blaðið

Ulloq

blaðið - 24.06.2006, Qupperneq 30

blaðið - 24.06.2006, Qupperneq 30
30 I ÍPRÓTTIR ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 2006 blaöiö Sigurliðið búið til við stofuborðið Stjórinn er nýtt ogglœsilegt íslenskt knattspyrnuspil og líklega hiðfyrsta sinnar tegundar í heiminum. Eftir Björn Braga Arnarsson Knattspyrnuspilið Stjórinn kom út á dögunum, en um er að ræða fyrsta borðspilið af þessari tegund á íslandi. Það eru Böðvar Bergsson, Bjarni Daníelsson og Páll Sigurðsson sem hafa veg og vanda að spilinu. I spilinu setja þátttakendur sig í hlutverk knattspyrnustjóra sem keppa hver við annan um meistara- titla í knattspyrnu. í byrjun fær hver stjóri hóp leikmanna og peninga til þess að kaupa fleiri leikmenn. Verk- efnið sem hann stendur frammi fyrir er að byggja upp lið sem er nógu gott til þess að leggja andstæðinga sína að velli í knattspyrnuleikjum. Ekki bara fyrir fótboltafíkla ,Upphaflega hugmyndin kviknaði fyrir um fimm árum en síðan liðu tvö ár áður en farið var að gera eitt- hvað í þessu af viti. Spilið hefur því verið í um þrjú ár í þróun. Það hafa Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartaskjúklinga \HjartaHeill sími 552 5744 Gíró- og kreditkortþjónusta ekki verið til svona alvöru fótbolta- spil og því fannst okkur tilvalið að koma með þetta á markað,“ segir Böðvar. „Við lögðum upp með að spilið innihéldi þá skemmtun og spennu sem er í alvöru knattspyrnu- leikjum. Þá fannst okkur líka mik- ilvægt að allir gætu haft gaman af spilinu, ekki aðeins forfallnir knattspyrnuáhugamenn." Böðvar segir að Stjórinn hafi verið spilað mikið með rýnihópum og fengið fádæma góðar viðtökur hjá þeim. „Það virðast flestallir hafa gaman af þessu, hvort sem það er fullorðið fólk eða krakkar. Það vakti líka athygli okkar að fólk sem hefur engan áhuga á fótbolta skemmti sér mjög vel við að spila þetta. Þau hafa líka einstaklega gaman af því að vinna okkur sem erum á kafi í bolt- anum,“ segir Böðvar og bætir við að hann þekki það af biturri reynslu. „Ég hef einmitt lent í því að tapa fyrir manneskju sem hefur ekki minnsta áhuga á fótbolta. Það var mjög slæmt,“ segir hann og hlær. Stefnt á útrás 1 spilinu eru 6oo alvöru knattspyrnu- menn frá mörgum ólíkum þjóðum og á meðal þeirra eru nokkrir ís- lenskir leikmenn. „Víð tókum leik- menn víðs vegar að. Við erum með flestalla íslensku landsliðsstrákana og allar stórstjörnurnar en inn á milli eru minni spámenn. Við vildum hafa þetta svolítið raunveru- legt og að fólk þyrfti að byggja sjálft Þriðjudaginn 27. júní Auglýsendur, upplýsingar voita: Kolbrún Ragnarsdóttir • Sími 510 3722 • Gsm 848 0231 • kcila@bladid.net Magnús Gauti Hauksson • Sími 510 3723 • Gsm 691 2209 • maggi@vbl.is blaéió Böðvar Bergsson heldur stoltur á afkvæminu. Fótboltaspilið Stjórinn kemur í verslanir á mánudag. Blaliö/SteiimHugi upp gott fótboltalið. Hver leikmaður hefur sína eiginleika og einkunnir í hinum ólíkustu flokkum frá einum og upp í io,“ segir Böðvar. Spilið var unnið í samstarfi við Og- Vodafone og segir Böðvar það ekki hafa verið erfitt að fá þá með sér í lið. „Við fórum á fund með þeim og spiluðum við yfirmennina. Þeir skemmtu sér svo vel og voru svo hrifnir að þeir ákváðu að ganga strax í þetta verkefni með okkur. Það má segja að þetta spil hefði aldrei orðið til nema fyrir tilkomu þeirra," segir Böðvar. Hann segir að ef spilið slái i gegn hér á landi sé markmiðið að fara með það á erlendan markað. „Island er í rauninni hinn fullkomni prufu- markaður. Ef þetta gengur vel hérna ætlum við að fara með þetta út,“ segir Böðvar að lokum. bjorn@bladid.net Þjóðverjar og Argentínumenn áfram Dóra María Lárusdóttir og Leifur S. Garðarsson spá í spilin fyrirfyrstu leikina í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins. Dóra María Lárusdóttir, knattspyrnukona úrVal. Dóra María Lárusdóttir kveðst ekki vera mjög djúpt sokkin í HM þó hún fylgist ágætlega með. „Maður er alltaf að vinna á daginn. En það er reyndar kominn skjár í vinnunni og maður lítur öðru hvoru upp. Svo horfi ég á 4-4-2 þegar ég er við sjón- varpið á kvöldin," segir Dóra. Hún segist ekki eiga sér uppáhalds lið á mótinu, heldur styðji hún ein- faldlega liðin sem spila skemmtileg- asta fótboltann hverju sinni. „Ég get talið upp einhverjar fimm þjóðir sem ég er mjög hrifin af. Ég fíía Argent- ínu og Brasilíu, enda eru þau að spila frábæran bolta. Þá hafa Italía, Spánn og Holland verið að gera mjög góða hluti," segir Dóra. Spá Dóru Maríu: Þýskaland - Svíþjóð „Þessi leikur fer 1-0 fyrir Þýskalandi. ----q Fyrst Svíar gátu ekki unnið Eng- lendinga eru þeir jf» g ekki að fara að t taka Þjóðverja. g£ ) U Ég á von á því að I sigurmarkið komi I frá varnarmanni I eða einhverjum Dóra María minni spámanni. Lárusdóttir. Það verður alla- vega ekki Klose eða Ballack sem skora.“ Argentína - Mexíkó „Argentína vinnur þennan leik létt 3- 0. Argentínumenn eru með yfirburð- arlið og ég efast um að Mexíkóar nái að standa í þeim.“ Leifur S. Garðarsson, þjátf- ari Fylkis í knattspyrnu. Leifur S. Garðarsson segir að Þjóð- verjar hafi komið sér mest á óvart á Carlos Tevez hefur farið mikinn fyrir Argentínumenn og verið einn af lykilmönnum liðsins. mótinu það sem af er. „Þjóðverjar eru búnir að vera gríðarlega sterkir og það kemur manni kannski svo- lítið á óvart af því að þeir hafa ekki verið að gera mjög gott mót fram að þessu,“ segir Leifur. Hann segir að af LeifurGarðarsson. mörgum Sterkum þjóðum væri einna skemmtilegast að sjá Spánverjana fara alla leið. „Ég held að það sé kominn tími á Spán- verja að gera einhverjar rósir. Það væri gaman að sjá þá vinna þetta mót þó að það vanti auðvitað Mikel Art- eda, leikmann Everton. Það er náttúr- lega hneyksli að hann hafi ekki verið valinn í hópinn." Spá Leifs: Þýskaland - Svíþjóð „Ég held að þessi leikur fari 3-2 fyrir Þýskaland. Þetta segi ég vegna þess að í liði Svía eru tveir fyrrverandi leikmenn Everton, þeir Tobias Lind- eroth og Niclas Alexandersson, og þeir munu skora í leiknum. Þjóð- verjar skora hins vegar örugglega - fleiri mörk og vinna leikinn. Ég veit hins vegar ekkert hverjir skora fyrir þá af því að það eru engir Ev- erton-menn í þýska landsliðinu.“ Argentína - Mexíkó „Þessi leikur fer 2-0 fyrir Argent- ínu. Argentína er með eitt allra sterkasta liðið á þessu móti. Þetta gæti þó orðið erfiður leikur fyrir þá af því að þessi lið spila ekkert ósvipaða knattspyrnu og Mexíkóar gætu þvælst aðeins fyrir þeim. En Argentínumenn eiga að vera nógu sterkir til að klára þennan leik.“

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.