting á uppruna sínum.
Að mæta á ættarmót vegna ein-
hverrar nánast dulrænnar skyldu.
„Mikið er hann orðinn stór!“, segir
frænka og brosir. Maður brosir á
móti því ekki vill maður gefa til
kynna slæmt uppeldi, allavega
ekki fyrir framan ættingjana.
„Manstu eftir Sísí?“, spyr amma.
„Nei“, segi ég. „Hún er föðursystir
afa þíns“, útskýrir amma og ég
hlýt að anda léttar. Ég er ekki rót-
laus, ég er óslitinn þráður. Ég er
getinn af konu og karli sem voru
getin og svo framvegis. Ég er kom-
inn af, ég er frá.
Að því sem ég best veit á ég enga
þýska ættingja en af einhverjum
ástæðum er ég forvitinn um þessa
möppu.
Hringur
Giftingarhringur með áletrunni
„Þinn Ragnar" hefur fundist. Sú
sem saknar hans getur haft sam-
band stendur í tilkynningu
„Þinn Ragnar“, hugsa ég. Ég var
einu sinni að vinna með manni
sem heitir Ragnar. Hann hefur
legið á milli heims og helju. Sú
sem saknaði hans beið örvænt-
ingarfull. Kannski þurfti hún að
fórna hringnum í stað mannsins.
Kannski stóð hún á krossgötum
og samdi við púka sem vildi bara
eitt í staðinn.
Þetta þarf ekki að vera sá
Ragnar. Það getur verið að sú sem
saknar hans sakni hans hreinlega
ekki. Kannski er ástæða fyrir því
að hringurinn er þarna en ekki
á fingri þeirrar sem saknar hans.
Kannski saknar hún eingöngu
hringsins en ekki Ragnars.
Leðurjakki
Drapplitaður kvenleðurjakki týnd-
ist í maí. Samkvæmt tilkynningu
týndist hann sennilega í 108 Reykja-
vík. BMX-hjólinu minu var stolið
í mai árið 1989 í 200 Kópavogi.
Ég er ekki viss um að þarna séu
tengsl á milli. Ég er þó með mína
eigin tilkynningu: Ef einhver sér
heldri mann í drapplituðum kvenl-
eðurjakka á BMX-furbo hjóli er sá
hinn sami vinsamlegast beðinn
um að íhuga hversu oft maður
verður vitni að furðulegum tilvilj-
unum, tilviljunum sem virðast
vera án samhengis, stiklur í hug-
anum. Hugsunin rennur saman
og hefur áhrif á farveginn þangað
til stórfljót liðast áfram.
Hugrenningakvísl glataðist
seinna hluta árs 2003. Hún rann
saman við stórfljót og út í sjó. Sá
sem kemur auga á kvíslina er vin-
samlegast beðinn um hafa hugfast
að hún snýr ekki aftur.
SU DOKU talnaþrautir
Lausn síðustu gátu
2 6 8 5 4 9 3 7 1
3 7 1 6 8 2 5 9 4
4 9 5 7 1 3 6 8 2
6 1 3 8 9 4 7 2 5
7 4 9 2 5 1 8 6 3
8 5 2 3 7 6 4 1 9
9 8 7 1 3 5 2 4 6
5 2 4 9 6 7 1 3 8
1 3 6 4 2 8 9 5 7
Su Doku þrautin snýst um
aö raða tölunum frá 1-9
lárétt og lóðrétt i reitina,
þannig að hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
í hverri línu, hvort sem er
lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu
má aukin heldur aðeins
nota einu sinni innan hvers
níu reita fylkis. Unnt er að
leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins
8 2 7 1 9 5
4 3
6 5 4 8 2
1 7 3 5 4
9 4 6 1
1
4 8 2
7 2 9
5 2 3
Gustav Klimt