blaðið - 23.06.2006, Side 35
blaöíð FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2006
AFÞREYING I 35
„Þetta er súrrealisk upplifun"
Magni, söngvari hljómsveitarinnarÁ móti sól, erá leiðinni úttilBandaríkjanna tilþess að takaþáttíraunveruleika
þœttinum Rockstar Supernova. Magni gaf sér tíma til þess að setjast niður með Kristínu Hrefnu, blaðamanni
Blaðsins, á erilsömum degi, rétt áður en hann hellir sér í slaginn en hannfer út á laugardaginn.
Hvernig upplifun er þetta fyrir
sveitastrák frá Borgarfirði eystri að
taka þátt í þessu ævintýri? Magni
glottir og lætur hugann reika til
æskustöðvanna.
„Það er eins langt frá því að vera í
Borgarfirðinum eða bara á íslandi og
mögulegt er, algjörlega súrrealískt.
Þetta eru ekki Bandaríkin, þetta er
Los Angeles, þetta er Hollywood og
það kemur bara Bandaríkjunum og
umheiminum ekkert við. Þetta er
önnur vídd þar sem skrítið fólk býr
og það eru allt önnur gildi og allt er
öðruvísi. Fólkið sem vinnur við þetta
í sjónvarpinu og vinnur við gerð
þessara þátta er einfaldlega mjög
sérstakt. Þau eiga sér enga fjölskyldu
og ekkert líf. Þau eru bara í vinnunni
allan daginn og það kemst ekkert
annað að hjá þessu fólki sem er mjög
skrítið,“ segir Magni.
Geðveikin rétt að byrja
„Ég fer út til Los Angeles á
laugardaginn og þá byrjar vika
af fjölmiðlafári. Við verðum í
endalausum viðtölum og upptökum.
Svo byrjar þátturinn líklega 28. júní
og þá ílytjum við inn í setrið. Þá
byrjar nú geðveikin fyrir alvöru. Svo
er þetta auðvitað bara vika fyrir viku
þar og ég gæti komið heim eftir viku,
eða ekki fyrr en á næsta ári,“ segir
Magni hress í bragði. Hann er eini
Evrópubúinn sem er eftir í þessum
rokkstjörnu-raunveruleikaþætti.
Kvíðir því að fara frá syni sínum
Er þetta langþráður draumur að
rætast?
„Ég veit það ekki. Fyrir fimm árum
hefði ég hoppað um allt af kæti en í
dag tek ég þessu með stóiskri ró. Ég
er orðinn þroskaðri en ég var og ef
ég hefði fengið þetta tækifæri þá
hefði ég örugglega klúðrað þessu.
Þáttastjórnendurnir eru búnir að
segja við mig að þeir sjái vel að ég
sé fullorðinn og taki þessu þannig,
eins og atvinnumaður. Ég er búinn
að fatta um hvað lífið snýst og það
er ekki bara þetta. Þetta er auðvitað
frábært og skemmtilegt en það er
meira í lífinu. Eins og til dæmis litli
níu mánaða gamli sonur minn - ég
kvíði ótrúlega mikið fyrir að þurfa að
fara frá honum. En það fær mig til að
halda mér jarðbundnum og geraþetta
af alvöru, fýrst ég er á annað borð að
fara út í þetta. Því ef ég væri ekki að
fara út í þetta af heilum hug myndi ég
frekar gera eitthvað annað eins og að
vera heima með fjölskyldunni,“ segir
hinn nýbakaði faðir.
Hefur engar væntingar
„Ég hef nákvæmlega engar væntingar
til þessa þáttar. Þetta er ekki kapplaup
og ég get ekki gert neitt annað en að ^
vera ég sjálfur. Þeir eru að leita að
persónu og reyna að finna söngvara í
hljómsveit og það er alveg sama hvort
ég reyni að koma mér í mjúkinn j
hjá einhverjum, reyni að mynda
sambönd eða eitthvað þess háttar. Ég
kemst ekkert frekar áfram, annað
hvort passa ég inn í hljómsveitina
eða ekki. Ef þú ert ekki þú sjálfur
kemur það strax fram í sjónvarpinu
og þá getur maður allt eins bara farið
heim. Hljómsveitin er að leita sér að
fjórða meðliminum og eitt okkar er
best til þess fallið, svo einfalt er það.
Ég vil ekki vinna þetta bara til að
vinna þetta og ég veit ekkert hvort í
passa inn eða ekki. Ég hef ekki einu
sinni heyrt Supernova spila. Kannski
finnst mér þetta ekki einu sinni
áhugaverð hljómsveit,“ segir Magni.
Grenjað á gresjunni
„Það eina sem ég kvíði fyrir er lífið
í setrinu. Það að vera með myndavél
ofan í kokinu allan daginn er ekki
alveg minn tebolli, ég kann ekki alveg
við það að hafa myndavél á mér þegar
ég fer á klósettið og allt. Ég held að
þetta verði svolítið eins og að vera
í menntaskóla á heimavist. Ég hef
prófað það og kunni ágætlega við mig.
Bara myndavél í ofanálag og ég þarf
ekkert að læra,“ segir Magni.
„Þú verður að koma
auminginn þinn"
„Þetta byrjaði einfaldlega þannig að
það var hringt í mig fyrir löngu síðan
þegar áheyrnarprufur fyrir þáttinn
voru á Gauknum. Ég var nú eiginlega
bara manaður upp í þetta, svona þú
verður að koma auminginn þinn. Við
mættum þarna 40 manns, þekktumst
nú eiginlega öll, næstum allt vinir og
höfum marg oft spilað saman. Flestir
voru nú svona misjafnlega sjoppulegir
og nývaknaðir. Þar vorum við svo
með kassagítara og spiluðum fyrir
tvo fulltrúa frá þáttunum. Einhvern
veginn enduðu svo fjögur okkar í
Los Angeles þar sem fimmtíu manna
úrslitin voru,“ segir Magni.
„Síðan þurfti ég að redda alls
konar veseni, vegabréfsáritunum og
fleira. Ég skal segja ykkur eitt að það
er ekki auðvelt að fá atvinnuleyfi í
Bandaríkjunum. Svo fórum við fjögur
út um síðustu mánaðamót og eftir
viku voru hin þrjú send heim og ég
var einn Islendinganna eftir í þrjátíu
manna úrslitunum. Þá sungum við
fyrir toppana á sjónvarpsstöðvunum
og aðal „pródúserana“. Eftir það þá
var fækkað í hópnum niður í átján
manns og allir látnir undirbúa sig
eins og þeir væru að fara í loftið
- svo voru í raun þrír varamenn sem
enginn vissi hverjir voru. Það er
bara nýbúið að greina frá því hverjir
varamennirnir eru og þá í leiðinni að
ég kemst áfram,“ segir Magni.
„Þarna úti komum við tvisvar fram
með húsbandinu. 1 fyrra skiptið var
hljómsveitin að hlusta og svo var
maður bara tekinn f létt spjall. Svo í
seinna skiptið tók ég líka eitt lag og
létt spjall en þá voru allir aðalsjón
varpsframleiðendurnir að fylgjast
með. Hvort tveggja tók nú bara svona
um það bil fimmtán mínútur. Það
er ekki búin að vera mikil dagskrá
fyrir utan þessar fimmtán mínútur.
Maður var eiginlega bara læstur inni
á hótelherbergi og mátti ekki tala
við einn eða neinn og allra síst hina
keppendurna. Þannig að ég er búinn
að sjá ótrúlega mikið af bandaríska
sjónvarpinu og ég gæti örugglega
sagt þér hvað er í sjónvarpinu núna,“
segir Magni hlæjandi. „Svo er ég
líka búinn að fara í sálfræðipróf og
líkamsástand allra var skoðað.
Einnig var líka athugað hvort maður
er geðveikur eða hvað,“ segir Magni.
Rokk og ról
„Þessi hljómsveit er ekki að fara
að spila gamaldags þungarokk, ég er
aðeins búinn að spjalla við þá um það.
Þannig að þetta er verður ekkert svo
ólíkt því sem við erum búnir að vera
að gera í Á móti sól. Svo er tónlist bara
tónlist og þeir hafa ekki hugmynd
um það hvernig hljómsveitin mun
hljóma því að það vantar söngvarann.
I þættinum erum við bara að fara að
syngja gömul og góð rokk og ról lög,“
segir Magni.
Fullt af frægu fólki
„Ég veit ekkert hvernig þetta verður en
það fer einn dagur í það að versla föt,
einn í það að æfa með hljómsveitinni
en ég er ekki með planið á hreinu. En
ég veit eitt, eftir hvern þátt sem við
komum fram í verður brjálað partí
þar sem slökkt er á myndavélunum og
fullt af frægu fólki kemur í heimsókn.
Það ku vera mjög skemmtilegt
og allir veða blindfullir og henda
sér í sundlaugina og gera fullt af
skandölum,“ segir Magni.
Allir samningar þverbrotnir
,Það eru mjög strangar reglur um
það hvað maður má og má ekki.
Það er til dæmis alveg bannað að
berja mann og annann, ég skil nú
ekkert í því,“ segir Magni og glottir.
„Ég þurfti að skrifa undir bunka
af samningum sem er örugglega
þykkari en símaskráin um alls konar
bull og vitleysu, þagmælsku og fleira.
Þetta er nú samt allt þverbrotið og
fáir sem fara eftir öllu þessu en það
var brýnt ákaflega harkalega fyrir
okkur að við mættum ekki tala við
hina keppendurna og ekki neina
blaðamenn,“ segir Magni. Þau mega
ekkert kynnast en eru búin að stelast
til þess engu að síður.
Næstum ekkert sameiginlegt
Hvað geturðu sagt mér um hina
keppendurna? „Ég má nú ekki segja
mikið, eða í rauninni ekki neitt. En
eins og það lítur út í dag þá gæti
það verið að einn skemmtilegasti
keppandinn fái hreinlega ekki
inngöngu í Bandaríkin því að hann
fær ekki vegabréfsáritun og getur
því ekki verið með. Ég má ekkert
segja hvað hann heitir en hann er frá
Ástralíu,“ segir rokkarinn. „Það eina
sem við eigum öll sameiginlegt er
tónlistin. Annars eigum við næstum
ekkert sameiginlegt, ekki neitt,“ segir
Magni.
„Maður veltir því fyrir sér hvort
að keppendurnir væru þarna út af
persónuleikanum vegna þess að þetta
er auðvitað raunveruleikaþáttur
en það er ekki. Vá, raddirnar, þau
eru alveg geðveik og sérstaklega
stelpurnar. Alveg sturlaðar raddir
þarna,“ segir Magni sem stendur
hinum keppendunum ekki skrefi
aftar.
kristin@bladid.net
><
-=><-■
Gjöf til þín 1000 kr. inneign!
Þetta er 1.000 kr. inneign á gott ferðalag.
Þú getur nýtt ávísunina á flestum sölustöðum
Vegahandbókarinnar í bókabúðum, bensín-
stöðvum og söluskálum. Aðeins er hægt að
nota einn miða - eina ávísun fyrir hverja bók.
Eldri útgáfur bókarinnar eru ekki teknar
uppí með þessari ávísun.
9 "789979 975014'
>e
Verð áðuri^
Verð nú: 2.990.-
Tilboðið gildir til i. júlí 2006
Vegahandbókin sími: 554 7700
» * * * • . »
Heinekeius
ENGAR MÁLAMIÐLANIR, NJÓTUM LÍFSÍNS TIL FULLS!
{