blaðið - 01.07.2006, Page 17
blaðiö LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006
SAG, I 17
jJTf
SlU ^ 1
Upphaflega átti að reisa Alþingishúsið í Bakarabekkunni á milli lóðanna þar sem nú eru Bankastræti 7 og Laugavegur 1.
BlaÖiÖ/Frikki
Ekki aðeins Alþingishús
Fyrir utan þingstörfin hefur ýmis
konar önnur starfsemi farið fram
í gráa steinhúsinu við Austurvöll í
gegnum tíðina. Sama ár og þingið
hóf þar störf sín var til að mynda
Stiftsbókasafnið (Landsbókasafnið)
og Forngripasafnið (Þjóðminja-
safnið) einnig opnuð þar. Verk í eigu
Listasafns Islands voru til sýnis í
húsinu frá árinu 1885 og fram til árs-
ins 1950 þegar safnið fékk inni í ný-
reistu húsnæði Þjóðminjasafnsins.
Árið 1899 var Forngripasafnið
flutt í hús Landsbankans í Austur-
stræti og fékk þá Landsskjalasafnið
(Þjóðskjalasafnið) þriðju hæð Al-
þingishússins til afnota en þar hafði
áður Forngripasafnið verið. Vetur-
inn 1908-1909 var Landsbókasafnið
og Landsskjalasafnið flutt í Safna-
húsið við Hverfisgötu sem þá var
nýreist.
Háskóli íslands hóf starfsemi sína
i Alþingishúsinu við stofnun hans
árið 1911. Við komu stúdentana má
segja að orðið hafi bókstaflega orðið
þröng á þingi og því var gripið til
þess ráðs að hafa þinghald eingöngu
á sumrin. Árið 1920 færðistþingstarf
aftur á vetrartíma og fór því starf-
semi Háskólans og Alþingis fram á
sama tíma fram til ársins 1940 er Há-
skólinn fluttist í nýtt húsnæði.
Þá voru skrifstofur forsetaembætt-
isins til húsa í Alþingishúsinu fram
til ársins 1973 þegar þær voru fluttar
í Stjórnarráðshúsið.
Blatiö/Frikki
Alþingisgarðurinn er vinalegur retur í
miðbsnum þar sem gott er að tylla sér niður á
fðgrum degi og njóta veðurblíðunnar.
Grjótið sem notað var til byggingar
Alþingishússins kom að mestu leyti úr
Þingholtunum.
Kringlan var byggð við Alþingishúsið árið 1908.
Hún var upphaflega reist sem risnuherbergi,
síðar varð hún kaffistofa og nú er þar setustofa.
i_____m
„Hvað er með Asum?“
Ævintýraferð í goðheima fyrir alla fjöl-
skylduna. Goðastyttur Hallsteins
Sigurðssonar við texta Árna Björnssonar,
þjóðháttafræðings.
Laxárstöövar í Aðaldal
Orka í iðrum jarðar!
Heimsækið gestastofuna í Kröflu, sjáið
myndirfrá Kröflueldum.
Kynnist jarðvarma og orkuvinnslu.
Kröflustöð í Mývatnssveit
ísland í augum innflytjenda
Hvaða sýn hafa innflyljendur á land og
þjóð? Listsýning nokkurra innflytjenda.
Skemmtidagskrá margar helgar í sumar.
Ljósafossstöð við Sog
Sumarið er okkar tími!
Tilvalið að líta inn
Kynnist Kárahnjúkavirkjun!
Upplýsingar um Kárahnjúkaframkvæmdirnar
ásamt ferðamennsku og útivist norðan
Vatnajökuls. Góður viðkomustaður áður en
haldið er upp á Fljótsdalsheiði.
Végarður í Fljótsdal
v____________________________________J
L.
List og saga
„Andlit Þjórsdæla - mannlíf fyrr og nú".
Málverkasýning Hlífars Snæbjörnssonar.
Athyglisverð sölusýning á landslags-
málverkum.
Sultartangastöð ofan Þjórsárdals
J
Með krafta í kögglum!
Sýning á myndum Halldórs Péturssonar
listmálara við Grettissögu.
Kynniö ykkur orkumannvirki sem kemur
á óvart.
Blöndustöð, Húnaþingi
^-----------------------------------
Spennandi sumar framundan hjá Landsvirkjun
Sýningarnar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar.
Nánari upplýsingar um opnunartíma á www.landsvirkjun.is
ogísíma 515 9000.
c
Landsvirkjun
Góðir straumar I 40 ár