blaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 2
2IFRÉTTIR
-i
LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2006 blaftift
Strokufangi gengur laus:
Enn ófundinn
Hilmar Ragnarson, strokufangi
frá Litla-Hrauni, var enn ófund-
inn þegar Blaðið fór í prentun í
gær.
Lögreglan í Reykjavík hefur nú
lýst formlega eftir Hilmari, en
eins og fram kom í Blaðinu í gær
náði hann að strjúka þegar hann
var í læknisheimsókn í Lágmúla
í Reykjavík. Talið er að hann hafi
komist út um glugga á húsinu.
Hilmar, sem er 43 ára að aldri,
er dökkhærður og grannvaxinn.
Hann var klæddur í dökka úlpu,
dökkar buxur og ljósa skó þegar
síðast sást til hans.
Hann er ekki hættulegur og
því auglýsti lögreglan ekki eftir
honum fyrr en í gær. Hann hefur
hlotið dóma fyrir fíkniefnabrot.
Hilmar var ekki sá eini sem
strauk úr fangelsi á þriðjudag,
því annar sem vistaður
er í Hegningarhúsinu við
Skólavörðustíg strauk þegar
hann var færður til tannlæknis.
Hilmar Ragnarsson Hann varklædd-
ur í dökka úlpu, dökkar buxur og Ijósa
skó þegar síðast sást til hans.
Sá náðist um kvöldið á Akranesi.
Mál fanganna tveggja eru alls
óskyld.Lögregluembætti landins
hafa leitað að Hilmari síðan hann
slapp.
Lögreglan biður alla þá sem
geta gefið upplýsingar um ferðir
Hilmars að hafa samband við lög-
regluna i Reykjavík.
Óslitinni orrustuútgerð lokið
Halda heim til St. Louis i Missouri
Varnarliðið:
NÝB VALItOSTUR A
transport i
toll- og flutningsmiðlun ehf fjj ' >
Fiskislóð 26 • 101 Reykjavík • Sími: 578 4600
www.transport.is • transport@transport.is
Þoturnar farnar
fyrir fullt og allt
Tvær björgunarþyrlur eftir ■ Síðustu þoturnar aftur til Missouri
■ Fyrsta skipti frá 1940 sem engar loftvarnir eru á íslandi
Eftir Atla isleifsson
atlii@bladid.net
Síðustu orrustuþotur Bandaríkja-
hers flugu af landi brott stuttu fyrir
hádegi í gær. Orrustuþotur Banda-
ríkjahers hafa annast loftvarnir hér
á landi í rúma hálfa öld.
Friðþór Eydal, upplýsingafull-
trúi varnarliðsins, segir að síðustu
orrustuþoturnar hafi haldið til
síns heima, til St. Louis í Missouri.
„Þetta markar endi á óslitinni orr-
ustuútgerð bandaríska flughersins
hér á landi síðan 1953.“
Að sögn Friðþórs hafa orrustuþot-
urnar, sem hafa verið hér síðasta
áratuginn, verið skaffaðar til sex til
tólf vikna dvalar í senn af orrustu-
sveitum bandaríska flughersins.
Venjan hefur verið að vera með fjórar
til sex orrustuþotur, en þegar flug-
sveitin frá Missouri kom fyrir um
mánuði síðan voru einungis þrjár
orrustuþotur í för. „Nú eru engar
Óslitin orrustuútgerð lokið Síðustu þrjár orristuþoturnar sem stóðu vaktina
á Keflavíkurflugvelli voru frá Þjóövarðliöinu i Missouri. Þær héldu heim á leið
stuttu fyrir hádegi i gær.
eftir, aðeins tvær björgunarþyrlur
sem verða hér fram í september."
Samkvæmt heimildum Blaðsins
stóð til að þoturnar færu að morgni
fimmtudags en því var frestað
um sólarhring. Talið er að ein af
ástæðunum séu atburðirnir í Lund-
únum í fyrradag, þar sem 24 voru
handteknir, grunaðir um að hafa
að ætla að fremja hryðjuverk í tíu
farþegavélum á leið frá Bretlandi til
Bandaríkjanna.
Bandarísk stjórnvöld tilkynntu
ríkisijjórn íslands í mars síðast-
liðniúii að stórlega yrði dregið úr
starfsémi Bandaríkjahers á Keflavík.
Nicholas Burns, aðstoðarutanrikis-
ráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti
Geir H. Haarde, þáverandi utanríkis-
ráðherra, ákvörðunina í símtali þar
sem fram kom að orrustuþoturnar
og björgunarþyrlur varnarliðsins
yrðu fluttar brott í síðasta lagi fyrir
lok september.
Hvorki náðist í Geir H. Haarde,
forsætisráðherra, né Valgerði Sverr-
isdóttur utanríkisráðherra. Ragn-
heiður Elín Árnadóttir, aðstoðar-
maður Geirs, vildi ekki tjá sig.
Hún á sæti í sendinefnd Islands
í viðræðunum
landsins.
varmr
& Helðsklrt { Léttskýjað.
iiuíyjlf*
Algarve 28
Amsterdam 18
Barcelona 26
Berlín 17
Chicago 19
Dublin 16
Frankfurt 17
Glasgow 17
Hamborg 18
Helsinki 26
Kaupmannahöfn 16
London 19
Madrid 31
Mallorka 28
Montreal 13
New York 19
Orlando 26
Osló 20
Paris 17
Stokkhólmur 22
Vín 17
Þórshöfn 12
Alskýjaö Rignlng, lltllsháttar^C Rlgnlng Súld ■ - - SnJókoma<&C ■ Slydda .rí..SnJMI ÍSh.s
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 9020600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands