blaðið

Ulloq

blaðið - 24.06.2006, Qupperneq 2

blaðið - 24.06.2006, Qupperneq 2
2IFRÉTTIR LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 blaðiö blaði&= Hádegismóum 2,110 Reykjavík Sími: 510 3700 - www.vbl.is FRÉTTASÍMI: 510 3799 netfang: frettir@ bladid.net AUGLÝSINGADEILD: 510 3744 netfang: auglysingar@bladid.net Fleygði pen- ingum til að dreifa gleði Enskur maður á fertugsaldri vakti fádæma lukku vegfarenda á dögunum þegar hann hóf að h e n d a peninga- s e ð 1 u m upp í loftið og hrópaði: „Hver vill fá gefins peninga?“ Talið er að maður- inn hafi eytt rúmum 20 þúsund pundum, andvirði um 2,8 milljóna ís- lenskra króna, í athæfið. Uppi varð fótur og fit þegar maður- inn hóf að fleygja seðlunum og umferð á svæðinu stöðvaðist þar sem ökumenn og vegfarendur þyrptust um manninn í von um að fá bita af kökunni. „Þetta var algjör bilun,“ sagði John Morris, verslunareigandi á svæðinu. „Fólkið henti sér á peningana eins og engisprettur. Einn maður náði 700 pundum og gengilbeina náði 400 pundum.“ Maðurinn var handtekinn rúmum 20 kílómetrum frá svæðinu, grunaður um ölvuna- rakstur. Þegar hann var inntur skýringa á athæfi sínu sagðist hann einfaldlega hafa viljað dreifa örlítilli gleði á meðal sam- borgara sinna. Skilaboðaskjóðan sett upp í Hellisgerði Blaíil/Frikki (dag klukkanl 3 munu þessir hressu krakkar setja upp barnaleikritið Skilaboðaskjóðuna í Hellisgerði, skrúðgarðinum í Hafnarfirði. Uppfærsla Leiklistarfélags Hellisgerðis mun vera afar skemmtileg en skrúðgarðurinn mun gegna hlutverki ieikmyndar. Það er því tiívalið fyrir unnendur skemmtilegra leiksýninga að skella sér í Hellisgerði í dag. Misjöfn kynjaskipting hjá flokkunum í Reykjavík Kynjahlutfall í nefndum, ráðum og stjórnum borgarinnar er afar mis- jafnt eftir stjórnmálaflokkum. Jafnast er hlutfallið hjá Samfylkingu. Eftir Gunnar Reyni Valþórsson Hlutfall kynjanna í nefndum og ráðum borgarinnar er ólíkt eftir því á hvaða flokk er litið. Samfylkingin er með jöfnustu kynjaskiptinguna ef miðað er við þær nefndir, ráð og stjórnir sem þegar hefur verið skipað í. Þar á eftir kemur Sjálfstæð- isflokkurinn. Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi VG, segir að líta verði til alls kjörtímabilsins í þessu sam- bandi. Sé það gert má sjá að skipt- ingin hjá VG er þvinæst jöfn. Landssamband sjálfstæðiskvenna hefur látið taka saman fyrir sig fjölda og hlutfall karla og kvenna í nefndum, ráðum og stjórnum í Reykjavík eftir stjórnmálaflokkum. Þær segja að samkvæmt þeim upp- lýsingum sé ljóst, að ekki sé hægt að saka Sjálfstæðisflokkinn um að sniðganga jafnréttissjónarmið við skipan í ráð og nefndir eins og þær segja að ætla mætti af umræðu síð- ustu daga. Tölurnar miðast við 20. júní, en Júní 2006 VBK erðbanki Út er komin ný útgáfa af Verðbanka Hönnunar fyrir húsbyggingar og þéttbýlistaekni. Verðbanki Hönnunar fæst keyptur f eftirfarandi hlutum: ■ Húsbyggingar, yfir 2.500 grunn- og einingarverð ■ Ákveðnir kaflar úr húsbygglngum; -Jarðvinna og burðarvirki - Frágangur utanhúss - Tæknikerfi ■ Þóttbýlisbanki, yfir 700 grunn- og einingarverð. Verðbankinn er á verðlagi í júnf 2006 Upplýsingar um Verðbanka Hönnunar er að finna á heimaslðu Hönnunar www.honnun.is HÖNNUN Grensósvegl 1 1108 Reykjavlk | Slml: 510 4000 | Fax: 510 4001 enn á eftir að skipa í nokkur ráð og nefndir. Karlar enn í miklum meirihluta Þegar rýnt er í tölurnar kemur í ljós að kynjaskipting er nokkuð misjöfn á milli flokkanna. Samfylkingin stendur sig best í því að jafna hlut kynjanna í ráðum og nefndum, en hlutfall kvenna hjá þeim er 45,5%. Sjálfstæðismenn koma næstir en konur eru 41,4% nefndarmanna. Sjálfstæðiskonur vekja sérstaka athygli á stöðunni hjá samstarfsflokknum í borgarstjórn, Framsóknarflokki. Af 35 nefndar- mönnum eru aðeins 6 konur eða 17,1%. Raunar reka frjálslyndir lest- ina en þeir tveir nefndarmenn sem flokkurinn hefur fengið eru báðir karlar. Sjálfstæðiskonur segja annað sæta tíðindum, en það sé kynjaskipt- ingin hjá vinstri grænum. Þar er hlutfall kvenna 35,7%, eða níu karlar og fimm konur. Af alls 153 embættum sem skipað hefur verið í eru 98 karlar og 55 konur og er kynjahlutfallið því í heild sinni 36% konur og 64% karlar. Verður að horfa á heildarmyndina Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi Vinstrihreyfingarinnargræns-fram- boðs, segir að ekki dugi að horfa til skiptingar kynjanna eins og hún lítur út í dag heldur verði að horfa til alls kjörtímabilsins. Við skipan ( nefndir og ráð hafa VG oft þann hátt- inn á að skiptast á að sitja í nefndum yfir kjörtímabilið. „Við Svandís Svavarsdóttir skiptum til dæmis með okkur setu í borgar- ráði. Ég er kosinn núna í eitt ár og síðan tekur hún við og mun sitja í þrjú ár. Þá er þetta sæti væntanlega talið á mig núna af því að ég byrja. Þetta skekkir því heildarmyndina." Árni bendir ennfremur á að VG sé í kosningabandalagi við Frjálslynda flokkinn í Orkuveitunni og í stjórn Faxaflóahafna. „Ég sit nú í stjórn Faxaflóahafna, síðan tekur Svandis við og Margrét Sverrisdóttir fyrir frjálslynda að lokum.“ Svipaða sögu er að segja af stjórn Orkuveitunnar. Nú situr Ólafur F. Magnússon þar í eitt ár og síðan mun Svandís Svavars- dóttir taka við af honum. Þegar tekið er tillit til þessara þátta og þeirra nefnda sem VG hafa þegar ákveðið hverjir fari í, reiknast dæmið því á annan hátt og fer hlutfall kvenkyns- nefndarmanna VG úr 35,7% í 47,7% og hlutfall karla verður þá 52,3%. gunnar@bladid.net Sigurður Lín- dal sýknaður í héraðsdómi Sigurður Lindal, prófessor eme- ritus við Háskóla íslands, var í gær sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfu Friðriks Þórs Guðmunds- sonar um að um- mæli Sigurðar í fjölmiðlum í tengslum við Sigurður Líndal flugslysið í Skerjafirði yrðu dæmd dauð og ómerk. Málsatvik eru þau, að í fréttum Stöðvar 2 í júlí var greint frá nið- urstöðum í skýrslu nefndar sam falið var að skila hlutlausu mati á niðurstöðum Rannsóknar- nefndar flugslysa vegna slyssins í Skerjafirði. Sigurður Líndal fór fyrir nefndinni en sonur Frið- riks Þórs var á meðal farþega sem fórust í slysinu. Málsað- ilar, þar á meðal aðstandendur, höfðu fengið afrit af skýrslunni og voru þeir beðnir um að fara með efni hennar sem trúnaðar- mál þar til skýrslan yrði kynnt opinberlega. Stöð 2 komst hins vegar yfir efni skýrslunnar og flutti frétt um málið tveimur dögum áður en opinbera átti efni hennar. 1 Gildisdómur en ekki aðdróttun í bréfi sem Sigurður sendi fjöl- miðlum, og var meðal annars birt í Blaðinu, sagði: „ I kvöld- fréttum í gær sagði Stöð II frá efni skýrslunnar sem auk þess voru ekki réttar. Ljóst virðist því að einhver vandamanna - og er varla öðrum til að dreifa en Frið- riki Þór Guðmundssyni - hefur brotið trúnað og látið Stöð II í té framangreindar upplýsingar.“ Friðrik Þór krafðist þess að ummælin yrðu dæmd dauð og ómerk auk þess sem hann krafðist þess að Sigurður yrði dæmdur til að greiða 500.000 í miskabætur auk dráttarvaxta. Friðrik Þór krafðist þess einnig að Sigurður yrði dæmdur til að kosta birtingu dóms í málinu í þremur dagblöðum. Auk þess krafðist hann þess að Sigurður greiddi allan málskostnað. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að í orðum Sigurðar hafi falist gildisdómur þar sem stefndi hafi lagt mat sitt á stað- reyndir sem hann taldi vera fyrir hendi. Ekki hafi falist í orðum hans refsiverð aðdróttun. Sigurður Líndal var því sýkn- aður af kröfum Friðriks og var stefnanda gert að greiða stefnda málskostnað. 0 HelösklrtL.7 Léttskýjaö:te4C,SkýjaSC Alskýjaö’t^r- Rlgnlng,litllsháttar^^RignlnB-^Súld Snjókoma . Slyilda Srijóól -:'-'- S * * Algarve 24 Amsterdam 22 Barcelona 28 Berlín 25 Chicago 17 Dublin 15 Frankfurt 26 Glasgow 14 Hamborg 21 Helsinki 25 Kaupmannahöfn 17 London 24 Madrid 30 Mallorka 29 Montreal 15 New York 23 Orlando 25 Osló 18 París 26 Stokkhólmur 23 Vín 28 Þórshöfn 9 Veöurhorfur í dag kl: 15.00 Veðursíminn 902 0600 Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.