blaðið - 24.06.2006, Side 1

blaðið - 24.06.2006, Side 1
■ ÍPRÓTTIR ■ MATUR Stjórinn ræður Unaöslega ísland Nýtt borðspil fyrir áhugamenn um boltann er komið á markað Ævintýrakokkurinn Völundur Snær Völundarson hefursent frá sér nýja og óvenjulega bók ■ TÍSKA Ilmur engu líkur llmvötn auka fegurðina í lífinu | SÍÐA20 Tv'eír í>raf<anc/í fersífír síaðir Laugarvegi 176, S: 562 6000 • Pósthússtræti 13 v/Austurvöll, S: 562 7830 • www.redchili.is Fríálst, óháð & ókeypis! 141. tölublað 2. árgangur laugardagur 24. júní 2006 Messa mögnuð kynngi [ dag er Jónsmessa og senn skellur á sú nótt ársins sem mögnuð er mestri kynngi. Á Jónsmessunótt er sagt að framandi verur fari á stjá og samkvæmt gamalli þjóðtrú gerist þá ýmislegt annað yfir- skilvitlegt. Kýrnartala og upp fljóta ýmsir náttúrusteinar auk þess sem vissar jurtir öðlast aukinn mátt. Hér á landi hefur Jónsmessan alla tíð haft á sér nokkurn ann- an brag en sunnar í Evrópu þar sem hún hefurverið miðsum- arshátíð. Fyrr á öldum voru gjarnan haldnar miklar svall- veislur þessa nótt. Kveikt var í þálköstum og trylltur dans stiginn sem oftar en ekkitengdist yfirskilvitlegum verum svo sem nornum og djöflum. Sagt er frá Jónsmessu í Blaðinu í dag. | SÍÐA12. Landið hefur verið selt „Það er búið að selja landið rétt eins og Laxness sagði í Atómstöðinni forðum. Björg- úlfar þessa lands fengu það á spottprís. Þjóðin á ekki lengur neitt í því. I dag erum við aðeins matvinnungar hjá Jóhannesi í Bónus. Það er alveg sama hvort þú ferð í Húsasmiðjuna og kaup- ir nagla eða skellir þér til Lund- úna, við erum alltaf að skipta við sömu fjölskyldurnar. Við erum átthagabundnir leiguliðar, fjötruð af sköttum og skuldum og eigum ekkert í þessu landi iengur," segir Hannes Sigurðs- son, forstöðumaður Listasafns Akureyr- ar, m.a. i viðtali í dag. | SÍÐUR 24 & 25 gin úlfsins Baltasar Kormákur í viðtali við Einar Jónsson um uppgjörið, útrásina og næstu verkefni | SÍÐUR 18 & 19 BlaÖið/Frikki Fráleitt að ráðleggja ungu fólki að fara í fegrunaraðgerð Haukur Haraldsson sálfræðingur segir óþekkt að ungmennum sé ráðlagt að fara í fegrun- araðgerð til þess að öðlast betri andlegri líðan. Slíkt standist ekki nokkur siðferðislög. Eftir Jón Þór Pétursson Haukur Haraldsson, sálfræðingur, segist aldrei hafa heyrt að ung- mennum sé vísað til lýtalæknis vegna fegrunaraðgerðar. í frétt í Blaðinu í gær var sagt frá því að 15 ára stúlka hefði farið til lýtalæknis fyrir tveimur árum og gekkst hún undir brjóstastækkun. Það sem sálfræðingar berjast gegn „Þetta er nákvæmlega það sem við erum að berjast gegn nema um sé að ræða hreint og klárt lýti, eða eitt- hvað annað líkamlegt sé að,“ segir Haukur Haraldsson, sálfræðingur. „Það stenst ekki nokkur siðferðislög að einstaklingur sem vinnur með börnum undir 18 ára aldri ráðleggi þeim að fara til lýtalæknis á þeim forsendum að geta ekki hjálpað meira. Það myndi ekki nokkrum manni detta í hug að það leysi ein- hvern vanda“, segir Haukur. I fréttinni sem birtist í gær segir Guðmundur Már Stefánsson, lýta- læknir, aftur á móti að fyrir hafi komið að sálfræðingar og geð- læknar hafi vísað ungmennum til lýtalækna. Að sögn Guðmundar eru tilfellin þó örfá. Aðspurður hvort aukning hafi verið á því að ungmenni leiti til sál- fræðinga með útlitstengd vandamál segir Haukur að erfitt sé að svara því en vissulega hafi vandamál á borð við átröskun aukist til muna. Til þess að svara spurningunni með fullnægjandi hætti þurfi að rýna í rannsóknir og Haukur segist efast um að slík íslensk rannsókn sé til. Þroskuð börn? Haukur segir sálfræðinga reyna að draga úr sívaxandi útlitsdýrkun og starf þeirra felist í því að láta fólki líða vel með sjálft sig eins og það er. Sjúkdómur á borð við átröskun hefur verið í deiglunni undanfarin misseri og er vaxandi vandamál. „Það hefur verið aukning á sjúk- dómum á borð við átröskun þar sem fólk er með skerta og bjagaða líkamsímynd. Umræðan í dag snýst heilmikið um það mál. Þetta eru í rauninni sjálfgefin sannindi. Ef einhver er með lítið sjálfstraust þá finnur sá einstaklingur eitthvað að sem snýr að sér. Þess vegna er ekki hægt að senda slíkan einstakling í lýtaaðgerð. Ég myndi að minnsta kosti aldrei nokkurn tíma ráðleggja slíka aðgerð. Það á að leyfa barninu að taka út sinn þroska og taka síðan ákvörðun sem fullorðinn einstak- lingur en ekki á öðrum forsendum.“ Haukur segir ennfremur að sé horft til lýtalækninga blasi málið allt öðruvísi við. „Ef um er að ræða einstakling sem er með skertan þroska, þá er það læknisfræðilegt frávik sem þarf að skoða í öðru sam- hengi.“ Það í sjálfu sér hafi ekkert með sálfræðinga að gera. „Sálfræð- ingar geta vísað ungmennum til lækna ef það er álit þeirra að skoða eigi möguleika á lyfjagjöf. Sálfræð- ingur getur þá verið spurður álits hvort að einstaklingur er hæfur til að fara í lýtaaðgerð en þeir vísa ekki formlega á hana. Það er enginn svo illa staddur að það þurfi að bjarga lífi hans með fegrunaraðgerð," segir Haukur. jon@bladid.net VISALán er ný og hagstæð leið til greiðslu- dreifingar við kaup á vörum eða þjónustu. + Staðgreiðsluverð + Lægri vextir + Lægri kostnaður + Til allt að 36 mánaða + Framlengdur ábyrgðartími + Flutningstrygging + Vildarpunktar Nánari upplýsingar á www.visa.is/visalan eöa i síma S2S 2000 Spurðu um ■I ■■■■■■ ISA ín I GSTÆÐAR AFBORGANIR hB VISALán - HAGSTÆÐAR AFBORGANIR

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.