blaðið - 24.06.2006, Page 25

blaðið - 24.06.2006, Page 25
blaðið LAUGADAGUR 24. JÚNÍ 2006 VIÐTAL I 25 ’ skellir þér til Lundúna, við erum alltaf að skipta við sömu fjölskyld- urnar. Við erum átthagabundnir leiguliðar, fjötruð af sköttum og skuldum og eigum ekkert í þessu landi lengur." Hannes telur listina sjálfa alls ekki undanskilda þessari þróun. „Að mínu viti er listin orðin samdauna markaðssamfélaginu. Reyndar hefur hún alltaf þjónað ríkjandi valdhöfum. Hún er smurolía valdsins og er notuð á ýmsan hátt til að selja vörur og þjón- ustu. Myndlist og tónlist er þannig óaðskiljanlegur hluti af markaðss- trúktúrnum. Helsta breytingin er sú að efnahags- og hugmyndakerfi eru að renna saman í eitt með ófyrirsjáan- legum afleiðingum," segir Hannes. „Allt snýst um athygli" Á síðustu 15 árum hefur orðið algjör sprenging í íjölda listasafna á Islandi. Listasafnið á Akureyri var stofnað árið 1993 og Listasafn Kópavogs einnig. Síðan hefur fjöldi safna bæst í hópinn. Einhver kynni að segja að framlag einkafyrirtækja ættu hér hluta að máli og að með framlagi sínu til íslensks listalífs hefðu þau orðið einhvers konar patrónar list- anna á þessu landi. Hannes Sigurðs- son er ekki á þeirri skoðun. „Ef ég á 100 milljónir, fer í veskið mitt og legg 10.000 kr af mörkum til íslenskrar myndlistar þá gerir það mig varla að miklum höfðingja. Medici fjöl- skyldan á Ítalíu tók meira og minna alla fjármuni sem hún átti og varði til menningar og lista í Flórens. Hinir nýríku, íslensku efnamenn eru i sam- anburði að kasta smáaurum í betlara og fá náttúrlega fyrir það lof og prís - á spottprís. Þetta er samt allt á réttri leið,“ segir Hannes. ■ í dag snýst allt um athygli fjöl- miðla. Hannes segir það aðalmálið í dag að komast með sín hugðarefni á síður dagblaðanna. „Umræðan eru kolin sem mokað er inn i vél skipsins og þar brennur allt — hungursneyð í þriðja heiminum eða nýjasta tíska. Hvað sem er hjálpar til við að knýja skipið áfram og enginn veit hvert það er að sigla. Ekki einu sinni skipstjór- inn í brúnni — hinir raunverulegu eigendur þessa lands, veit hver dall- urinn stefnir. Allt gengur út á það að fá umfjöllun í fjölmiðlum. Myndlista- sýning verður ekki að veruleika fyrr en fjallað er um hana í fjölmiðlum. Hingað til hefur árangur listasafna ekki verið mældur út frá listrænu sjónarmiði, heldur fjölda gesta. Mæli- einingin sem notuð er núna er fyrst og fremst sú hversu mikla umfjöllun sýningin fær í fjölmiðlum,“ segir Hannes. „Trúboði í hugmyndafræði- legum frumskógi" Eftir að Hannes sneri heim frá námi starfaði hann í Reykjavík í nokkur ár. Hann vann m.a. i Gerðubergi og kom þar á hinum merkilegu Sjón- þingum sem haldin hafa verið reglu- lega við góðan orðstír. Árið 1999 tók Hannes við forstöðu Listasafnsins á Akureyri. „Sem Reykvíkingur alinn upp í póst- númeri 101 má segja að ég hafi farið norður til þess að fara mun lengra suður. Ég fór norður til þess að gera nútímalega og alþjóðlega hluti og hafa frumkvæði að verkefnum sem ekki höfðu verið unnin hér áður. Ak- ureyri hefur veitt mér brautargengi og mikinn skilning. Ætli ég sé ekki einhvers konar trúboði í hugmynda- fræðilegum frumskógum norðurs- ins að reyna að boða fagnaðarerindi og möguleika listarinnar. Ég hef oft reynt að gera hluti sem mér hefur fundist vanta í íslenskt listalíf. Til dæmis tók tvö ár að fá Spencer Tun- ick norður með stærstu einkasýningu sem hann hefur haldið. Listasafnið á Akureyri var ómótaður vettvangur þegar ég tók við því og mér leyfðist að fara mínar eigin leiðir— og það sem virtist henta safninu hentaði mér líka. Söfn á íslandi geta ekki sér- hæft sig í einhverju einu. Þau verða að hafa víða sýn og reyna að höfða til sem flestra. Ég reyni að halda is- lenskum samtimalistamönnum á Það geisar stríð á íslandi þótt hvergi sjáist blóðdropi. Okkur er haldið íheljargreipum óttans, eilífum söng um yfirvofandi kreppu, uppskeru- bresti og blóðug átök. Við erum þó blind á okkar eigin stríð. lofti, fá til okkar fræga erlenda lista- menn og einnig setja upp sýningar sem eru merkilegar í listsögulegu eða alþjóðlegu samhengi. Sömuleiðis tel ég alls konar tilraunastarfsemi mjög mikilvæga, jafnvel þótt hún fari ofan garðs og neðan. Þetta á vel við mig sem listfræðing. Það er gaman að fara aftur í söguna og tengja hana við samtímann. Hins vegar er erfitt að fá almenning til þess að stíga yfir þröskuldinn. Framboð afþreyingar er botnlaust og fólk þarf að hafa tíma, næði og sjálfsprottna löngun til þess að velta fyrir sér listum. Hvernig á lítið safn norður í ballarhafi að geta keppt við nýjustu myndina frá Holly- wood? Það getur ekki gert það og á ekki einu sinni að reyna það. íslensk söfn þurfa að hugsa sinn gang, þau eru að mörgu leyti komin úr sam- hengi við samtímann og vekja lítinn áhuga almennings.11 Hannes telur að listnemar séu sömuleiðis í ákveðinni tilvistar- kreppu og listaháskólar þjóni ekki síst þeim tilgangi í dag að aðstoða ungt fólk við að finna sjálft sig. „Listahá- skólar eru að stórum hluta naflaskoð- unarbækistöðvar fyrir leitandi sálir. Það er ótrúlegt miðað við það hversu margir fara í gegnum skólana, hversu fáir það eru sem hafa drifkraft til þess að láta til sín taka að námi loknu. Ungt fólk í Listaháskólanum er upp til hópa illa að sér í listasögu og margir vita sennilega ekki einu sinni hver er forstöðumaður Lista- safns Reykjavíkur. Nemendurnir líta ekki á sig sem eðlilegan hluta af einhverri sögulegri framvindu, þau eru aðallega að leita að sjálfum sér, leika sér og skemmta. Þeir sem halda áfram í þessum geira verða auðvitað að þekkja skil á reglunum því það er miðinn inn á leikvanginn þar sem knattleikur veruleikans fer fram,‘ segir Hannes að lokum. hilma@bladid.net HAGKVÆMNI Verð frá kr. 2.790 þús. Eyðsla aðeins 9,1 lítrar á hundraðið í blönduðum akstri / GRAAfO S/ITARA Nýr Grand Vitara Nýr Grand Vitara er alvöru jeppi af réttri stærð fyrir nútíma fólk sem gerir miklar kröfur um hagkvæman rekstur, aksturseiginleika og öryggi. Undir glæsilegri yfirbyggingu leynist sterkbyggð grind, aflmikil vél og fullkomið fjórhjóladrif með háu og lágu sídrifi með læsingu á milli fram- og afturhjóla. Það skiptir ekki máli hvort þú ert í borgarumferðinni, eða uppi á fjöllum, hagkvæmni og einstakir aksturseiginleikar Grand Vitara gera aksturinn ánægjulegan. SUZUKI ...er lífsstíll! SUZUKI BÍLAR HF. SKEIFUNNI 17. SÍMI 568 51 00. www.suzikibilar.is NÝRGRAND VITARA

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.